Fréttir
30.7.2010
Ný skoðun Viðskiptaráðs: Er Ísland opið fyrir fjárfestingu?
Fjárfesting er ein af grunnstoðum hagvaxtar og forsenda þess að endurreisn hagkerfisins geti orðið að veruleika fyrr en síðar. Pólitísk afskipti af einstaka fjárfestingum eru því ekki til þess fallin að stuðla að sameiginlegu markmiði okkar allra, að efla hagvöxt og með því lífskjör hérlendis á komandi árum. Fjárfesting innlendra aðila hefur dregist mikið saman frá bankahruni auk þess sem erlend fjárfesting hefur verið í lágmarki.
16.7.2010
Skattalegar brotalamir: efla þarf útgáfu á bindandi forúrskurðum
Í núverandi efnahagsástandi sem einkennist, m.a. af fjárhagslegri endurskipulagningu fjölda fyrirtækja og tíðum breytingum á skattkerfinu, er uppi töluverð óvissa um skattalega meðferð ýmissa tekna. Ein afleiðing þessa er að mörg fyrirtæki eiga erfitt með að gera langtímaáætlanir.
14.7.2010
Skattalegar brotalamir: afnema þarf reglur um jöfnun yfirfæranlegs taps
Það er almennt álit innan atvinnulífsins að á Íslandi hafi skattlagning rekstrar verið hagkvæm með tiltölulega lágum og breiðum skattstofni, með fáum frádráttarliðum. Með breytingum á skattkerfinu sem draga úr samkeppnishæfi m.v. það sem tíðkast erlendis er í raun verið að stíga skref í þá átt að hrekja fyrirtæki úr landi.
13.7.2010
Skattaskýrsla AGS: Hvatt til einföldunar á skattkerfinu
Nýverið gaf Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn út skýrslu um íslenska skattkerfið. Skýrslan var unnin að beiðni stjórnvalda en þar eru kynntar tillögur sjóðsins um hvernig auka megi skatttekjur ríkissjóðs án verulegs skaða og neikvæðra áhrifa fyrir íslenskt efnahagslíf.
13.7.2010
Skattalegar brotalamir: breyta þarf reglum um meðferð söluhagnaðar
Í s.l. viku gaf Viðskiptaráð út skoðun þar sem farið er yfir þá vankanta sem nýlega hafa verið innleiddir í annars hagfellt íslenskt skattkerfi. Til að byggja upp trausta atvinnustarfsemi liggur fyrir að umhverfi til rekstrar þarf að vera hagfellt og ekki síður stöðugt. Mikilvægt er því að draga úr því ósamræmi sem hefur skapast í skattlagningu hérlendis miðað við það sem gerist í samkeppnislöndum Íslands.
12.7.2010
Skattalegar brotalamir: afnema þarf afdráttarskatta á vaxtagreiðslur
Veruleg óvissa ríkir nú í skattamálum fyrirtækja þar sem upplýsingar um væntanlegar tekjuöflunarleiðir ríkissjóðs fyrir næsta ár eru takmarkaðar. Skattabreytingar síðustu missera hafa einkennst af hringlandahætti og hafa þær jafnframt ýtt undir ósamræmi í skattlagningu hérlendis miðað við það sem gerist í samkeppnislöndum okkar.
9.7.2010
Ný skoðun Viðskiptaráðs: Skattalegar brotalamir - Hindra atvinnuuppbyggingu
Í kjölfar bankahrunsins hafa rekstrarskilyrði fyrirtækja versnað til muna. Til að byggja upp trausta atvinnustarfsemi liggur fyrir að umhverfi til rekstrar þarf að vera hagfellt og ekki síður stöðugt. Það er almenn skoðun innan atvinnulífsins að á Íslandi hafi skattlagning rekstrar verið hagkvæm með tiltölulega lágum og breiðum skattstofni með fáum frádráttarliðum.
8.7.2010
Greiðsludreifing opinberra gjalda ekki lengur í boði
Í vetur var lögfest á Alþingi heimild til handa fyrirtækjum að dreifa gjalddögum aðflutningsgjalda, tolla og virðisaukaskatts. Lögin voru sett á til að bregðast við gjörbreyttum aðstæðum íslensks atvinnulífs og mæltust þau afar vel fyrir hjá íslenskum fyrirtækjum. Sú heimild gilti þó einungis fyrir fyrstu tvö uppgjörstímabil þessara gjalda (janúar-febrúar og mars-apríl) á árinu 2010 og rann heimildin út í lok apríl s.l.







