Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

31.8.2010

Samstarf stjórnvalda og viðskiptalífs mikilvægt

Stjórnvöld þurfa að vinna í samstarfi við atvinnulífið og sérfræðinga þegar kemur að því að marka framtíðarstefnu í atvinnuuppbyggingu. Þetta kom fram í máli Dr. Seiichiro Yonekura, forstöðumanns rannsóknarmiðstöðvar í nýsköpunarfræðum við Hitotsubashi Háskóla í Tókýó, á morgunverðarfundi Viðskiptaráðs á Grand Hótel í morgun.

30.8.2010

Nýsköpun og atvinnuuppbygging - Hvað má læra frá Asíu?

Hvernig getur skipulagt samstarf milli viðskiptalífs og hins opinbera stutt við uppbyggingu á nýjum atvinnuvegum? Þetta er meðal þess sem fjallað verður um á morgunverðarfundi sem fram fer fram á morgun, þriðjudag. Á fundinum verður m.a. rætt um mikilvægi þess að mótuð verði stefna í uppbyggingu atvinnuvega hér á landi.

20.8.2010

Uppfærð skýrsla á ensku um stöðu mála

Í dag kom út uppfærð útgáfa af skýrslu Viðskiptaráðs um stöðu efnahagsmála á Íslandi, The Icelandic Economic Situation - Status report. Skýrslan, sem er á ensku, kom fyrst út í október 2008 og hefur verið uppfærð reglulega síðan.

19.8.2010

Morgunverðarfundur: Framtíðaruppbygging atvinnuvega á Íslandi

Þriðjudaginn 31. ágúst munu Viðskiptaráð Íslands, Sendiráð Japans á Íslandi, Háskólinn í Reykjavík og japönsk fræði við Háskóla Íslands standa fyrir morgunverðarfundi. Yfirskrift fundarins er „Hagvaxtarstefna Asíulanda - Lærdómar fyrir Ísland“ en aðalræðumaður verður Dr. Seiichiro Yonekura.

19.8.2010

Hagvöxtur eða stöðnun - Hvað getum við gert?

Hvernig getur skipulagt samstarf milli viðskiptalífs og hins opinbera stutt við uppbyggingu á nýjum atvinnuvegum? Þetta er meðal þess sem fjallað verður um á morgunverðarfundi Viðskiptaráðs Íslands, Sendiráðs Japans á Íslandi, Háskólans í Reykjavík og japanskra fræða við Háskóla Íslands. Fundurinn fer fram þriðjudaginn nk.

18.8.2010

Veiking skattstofna en jákvæð vaxtalækkun

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands lækkaði vexti bankans um 1 prósentustig í morgun. Vextir á viðskiptareikningum innlánsstofnana lækka í 5,5%, hámarksvextir á 28 daga innstæðubréfum í 6,75%, vextir á lánum gegn veði til sjö daga í 7,0% og daglánavextir í 8,5%.

18.8.2010

Samstarf um framtíðarstörf fyrir ungt fólk

Ör vöxtur hefur einkennt íslenskan tækniiðnað undanfarið, sérstaklega hugverkaiðnaðinn, en áætluð þörf fyrir tæknimenntaða einstaklinga út í atvinnulífið er um 2-3.000 manns næstu þrjú árin. Íslenskt atvinnulíf árið 2015 tekur því af skarið og óskar eftir verk- og tæknifræðingum til starfa.

17.8.2010

Morgunverðarfundur: Uppbygging atvinnuvega

Þriðjudaginn 31. ágúst fer fram morgunverðarfundur þar sem m.a. verður rætt um mikilvægi þess að mótuð verði stefna í uppbyggingu atvinnuvega hér á landi. Jafnframt er tilgangur fundarins að hvetja til þess að slík stefna verði þróuð. Málið er sérstaklega áhugavert í ljósi...

16.8.2010

Hagvaxtarstefna Asíulanda - Lærdómar fyrir Ísland

Hvernig getur skipulagt samstarf milli viðskiptalífs og hins opinbera stutt við uppbyggingu á nýjum atvinnuvegum? Þetta er meðal þess sem fjallað verður um á morgunverðarfundi Viðskiptaráðs Íslands, Japanska sendiráðsins á Íslandi, Háskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík.

13.8.2010

Tillögur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra vinna gegn mjólkuriðnaði

Traust á framleiðendum í mjólkuriðnaði er verulega takmarkað í nýju frumvarpi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um breytingar á lögum um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum. Þvert á það sem fram kemur í áðurnefndu frumvarpi ætti stýring á mjólkurframleiðslu að ráðast af markaðslögmálum og einfaldri reglu um framboð og eftirspurn.

13.8.2010

Opinber inngrip í frjálsa samninga á fjölmiðlamarkaði

Í vikunni hefur verið fjallað um samning fjölmiðlafyrirtækisins 365 miðla um sýningarétt á næstu tveimur heimsmeistaramótum í handbolta. Nú berast hins vegar fregnir þess efnis að vinna sé hafin í mennta- og menningarmálaráðuneytinu við að þvinga hluta af þessu dagskrárefni, og jafnvel fjöldann allan af sambærilegu efni, í opna dagskrá með vísan í 23. grein útvarpslaga.

12.8.2010

Nýtt mjólkurfrumvarp hindrar nýsköpun

Þeir tveir aðilar sem eru hvað stærstir í framleiðslu á eigin mjólkurafurðum eru þegar búnir að sprengja það 10.000 lítra mark sem lagt er til í frumvarpi til laga um breytingar á lögum um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum. Býlin sem um ræðir eru bæði tiltölulega nýbyrjuð í sinni starfsemi og strax hafa þau sprengt það svigrúm sem breytingum á lögunum er ætlað að veita.

12.8.2010

Nýr aðstoðarframkvæmdastjóri Viðskiptaráðs

Haraldur I. Birgisson hefur tekið við starfi aðstoðarframkvæmdastjóra Viðskiptaráðs, en áður gegndi hann starfi yfirlögfræðings ráðsins. Fráfarandi aðstoðarframkvæmdastjóri, Frosti Ólafsson, hverfur nú til frekara náms erlendis en hann hefur starfað hjá Viðskiptaráði frá árinu 2006, fyrst sem hagfræðingur ráðsins.

10.8.2010

Golfmót Viðskiptaráðs og millilandaráða 2010

Hið árlega og sívinsæla alþjóðlega golfmót Viðskiptaráðs og millilandaráðanna verður haldið á Urriðavelli hjá Golfklúbbnum Oddi þann 2. september 2010. Við hvetjum alla félaga til að taka þátt og nota með því tækifærið til að efla alþjóðlegt tengslanet sitt. Að leik loknum verður boðið uppá steikarhlaðborð í golfskálanum.

4.8.2010

Takmarkanir á erlendri fjárfestingu

Ísland er nú í 2. sæti á lista yfir þau aðildarríki Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu (OECD) sem hafa hvað mestar takmarkanir á beinni fjárfestingu erlendra aðila. Mestu hömlurnar eru í Kína, en næst á eftir Íslandi koma Rússland og Sádi-Arabía. Síðast þegar sambærileg skýrsla var tekin saman af OECD árið 2006 var Ísland í sama sæti og nú.

Póstlisti VÍ
Aðild að Viðskiptaráði
Viðskiptaráð á FB
Sækja um ATA skírteini

Slóðin þín:

Um VÍ » Fréttir

Flýtileiðir

English flag

Mynd


Stjórnborð

Minna letur Stærra letur Hamur fyrir sjónskerta