Fréttir
30.9.2010
Opinber atvinnurekstur og tįlsżnin um hagvöxt
Ķ kjölfar bankahruns hefur mikið verið fjallað um endurreisn heimila, atvinnulífs og hagkerfis, en sitt sýnist hverjum um gang mála. Gjarnan veltur sú afstaða á því hvar menn eru í pólitík og hvort þeir koma úr atvinnulífinu eða ekki. Flestir geta þó verið sammála um að hraðari uppbyggingar er þörf.
29.9.2010
Fjįrmagnstekjuskattur - Himinhį raunskattlagning
Į síðustu tveimur árum hefur fjármagnstekjuskattur verið hækkaður um 80%, úr 10% í 18%, m.a. á þeirri forsendu að verið sé að samræma skattgreiðslur af fjármagni og launum. Sú afstaða byggir sumpart á misskilningi þar sem fjármagnstekjuskattur er brúttóskattur og með aukinni verðbólgu er skattlagning á raunvexti verulega hærri.
24.9.2010
Sękjum ķ styrkleika Noršurlandanna
Į opnum fundi Viðskiptaráðs og Samtaka atvinnulífsins í gærmorgun um skattamál ræddi fjármálaráðherra um það sem hann sagði ranghugmyndir um umfang ríkisins og samneyslunnar og áhrif þess á efnahagslífið. Minni ríkisumsvif og þar með hagkvæmara skattaumhverfi væri þannig ekki besta meðalið til að hvetja...
24.9.2010
Vanhugsašar skattkerfisbreytingar
Breytingar á skattkerfinu síðustu misseri hafa einkennst af fjótfærni af hálfu stjórnvalda. Komið hefur í ljós að margar þeirra hafa verið afar misráðnar og nauðsynlegt er að þær gangi til baka til þess að koma megi atvinnulífinu hér á landi af stað. Á opnum fundi Viðskiptaráðs og Samtaka atvinnulífsins um skattamál í gærmorgun sagði fjármálaráðherra...
23.9.2010
Opinn fundur um skattamįl: Samrįš lykilatriši viš breytingar į skattkerfinu
Það er alvörumál þegar lagt er í breytingar á skattkerfi hvers lands og mikilvægt að staðið sé að slíkum breytingum með sem bestum hætti. Það var ekki gert á síðastliðnu ári.“ sagði Finnur Oddsson framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs, á opnum fundi ráðsins og Samtaka atvinnulífsins um skattamál sem nú fer fram.
23.9.2010
Opinn fundur um skattamįl: Skattkerfiš fęrt įratugi aftur ķ tķmann
Atvinnulífið gerði sér fulla grein fyrir þörf ríkisins á skattahækkunum á árunum 2009 og 2010, en forystusveit þess skorti hins vegar hugmyndaflug til að ímynda sér að ríkisstjórnin myndi færa skattkerfið áratugi aftur í tímann. Þetta kom fram í máli Vilmundar Jósefssonar, formanns Samtaka atvinnulífsins á opnum fundi Viðskiptaráðs og SA um skattamál sem nú fer fram.
23.9.2010
Nż skżrsla VĶ og SA um skattkerfiš
Skýrsla Viðskiptaráðs og Samtaka atvinnulífsins um skattkerfið hefur verið gefin út, en í henni er að finna 21 tillögu að margvíslegum umbótum sem hafa það að markmiði að efla fjárfestingu, auka atvinnu og bæta lífskjör. VÍ og SA vona að skýrslan verði grundvöllur málefnalegra skoðanaskipta um þetta brýna mál á næstu vikum og mánuðum.
22.9.2010
Skattabreytingar - Vegferš ķ ranga įtt
Ķ byrjun júlí birti AGS skýrslu um skattkerfið hér á landi. Þar mátti finna fjölmargar ábendingar um breytingar á kerfinu, en megin niðurstaða athugunar sjóðsins var að skattkerfið sem byggt hafi verið upp hérlendis undanfarna áratugi innihéldi flesta þá þætti sem einkenni skattkerfi í fremstu röð. Í skýrslunni má finna...
21.9.2010
Skattkerfi atvinnulķfsins - Umręša óskast
Fjármálaráðherra skipaði starfshóp síðastliðið vor til að móta og setja fram heildstæðar tillögur um breytingar á skattkerfinu. Hópnum var upphaflega gefinn frestur til 15. júlí til að skila áfangaskýrslu en var sá frestur framlengdur til 31. ágúst. Nú þegar þrjár vikur eru liðnar frá því framlengdum skilafresti lauk og rúmir...
20.9.2010
Opinn fundur um skattamįl: Skattahękkanir hafa neikvęš įhrif į višskiptalķfiš
Viðskiptaráð Íslands og Samtök atvinnulífsins efna til opins morgunverðarfundar um skattamál fyrirtækja fimmtudaginn 23. september nk. á Hilton Nordica. Húsið opnar með morgunverði klukkan 8:00, en fundurinn hefst klukkan 8.30 og stendur til 10 - aðgangur er ókeypis.
15.9.2010
Skattahękkanir hafa neikvęš įhrif į višskiptalķfiš
Sú óvissa sem áætlaðar skattahækkanir í Bandaríkjunum skapa er farin að hafa neikvæð áhrif á viðskiptalífið þar í landi. Hækkanir sem þessar gætu komið niður á alþjóðlegum fyrirtækjum sem starfa innan landsins, en um þetta er fjallað í bandaríska blaðinu Wall Streeet Journal. Umræða sem þessi minnir um margt á ástandið hér á landi.
10.9.2010
Samkeppnishęfni Ķslands - Afturför milli įra
Samkeppnishæfni Íslands dalar milli ára en landið er nú í 31. sæti á lista Alþjóða efnahagsráðsins (e. World Economic Forum) yfir samkeppnishæfni landa. Fyrir ári síðan var Ísland í 26. sæti og því ljóst að mikil afturför hefur átt sér stað upp á síðkastið. Stærstu vandamálin hér á landi sem rætt er um í skýrslunni eru aðgengi að fjármagni, gjaldeyrishöft...
9.9.2010
Opinn fundur um skattamįl fyrirtękja 23. september
Samtök atvinnulífsins og Viðskiptaráð Íslands efna til opins morgunverðarfundar um skattamál fyrirtækja fimmtudaginn 23. september nk. á Hótel Nordica. Þar munu samtökin leggja fram og kynna tillögur að umbótum á skattkerfinu sem miða að því að efla fjárfestingar, stuðla að sköpun nýrra starfa og bæta lífskjör landsmanna.
8.9.2010
Nįmskeiš - Incoterms 2010
Landsnefnd Alþjóða viðskiptaráðsins (ICC) stendur fyrir námskeiði á Íslandi um alþjóðlegu vöruflutningsskilmálana Incoterms 2010 miðvikudaginn 29. september. Ný og endurskoðuð útgáfa verður kynnt á fundi ICC í París þann 27. september. Margir hafa beðið eftir þessari endurskoðun með óþreyju...
8.9.2010
Samstarf um uppbyggingu atvinnuvega
Mikilvægt er að nýta þekkingu innan samtaka atvinnuvega og þau víðtæku tengsl sem þar eru við atvinnulífið í uppbyggingu hérlendis. Slík samtök eru í því hlutverki að koma nýrri þekkingu áfram og þjóna hlutverki einskonar miðjumanns milli atvinnulífs og stjórnvalda. Þau geta í samstarfi við fræðimenn og fyrirtæki í landinu skapað nýja þekkingu...
6.9.2010
Framhald į yfirstandandi kreppu
Nú hafa verið birtar tölur um þróun hagkerfisins á öðrum ársfjórðungi. Þar kemur fram að samdráttur hafi verið 3,1% milli ársfjórðunga. Það sem vekur einna helst athygli er hve mikil breytingin er frá áður birtum hagvaxtartölum. Aðilar ríkisstjórnarinnar og AGS höfðu áður bent á að kreppunni hérlendis væri tæknilega lokið.
3.9.2010
Mikilvęgt aš takmarka verulega umsvif RŚV į auglżsingamarkaši
Meirihluti menntamálanefndar hefur nú skilað áliti sínu vegna fjölmiðlafrumvarps menntamálaráðherra, sem liggur nú fyrir hjá Alþingi. Það sem er athygliverðast er að meirihlutinn telur að takmarka þurfi umsvif RÚV á auglýsingamarkaði til að unnt sé að tryggja fjölbreytni og fjölræði í fjölmiðlum.







