Beint į leišarkerfi vefsins

Fréttir

22.12.2011

Andlįt: Gķsli V. Einarsson, fyrrum formašur VĶ

Gísli V. Einarsson, fyrrum formaður Viðskiptaráðs Íslands (áður Verslunarráð Íslands) er fallinn frá 80 ára að aldri. Hann fæddist 14. júní árið 1931 og lést hinn 20. desember sl. Gísli var kjörinn formaður ráðsins árið 1974.

16.12.2011

Fundur um gjaldeyrishöft: Afnįm į einu įri?

Ķ gærmorgun stóðu Viðskiptaráð Íslands og Samtök iðnaðarins fyrir vel sóttum morgunverðarfundi um gjaldeyrishöftin. Á fundinum var gefin út ný skýrsla Viðskiptaráðs um efnahagsleg áhrif haftanna, en í henni er m.a. lagt mat á kostnað atvinnulífs af umgengni við höftin. Einnig var kynnt tillaga vinnuhóps sérfræðinga úr röðum atvinnulífs og háskóla að...

16.12.2011

Eldhugar į stefnumóti viš stjórnendur

Žriðjudaginn 6. desember stóðu Viðskiptaráð Íslands og Innovit fyrir mentor kvöldverði undir yfirskriftinni Ný-sköpun-Ný-tengsl. Valdir „mentorar“ úr íslensku atvinnulífi buðu til kvöldsins nokkrum fulltrúum nýrra og vaxandi fyrirtækja sem eru rétt að byrja slíta barnsskónum í atvinnulífinu.

15.12.2011

Gjaldeyrishöftin: Nż skżrsla og afnįmsįętlun

Nýverið kom út ný skýrsla Viðskiptaráðs um gjaldeyrishöftin þar sem fjallað er um kostnaðinn sem af þeim hlýst og efnahagsleg áhrif þeirra. Tilgangur með útgáfu skýrslunnar er að ýta á ný við umræðu um gjaldeyrishöftin með því að varpa ljósi á margvíslega skaðsemi þeirra fyrir íslenskt hagkerfi verði þau of lengi við lýði.

12.12.2011

Nįmsstyrkir Višskiptarįšs til framhaldsnįms erlendis

Viðskiptaráð tekur virkan þátt í uppbyggingu menntunar og er bakhjarl bæði Verzlunarskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík. Ráðið hefur jafnframt um árabil veitt styrki til framhaldsnáms erlendis og eru námsstyrkir Viðskiptaráðs 2012 nú auglýstir til umsóknar.

6.12.2011

Erlend fjįrfesting skapar žekkingu, störf og veršmęti

Lítil stefnumótun hefur átt sér stað hér á landi um beina erlenda fjárfestingu í gegnum tíðina, og því mikilvægt að stjórnvöld marki slíka stefnu til frambúðar. Þetta segir Aðalsteinn Leifsson, lektor við viðskiptadeild HR, en hann var formaður starfshóps um stefnu stjórnvalda varðandi beina erlenda fjárfestingu á Íslandi.

5.12.2011

Žurfum viš erlenda fjįrfestingu?

Nú um helgina hafa ráðherrar ríkisstjórnarinnar skipst opinberlega á skoðunum um mál sem tengjast erlendri fjárfestingu á Íslandi. Í þeim samskiptum virðist kristallast verulegur skoðanaágreiningur milli þeirra flokka sem að ríkisstjórninni standa, en þó er ekki annað hægt að lesa út úr samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar en...

1.12.2011

Aršrįn eša įvinningur? Bein erlend fjįrfesting og įhrif į endurreisn

Į þriðjudag í næstu viku (6. desember) standa Viðskiptaráð Íslands og Íslandsstofa fyrir morgunverðarfundi um áhrif beinnar erlendrar fjárfestingar á endurreisn íslensk hagkerfis og efnahagsþróun til framtíðar. Fundurinn er haldinn á Grand Hótel Reykjavík (Gullteig), hann hefst klukkan 8:15 og stendur til klukkan 10:00.

1.12.2011

Greišslutryggingar: Góšur įrangur nįšst en enn töluvert ķ land

Ķ kjölfar hruns efnahagskerfisins í október 2008 lokuðu stærstu erlendu greiðslutryggingarfélögin, Euler Hermes, Atradius og Coface, fyrir viðskipti við íslensk fyrirtæki. Eins og gefur að skilja olli þetta miklum vandræðum í viðskiptum fyrirtækja, sem nú þurftu að fyrirframgreiða vörusendingar eða...

25.11.2011

Greišslutrygging Euler Hermes: merki um aukiš traust

Stærsta greiðslutryggingarfélag heims, Euler Hermes, hefur nú staðfest að það sé tilbúið til að tryggja greiðslur fyrirtækisins Innnes á sama hátt og gildir með fyrirtæki í öðrum löndum. Í tilkynningu frá Innnes kemur fram að félagið hafi frá hruni lagt áherslu á að upplýsa Euler Hermes reglulega um stöðu fyrirtækisins, sem og um stöðuna á Íslandi.

25.11.2011

Fagfjįrfestar horfa til višskiptahįtta stjórnenda

Įhugi fjárfesta á nýskráningum mótast af gæðum upplýsinganna sem fyrir liggja, verðmati og árferði. Þetta kom fram í máli Auðar Finnbogadóttur framkvæmdastjóra Lífeyrissjóðs verkfræðinga á fyrsta fundi í morgunverðafundaröð Deloitte, Kauphallarinnar og Viðskiptaráðs Íslands um mikilvægi virks verðbréfamarkaðar á Íslandi.

25.11.2011

Ašalfundur Višskiptarįšs 2012

Aðalfundur Viðskiptaráðs verður haldinn kl. 11:00 á Hilton Reykjavík Nordica (salur I), samhliða Viðskiptaþingi 15. febrúar næstkomandi. Stjórn ráðsins er skipuð 19 einstaklingum og jafn mörgum til vara, kosning stjórnar er óbundin þannig að kjörgengir eru allir skuldlausir félagsmenn. Formaður stjórnar er kosinn sérstaklega í bundinni kosningu og skal framboðum til formanns skilað til skrifstofu ráðsins fyrir miðvikudaginn 25. janúar næstkomandi.

25.11.2011

Kauphöllin hentugur kostur fyrir Landsvirkjun

Ķ gærmorgun fór fram fyrsti fundur í fundaröð Deloitte, Kauphallarinnar og Viðskiptaráðs Íslands um mikilvægi virks verðbréfamarkaðar á Íslandi. Á fundinum var farið yfir tilgang virks verðbréfamarkaðar og rætt m.a. um þau fyrirtæki sem skráð verða á hlutabréfamarkað á næstu misserum.

24.11.2011

Fjölgun samninga um fjįrfestingavernd

Į síðasta löggjafarþingi var samþykkt þingsályktunartillaga í þá veru að fjölga gerð tvíhliða samninga um gagnkvæma vernd fjárfestinga (e. Bilateral Investment Treaties). Eins og nafn þeirra ber með sér þá snýr megininntak þeirra að vernd fjárfestinga í viðkomandi ríkjum, umfram það sem leiðir af hefðbundnum fríverslunarsamningum...

23.11.2011

Kolefnisskattur: Meira samrįš og betri undirbśningur naušsynlegur

Fyrir Alþingi liggur nú frumvarp til laga um ráðstafanir í ríkisfjármálum, en með því er ætlunin að innleiða fjölmargar skattahækkanir tengdar fjárlögum næsta árs. Meðal margra þeirra er hækkun kolefniskatts og breikkun á gjaldstofni skattins með þeim hætti að m.a. rafskaut og skyldar vörur falla þar undir. Þessi breyting hefur verið harðlega gagnrýnd síðustu daga þar sem hún vegur að núverandi atvinnurekstri og setur fjárfestingaráform í uppnám. Viðskiptaráð tekur undir þá gagnrýni.

18.11.2011

Višręšur Ķslands viš ESB į góšu róli

Ķ morgun stóðu Viðskiptaráð Íslands og millilandaráðin fyrir fundi um stöðuna á samningaviðræðum Íslands við ESB. Stefán Haukur Jóhannesson, aðalsamningamaður Íslands í samningaviðræðunum, og Kolbeinn Árnason, formaður samningshóps um sjávarútveg, héldu erindi þar sem farið var yfir stöðu mála. Í lok erinda voru umræður þar sem nánar var fjallað um einstök atriði og eins og gefur að skilja vógu sjávarútvegsmál þungt í þeim umræðum.

16.11.2011

Fjįrlög 2012: Įframhaldandi skattlagning

Fyrir Alþingi liggja nú nokkur frumvörp tengd fjárlögum næsta árs. Viðskiptaráð hefur skilað umsögnum til efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis við tvö þeirra og reifað markvisst þá afstöðu sína að núverandi skattastefna sé skaðleg atvinnulífi og heimilum og þar með rekstri ríkissjóðs. Frumvörpin eru því miður áframhald af þeirri stefnu, en með þeim er enn bætt við þær 100 breytingar sem þegar hafa verið gerðar á skattkerfinu undanfarin ár.

16.11.2011

Hraša žarf skuldaśrvinnslu fyrirtękja

Samtök atvinnulífsins ályktuðu nýverið í þá veru að brýn nauðsyn væri til að leysa úr þeim vanda sem gengisbundin lán fyrirtækja hafa valdið. Viðskiptaráð tekur heilshugar undir þá ályktun samtakanna. Ljóst er að skuldaúrvinnsla fyrirtækja hefur ekki gengið nægilega hratt fyrir sig og spilar óvissa um meðferð gengisbundinna lána þar stóran þátt.

15.11.2011

Skil įrsreikninga mun betri

Samkvæmt tölum Creditinfo þá höfðu um 19.913 fyrirtæki eða um 60,5% skilaskyldra fyrirtækja skilað ársreikningi sínum fyrir árið 2010 þann 10. nóvember síðastliðinn. Á sama tíma í fyrra höfðu 16.812 félög skilað ársreikningi fyrir árið 2009 eða 51,6% skilaskyldra fyrirtækja. Skilaskyld fyrirtæki bæði árin voru skráð um 32 þúsund.

8.11.2011

Huga žarf aš fjölbreytileika ķ stjórnum

Ķ morgun var haldinn fundur á vegum Viðskiptaráðs Íslands og KPMG undir yfirskriftinni: Hver er hinn íslenski stjórnarmaður? Á fundinum voru kynntar helstu niðurstöður könnunar sem KPMG framkvæmdi í sumar meðal íslenskra stjórnarmanna til að kanna bakgrunn þeirra og störf stjórna.

4.11.2011

Peningamįlafundur Višskiptarįšs: Vextir of lįgir?

Ķ morgun fór fram árlegur Peningamálafundur Viðskiptaráðs Íslands, í Hörpu. Aðalræðumaður fundarins var Már Guðmundsson seðlabankastjóri og ræddi hann um nýlega vaxtahækkun bankans, stöðu peningastefnunnar, efnahagsbatann og horfur fram á við. Í erindi Más kom m.a. fram að...

3.11.2011

Peningamįlafundur 2011 į morgun - Skrįningu lżkur ķ dag

Į morgun, föstudag, kl. 8.15-10 fer fram morgunverðarfundur Viðskiptaráðs í tilefni af útgáfu Peningamála Seðlabankans. Skráning fer fram á vef Viðskiptaráðs. Aðalræðumaður fundarins er Már Guðmundsson seðlabankastjóri sem mun fjalla um efnahagshorfur, en í framhaldi af erindi hans fara fram pallborðsumræður.

2.11.2011

Hringlandi ķ vaxtaįkvöršunum

Erfitt er að sjá hvernig vaxtabreytingar Seðlabankans muni hafa áhrif á verðlagsþróun nú. Enn og aftur virðist því sem bankinn taki trúverðugleika peningastefnunnar fram yfir nauðsyn þess að koma til móts mótdrægt umhverfi heimila og atvinnulífs, þar sem fjárfesting er allt of lítil og atvinnuleysi of mikið.  Hærri vextir viðhalda því ástandi.

2.11.2011

Efnahagshorfur eftir AGS - Peningamįlafundur į föstudag

Föstudaginn næstkomandi (4. nóvember) fer fram árlegur peningamálafundur Viðskiptaráðs. Aðalræðumaður fundarins er Már Guðmundsson seðlabankastjóri sem mun fjalla um efnahagshorfur, en í framhaldi af erindi hans fara fram pallborðsumræður.

28.10.2011

Samstarfiš viš AGS gert upp

Ķ gær fór fram ráðstefna AGS, Seðlabankans og íslenskra stjórnvalda um lærdóma sem draga má af efnahagskreppunni og þau verkefni sem framundan eru. Ráðstefnan fór fram undir yfirskriftinni „Iceland´s Recovery - Lessons and Challenges“.

28.10.2011

Dómafordęmi flżti endurskipulagningu

Fimmtudaginn 20. október kvað Hæstiréttur upp dóm í máli Íslandsbanka hf. gegn þrotabúi AB 258 ehf., áður Kraftvélaleigan ehf. Fyrir dómi var tekist á um þýðingu samninga um fjármögnun á vinnuvélum. Ágreiningur aðila snéri að því hvort um væri að ræða lánssamning eða leigusamning. Út frá orðalagi skilmála samningsins, bæði sérstakra og almennra, taldi dómstóllinn ljóst að þarna væri um lán til kaupa að ræða sem var íklætt búningi leigusamnings.

19.10.2011

Atvinnulķf kallar eftir bęttu višskiptasišferši

Ķ könnun sem gerð var meðal íslenskra stjórnenda kemur fram að það er mat þeirra að ekki sé nægilega hugað að siðferði í viðskiptalífi hér á landi. Almennt höfðu þátttakendur í könnuninni trú á ágæti siðferðis innan eigin fyrirtækis en höfðu á sama tíma neikvæðari sýn á önnur fyrirtæki og utanaðkomandi aðila.

17.10.2011

Hvaš segja stjórnendur um breytingar į višskiptasišferši sķšustu įr?

Į morgun, þriðjudaginn 18. október, stendur Viðskiptaráð Íslands, Félag löggiltra endurskoðenda, Félag viðskipta- og hagfræðinga, Lögmannafélag Íslands og Háskólinn í Reykjavík fyrir opnum morgunverðarfundi um stöðu viðskiptasiðferðis á Íslandi og hlutverk háskólanna hvað kennslu á sviði viðskiptasiðfræði varðar.

14.10.2011

Fjįrlagafrumvarpiš 2012 - sagan endalausa

Ķ síðustu viku kynnti fjármálaráðherra frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2012. Þar kennir ýmissa grasa, en áfram kveður við sama tón og undanfarin þrjú ár, skattahækkanir á fjölskyldur og fyrirtæki. Helstu hækkanir skatta og gjalda í frumvarpinu eru þessar...

6.10.2011

Skošun Višskiptarįšs: Kapp įn forsjįr - Rżnt ķ störf Alžingis

Alþingi Íslands er ein af grunnstoðum íslensks samfélags og störf þess hafa haft og munu áfram hafa afgerandi áhrif á hraða endurreisnar hagkerfisins; hagvöxt, kaupmátt og bætt lífskjör. Ábyrgð þingsins er því mikil og ríður á að skipulega sé gengið til verka, málflutningur og ákvarðanir faglegar og með hagsmuni heildar að leiðarljósi. Aðeins þannig heldur þingið þeim virðingarsessi sem því er ætlað.

28.9.2011

Aršrįn eša įvinningur?

Žótt þjóðir heims séu ólíkar um margt eigar flestar eitt sameiginlegt - að leggja mikið upp úr því að laða til sín beina erlenda fjárfestingu. Ísland er eitt þessara landa, en í samstarfsyfirlýsingu núverandi stjórnarflokka kemur fram að til að unnt sé að ná góðum og jöfnum hagvexti þurfi m.a. að stuðla að beinum erlendum fjárfestingum. Þannig er þetta í öllu falli í orði.

27.9.2011

Atradius opnar į greišslutryggingar

Frá hausti 2008 hafa íslensk fyrirtæki, inn- og útflytjendur, lent í allnokkrum vandræðum með viðskiptalánatryggingar. Stærstu erlendu greiðslutryggingarfélögin, Atradius og Euler Hermes, hafa ekki verið reiðubúin til að gangast í ábyrgðir fyrir greiðslur frá íslenskum félögum sem hafa því neyðst til að greiða vörusendingar fyrirfram eða útvega aðrar kostnaðarsamar greiðslutryggingar á borð við bankaábyrgðir.

21.9.2011

Vaxtaįkvöršun Sešlabankans skiljanleg

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað nú í morgun að halda vöxtum bankans óbreyttum. Standa daglánavextir bankans í 5,5% og innlánsvextir í 3,5%. Ákvörðun peningastefnunefndar er á skjön við spár nokkurra greiningaraðila, en búist hafði verið við 25-50 punkta hækkun.

9.9.2011

Hömlulaus höft

Žessa dagana hefur Alþingi til umræðu frumvarp um lögfestingu gjaldeyrishafta. Í gildi eru gjaldeyrishöft sem sett voru á með reglum útgefnum af Seðlabanka Íslands, með heimild í lögum um gjaldeyrismál. Heimildin var bundin við lengd efnahagsáætlunar Íslands gagnvart Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, en hún var framlengd fram á haust í samræmi við framlengingu á samstarfi stjórnvalda við sjóðinn.

2.9.2011

Įstęšulaust aš óttast erlenda fjįrfestingu

Ķsland er í öðru sæti á lista yfir þau aðildarríki OECD sem hafa hvað mestar takmarkanir á beinni fjárfestingu erlendra aðila. Í fyrsta sæti er Kína, en á eftir Íslandi koma Rússland og Sádí-Arabía. Mikil umræða hefur upp á síðkastið skapast um erlenda fjárfestingu...

25.8.2011

Įhugaverš könnun um stjórnarmenn

Ķ Viðskiptablaðinu síðastliðinn fimmtudag hvatti Haraldur I. Birgisson, aðstoðarframkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, stjórnendur fyrirtækja til að gefa könnun á vegum KPMG gaum. Könnunin felur í sér kortlagningu á helstu einkennum stjórnarmanna hérlendis og getur nýst í frekari vinnu atvinnulífsins á sviði bættra stjórnarhátta.

18.8.2011

Skošun Višskiptarįšs: Sagan endalausa

Žessa dagana er smiðshögg rekið á fjárlagafrumvarp næsta árs og fjórða árið í röð er stefnt að frekari skattahækkunum. Ástæðan nú er að upphafleg markmið um frumjöfnuð í ríkisfjármálum munu ekki nást. Þessar fregnir eru vonbrigði, sérstaklega þar sem viðsnúningur í rekstri ríkissjóðs er eitt mikilvægasta markmiðið í endurreisn hagkerfisins.

17.8.2011

Óskiljanleg vaxtaįkvöršun

Ķ nýrri hagspá Seðlabankans er gert ráð fyrir umtalsvert meiri verðbólgu á þessu ári og því næsta en í síðustu spá. Vafalaust liggja þær spár til grundvallar ákvörðunar peningastefnunefndar á þessum tímapunkti. Hins vegar er hún óskiljanleg í ljósi þess að íslensk fyrirtæki og heimili glíma við margvíslegar og þungar byrðar sem rekja má t.a.m. til nýlegra kjarasamninga, yfirdrifinna skattahækkana, hruns í eftirspurn og tafa á endurskipulagningu skulda.

11.8.2011

Staša efnahagsmįla į Ķslandi - uppfęrš skżrsla

Frá falli bankanna í október 2008 hefur íslenskt efnahagslíf gengið í gegnum margskonar breytingar. Vegna skorts á upplýsingagjöf til erlendra aðila hafa þeir sjaldnast heildaryfirsýn yfir þessar breytingar og stöðu mála. Því hefur Viðskiptaráð staðið fyrir útgáfu skýrslu á ensku um þróun efnahags- og stjórnmála hérlendis frá haustinu 2008.

14.7.2011

Raunsęr AGS?

Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) var nýlega stödd hér vegna sjöttu og síðustu endurskoðunar á efnahagsáætlun íslenskra stjórnvalda og sjóðsins. Í kjölfarið sendi nefndin frá sér yfirlýsingu um framgang áætlunar sinnar og stöðu efnahagsmála hérlendis. Þar kveður við jákvæðan tón um endurreisnarstarfið, að fjármálageirinn sé að komast á fætur og fjárhagsleg endurskipulagning heimila og fyrirtækja sé farin að ganga vel.

13.7.2011

Trśveršugleiki į kostnaš endurreisnar?

Nýlega gaf peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands það út að hugsanlega yrðu vextir hækkaðir á næstunni. Umrædd yfirlýsing kemur að mörgu leyti spánskt fyrir sjónir miðað við núverandi árferði í efnahagslífinu. Framleiðsluslaki hefur nær aldrei mælst meiri, atvinnuleysi er langt umfram það sem eðlilegt getur talist...

30.6.2011

Gjaldeyrishöft: betri upplżsingar naušsynlegar

Sprotafyrirtækið Clara ehf. birti í síðustu viku svar Seðlabankans við beiðni þeirra um undanþágu frá gjaldeyrishöftum. Þremur vikum áður hafði CLARA sent inn beiðni til Seðlabankans um að fá að millifæra 1 bandaríkjadal, andvirði um 115 króna, til Bandaríkjanna. Tilgangur millifærslunnar var að stofna dótturfélag erlendis, en slíkt er óheimilt samkvæmt núverandi reglum um gjaldeyrishöft.

27.6.2011

OECD telur brżnt aš auka aga ķ rķkisfjįrmįlum

Ķ nýrri skýrslu OECD um stöðu íslenska hagkerfisins má finna fjölmargar ábendingar um hvernig bæta megi stjórn ríkisfjármála. Bent er á að þrátt fyrir að gripið hafi verið til ráðstafana til að styrkja fjárlagagerð í tengslum við samstarf Íslands við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (AGS) þá séu þær aðgerðir ekki nægjanlegar.

27.6.2011

Nżjar glęrur um stöšu efnahagsmįla į Ķslandi

Viðskiptaráð hefur staðið fyrir útgáfu skýrslunnar The Icelandic Economic situation – Status Report frá haustinu 2008. Nú hafa einnig verið gefnar út glærur þar sem stiklað er á stóru um efni skýrslunnar. Glærunum er ætlað að auðvelda enn frekar kynningu á íslensku efnahagslífi.

23.6.2011

Skošun Višskiptarįšs: Breytt fiskveišistjórnun

Fyrir skemmstu samþykkti Alþingi frumvarp sem fól í sér breytingar á núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi, en gert er ráð fyrir að annað frumvarp af sama meiði verði samþykkt nú í haust. Í báðum þessum frumvörpum er að finna grundvallarbreytingar á því kerfi sem hér hefur verið mótað í tæpa þrjá áratugi, en meðal breytinga má nefna skerðingu aflahlutdeildar, takmarkanir á ...

22.6.2011

Skattaskżrsla AGS: Jįkvętt innlegg ķ umręšuna

Į fimmtudaginn síðasta, daginn fyrir þjóðhátíðardag Íslendinga, var ný skýrsla skattahóps AGS birt á vefsíðu fjármálaráðuneytisins. Er þetta önnur skýrslan af tveimur þar sem AGS fjallar um skattkerfið hérlendis og leggur til margvíslegar tillögur að breytingum. Sú fyrri kom út í júní 2010...

20.6.2011

Aukinn stušningur viš hįskólamenntun og nżsköpun

Sjálfseignarstofnun Viðskiptaráðs Íslands um viðskiptamenntun (SVÍV), Samtök iðnaðarins (SI) og Samtök atvinnulífsins (SA) hafa tekið höndum saman um að styðja við og efla háskólastarf á Íslandi með 200 milljón króna framlagi til Háskólans í Reykjavík (HR).

14.6.2011

Sóknarfęri innan feršažjónustunnar

Dagný Pétursdóttir frá Bláa lóninu fjallar í aðsendri grein um helstu sóknarfæri í ferðaþjónustu á Íslandi. Að hennar sögn felast tækifærin fyrst og fremst í vetrarferðamennsku og hærri tekjum af hverjum erlendum ferðamann, til dæmis með heilsutengdri ferðaþjónustu.

9.6.2011

Endurskipulagning skulda tekur of langan tķma

Ķ morgun stóð Samkeppniseftirlitið (SE) fyrir ráðstefnu undir yfirskriftinni „Samkeppnin eftir hrun“ þar sem kynnt var nýútkomin skýrsla undir sama heiti. Í umræddri skýrslu er m.a. farið yfir áhrif hrunsins á samkeppni hér á landi ásamt stöðu á fjárhagslegri endurskipulagningu fyrirtækja.

9.6.2011

Arion banki: gjaldeyrishöft gętu varaš mun lengur en rętt er um

Ķslandsstofa bauð til fundar í morgun um viðskipti og fjárfestingar á tímum gjaldeyrishafta á Íslandi. Fundurinn fór fram á Hilton Reykjavík Nordica. Ólík sjónarmið komu fram og höfðu frummælendur ólíka sýn á framtíð gjaldeyrishaftanna. Sem dæmi telur Arion banki að gjaldeyrishöftin gætu varað mun lengur en talið sé nú, en Seðlabankinn telur að höftin verði afnumin fyrir árið 2015.

8.6.2011

Skošun Višskiptarįšs: Sköpum umgjörš til athafna

Žað hefur ávallt verið trú þeirra sem að Viðskiptaráði standa að kraftmikið atvinnulíf sé skilvirkasta leiðin til að bæta lífskjör og standa undir öflugu velferðarkerfi. Í ljósi stöðu og horfa fyrir íslenskt þjóðarbú er nú sérstaklega mikilvægt að sjónarmið af þessu tagi fái ríkari stað í umfjöllun um efnahagsmál.

8.6.2011

Fundir um mikilvęg mįlefni

Į morgun, fimmtudaginn 9. júní, fara fram tveir fundir þar sem fjallað verður um málefni sem eru íslensku viðskiptalífi afar mikilvæg um þessar mundir. Annars vegar er það ráðstefna Samkeppniseftirlitsins um samkeppni eftir hrun og hins vegar er það fundur Íslandsstofu um viðskipti og fjárfestingar á tímum gjaldeyrishafta. Báðir viðburðir fara fram á Hilton Reykjavík Nordica.

7.6.2011

Samtök um heilsuferšažjónustu

Magnús Orri Schram, alþingismaður og formaður Samtaka um heilsuferðaþjónustu, fjallar í grein um starfsemi samtakanna ásamt núverandi stöðu í heilsutengdri ferðaþjónustu á Íslandi. Hann bendir á að greinin þjóni vel tveimur helstu markmiðum ferðaþjónustunnar, aukinni arðsemi og lengra ferðamannatímabili.

6.6.2011

Beina brautin: Įfanga nįš en töluvert verk óunniš

Beinu brautinni, sem ætlað var að flýta fjárhagslegri endurskipulagning lítilla og meðalstórra fyrirtækja, lauk þann 1. júní síðastliðinn. Tveir bankar af þremur, Arion banki og Íslandsbanki, náðu því markmiði að gera öllum þeim fyrirtækjum sem falla undir samkomulagið tilboð fyrir þann tíma. Þessar jákvæðu fregnir koma þó á sama tíma og fregnir af því að alvarlegum vanskilum fyrirtækja fer fjölgandi.

1.6.2011

Lögfesting gjaldeyrishafta?

Fyrir Alþingi liggur nú frumvarp til breytinga á lögum um gjaldeyrismál sem lýtur að því að festa í lög reglur Seðlabankans um gjaldeyrishöft. Reglur Seðlabankans voru settar í nóvember 2008 með lagaheimild, þær voru gagnrýndar strax í upphafi og hefur hækkað til muna í þeim gagnrýnisröddum eftir því sem höftin eru lengur við lýði.

1.6.2011

Hljóšlįt starfsemi sem hefur mörg tękifęri til vaxtar

Žór Sigfússon hagfræðingur fjallar í grein um sjávarklasann á Íslandi og umfang hans. Hann segir að fyrirtæki í sjávarklasanum standi á krossgötum. Með stöðugleika í umhverfi sjávarútvegs og auknum skilningi og áhuga á klasanum megi stuðla að vexti og nýsköpun í greininni á komandi árum.

31.5.2011

Smišja veršmętasköpunar

Eyþór Ívar Jónsson hjá Klak fjallar í grein um Viðskiptasmiðjuna og hvernig umhverfi sprotafyrirtækja hefur breyst á Íslandi frá hruni. Hann segir að mikilvægasti ávinningur verkefnisins felist í þeirri þekkingu sem frumkvöðlar þeirra sprotafyrirtækja sem hafa tekið þátt hafa öðlast. Þá lýsir Eyþór framtíðarsýn sinni á nýsköpun í atvinnulífinu.

30.5.2011

Vķdd ķ stjórnendahópi – klisjur eša stašreyndir?

Katrín Olga Jóhannesdóttir fjallar um þau áhrif sem samsetning kynjanna í stjórnum og stjórnendahópi hefur á rekstrarafkomu fyrirtækja. Hún bendir á að þau fyrirtæki sem taka tillit til kynjahlutfalla skili að jafnaði betri rekstrarafkomu en þau fyrirtæki sem gera það ekki.

27.5.2011

Klasar į Ķslandi: Vęnleg leiš til uppbyggingar?

Hákon Gunnarsson í Gekon fjallar í grein um íslenska jarðvarmaklasann. Hann telur að styrkleikar Íslands á sviði jarðvarma liggi helst í fjölnýtingu hans. Þá séu þekking og orðstír íslenskra sérfræðinga á sviði jarðvarma góð og alþjóðlegt tengslanet þeirra sterkt. Saman myndi þessir þættir samkeppnisforskot Íslands á sviði jarðvarma.

26.5.2011

Ķslenska fjįrmįlakerfiš: Žekking sem ekki mį glatast

Žótt hraður vöxtur og fjármálakrísa hafi orðið stærstu fjármálstofnunum landsins að falli má lítið land eins og Ísland ekki við því að þekking og reynsla starfsmanna í fjármálageiranum - og fleiri í tengdum atvinnugreinum -  glatist.

24.5.2011

Greišsludreifing ašflutnings- og vörugjalda framlengd śt įriš

Į þriðjudaginn síðasta samþykkti Alþingi breytingar á lögum til að opna fyrir greiðsludreifingu aðflutnings- og vörugjalda út árið. Lögin eru hluti af aðgerðum stjórnvalda í tengslum við nýgerða kjarasamninga.

24.5.2011

Nišurskuršur eša skattahękkanir?

Kristín Pétursdóttir, forstjóri Auður Capital, fjallar í grein um rannsókn á áhrifum niðurskurðar og skattahækkana á hagvöxt og skuldastöðu þjóða. Hún bendir á að aðgerðir sem byggjast á skattalækkunum frekar en auknum útgjöldum séu líklegri til að örva hagvöxt.

23.5.2011

Arfleifš Oz

Margrét Dóra Ragnarsdóttir og Stefán Baldur Árnason, fyrrverandi OZ-arar, fjalla í grein um söguna af OZ og þau áhrif sem stofnun og starfsemi OZ hafði á sprotaheiminn á Íslandi. Þau birta ættartré OZ sem sýnir þau fjölmörgu fyrirtæki sem eiga rætur að rekja til sprotafyrirtækisins.

23.5.2011

IMD samkeppnishęfni: Tilefni til hóflegrar bjartsżni

IMD viðskiptaháskólinn metur árlega samkeppnishæfi  um 60 landa og hefur Ísland verið á þessum lista frá árinu 1997. Ef gengi Íslands á tímabilinu er skoðað má sjá áhugaverða þróun. Frá árinu 1997 til 2000 batnaði samkeppnishæfni landsins umtalsvert og var sú framför drifin áfram af ...

20.5.2011

Skattkerfiš: Breytingar til batnašar

Undanfarin misseri hafa stjórnvöld staðið fyrir víðtækum breytingum á íslenska skattkerfinu, sem flestar hafa falið í sér hamlandi áhrif á atvinnulíf og letjandi áhrif á athafnasemi fólks. Á heimasíðu Viðskiptáraðs má finna yfirlit yfir helstu skattkerfisbreytingar sem átt hafa sér stað á síðastliðnum þremur árum.

20.5.2011

Öflugir innvišir ekki sjįlfsagšir

Ný úttekt IMD viðskiptaháskólans á samkeppnishæfni Íslands sýnir að þremur af fjórum meginþáttum úttektarinnar hefur hrakað umtalsvert frá hruni. Einungis einn af fjórum meginþáttum, samfélagslegir innviðir, telst enn til styrkleika, en þar situr Ísland í 9. sæti listans. En þessum þætti er einnig ógnað.

19.5.2011

Markašsrįšandi staša og beiting samkeppnislaga

Viðskiptaráð Íslands, Logos lögmannsþjónusta, Háskólinn í Reykjavík og Lex lögmannsstofa stóðu fyrir ráðstefnu í morgun um samkeppnismál sem fram fór í Hörpu. Fjöldi manns sótti ráðstefnuna þar sem fjallað var m.a. um markaðsráðandi stöðu og beitingu samkeppnislaga, úrræði Samkeppniseftirlitsins og með hvaða hætti brot eru metin.

19.5.2011

Ekki fleiri Vestur-Ķslendinga

Samkvæmt úttekt IMD á samkeppnishæfni Íslands hefur hætta á spekileka (e. brain drain) aukist verulega á Íslandi á milli ára. Ísland hrapar á listanum hvað þennan málaflokk varðar og fellur mest um 25 sæti, niður í 31. sæti af 59, þegar kemur að hættu á brottflutningi rannsóknar- og þróunarstarfs.

18.5.2011

IMD World Competitiveness Yearbook - Ķsland 2011

Samkvæmt skýrslu IMD-viðskiptaháskólans í Sviss um samkeppnishæfni hagkerfa þá eru Hong Kong og Bandaríkin jöfn í efsta sæti listans að þessu sinni. Ísland er í 31. sæti sæti yfir samkeppnishæfustu hagkerfi heims og fellur um eitt sæti milli ára. Vandinn sem Ísland glímir við er umtalsverður. Efnahagsbati hagkerfisins hefur t.a.m. verið veikur sem kemur nokkuð skýrt fram í niðurstöðum könnunarinnar.

17.5.2011

Samkeppnishęfni stendur ķ staš

Samkvæmt skýrslu IMD-viðskiptaháskólans í Sviss um samkeppnishæfni hagkerfa þá eru Hong Kong og Bandaríkin jöfn í efsta sæti listans að þessu sinni. Ísland er í 31. sæti sæti yfir samkeppnishæfustu hagkerfi heims þetta árið og fellur um eitt sæti milli ára. Þau lönd sem eru með svipaða samkeppnishæfni og Ísland eru Tékkland í 30. sæti og Indland í 32. sæti.

17.5.2011

Sóknarfęri ķ heilbrigšisferšažjónustu

Gunnar Ármansson hjá Primacare fjallar í grein um þau tækifæri sem til staðar eru til eflingar heilbrigðisferðaþjónustu hérlendis. Hann bendir á sérstöðu Íslands sem nýta megi til að stuðla að hröðum vexti í greininni.

16.5.2011

Prófessor Richard Whish į rįšstefnu um samkeppnismįl

Viðskiptaráð Íslands, LOGOS lögmannsþjónusta, Háskólinn í Reykjavík og LEX lögmannsstofa standa fyrir ráðstefnu fimmtudaginn 19. maí næstkomandi í Hörpu. Meðal frummælenda eru Prófessor Richard Whish við King’s College í London og Simen Karlsen yfirhagfræðingur Copenhagen Economics.

13.5.2011

Fjölbreytni ķ stjórnum fyrirtękja

Ķ morgun fór fram alþjóðaráðstefna Félags kvenna í atvinnurekstri, Viðskiptaráðs Íslands og Samtaka atvinnulífsins á Hilton Reykjavík Nordica. Ráðstefnan var liður í verkefni sem hófst með samstarfssamningi árið 2009 milli Viðskiptaráðs, SA, FKA, Creditinfo og fulltrúa allra stjórnmálaflokka um að auka hlutdeild kvenna í viðskiptalífinu.

12.5.2011

Menntun og hagvöxtur

Įrið 1960 var landsframleiðsla á hvern íbúa í Finnlandi um 2/3 af því sem var á Nýja Sjálandi. Fjörutíu árum síðar höfðu hlutirnir snúist við: Tekjur á mann í Finnlandi höfðu þrefaldast og voru um fjórðungi meiri en á Nýja Sjálandi. Þær höfðu aukist um rúm 60%; árlegur hagvöxtur á mann í Finnlandi var að jafnaði 3% árin 1960-2000 en aðeins 1,2% á Nýja Sjálandi.

11.5.2011

Stušningsstušull atvinnulķfsins – auknar byršar į einkageirann

Žar sem vöxtur framleiðni er meiri innan einkageirans heldur en hjá hinu opinbera byggir hagsæld til lengri tíma á því að kraftar einkaframtaksins séu nýttir til hins ýtrasta. Einkageirinn er forsenda þess að hið opinbera geti veitt nauðsynlega þjónustu s.s. heilsugæslu og menntun, greitt atvinnuleysistryggingar til þeirra sem eru án vinnu og greitt lífeyri eða bætur til þeirra sem standa utan vinnumarkaðar.

11.5.2011

Skošun Višskiptarįšs: Velferšarkerfiš byggir į atvinnurekstri

Umræða undanfarinna missera um íslenskt atvinnulíf er um margt þversagnakennd. Gjarnan hefur verið gert lítið úr mikilvægi atvinnurekstrar fyrir heildarhagsmuni þjóðarinnar, oft með vísan í gjörningaveður síðustu missera og yfirleitt án efnislegra og tölulegra raka. Um leið liggur fyrir að kraftmikið atvinnulíf þarf til að framleiða þau verðmæti sem standa undir lífsgæðum.

9.5.2011

Rįšstefna: Markašsrįšandi staša & beiting samkeppnislaga

Viðskiptaráð Íslands, LOGOS lögmannsþjónusta, Háskólinn í Reykjavík og LEX lögmannsstofa standa fyrir ráðstefnu fimmtudaginn 19. maí næstkomandi í Hörpu. Efni ráðstefnunnar verður markaðsráðandi staða og beiting samkeppnislaga, hver úrræði Samkeppniseftirlitsins eru og hvernig þeim er beitt, með hvaða hætti brot eru metin og til hvers horft þegar viðurlög eru ákvörðuð.

6.5.2011

Kostnašur kreppunnar: 3.400 milljaršar?

Miðað við núverandi horfur í efnahagsmálum er hætt við því að batinn í hagkerfinu verði afar veikur í og kostnaðarsamur í alþjóðlegum samanburði. Í skoðun Viðskiptaráðs sem ber heitið Velferðartap án vaxtar- stöðnun ekki kostur er það m.a. reiknað út að uppsafnað velferðartap vegna tapaðs hagvaxtar getur numið allt að 3.400 milljörðum til 2020.

27.4.2011

Skošun Višskiptarįšs: Velferšartap įn vaxtar

Žegar fjallað er um endurreisn hagkerfisins er gjarnan horft til þess hvernig efla megi hagvöxt. Að undanförnu hefur meira farið fyrir orðum en gjörðum í þeim efnum, en til að ýta undir aðgerðir er hér gerð tilraun til að sýna með tölulegum dæmum fram á mikilvægi þess að hagkerfið vaxi úr kreppunni. Áður en lengra er haldið er þó rétt að fjalla um ástæðu þess að gjarnan er vísað til hagvaxtar sem lausnar á flestum þeim efnahagsleguvandamálum sem steðja að landinu.

15.4.2011

Staša efnahagsmįla į Ķslandi - uppfęrš skżrsla

Frá falli bankanna í október 2008 hefur íslenskt efnahagslíf gengið í gegnum margskonar breytingar. Vegna skorts á upplýsingagjöf til erlendra aðila hafa þeir sjaldnast heildaryfirsýn yfir þessar breytingar og stöðu mála. Því hefur Viðskiptaráð staðið fyrir útgáfu skýrslu á ensku um þróun efnahags- og stjórnmála hérlendis frá haustinu 2008 The Icelandic Economic Situation - Status report. Af henni má ráða að þrátt fyrir fjölmörg vandamál þá er hagkerfið enn stöndugt á flesta mælikvarða.

12.4.2011

Hvaš ungur nemur gamall temur

Síðastliðinn fimmtudag stóðu Viðskiptaráð Íslands og Innovit fyrir mentor kvöldverði undir yfirskriftinni Ný-sköpun-Ný-tengsl. Valdir „mentorar“ úr íslensku atvinnulífi buðu nokkrum fulltrúum nýrra fyrirtækja sem eru að stíga sín fyrstu skref í atvinnulífinu til kvöldverðar og var markmið kvöldsins að skapa áhugaverðan vettvang skoðanaskipta...

6.4.2011

Uppbyggileg umręša um Icesave

Į laugardag fer fram þjóðaratkvæðagreiðsla um Icesave samninginn sem samþykktur var af Alþingi í febrúar. Til að kynna mismunandi sjónarmið í tengslum við samninginn og áhrif hans á efnahagsþróun hér á landi stóð Viðskiptaráð Íslands fyrir opnum upplýsingafundi í gær á Hilton Reykjavík Nordica í samstarfi við Samtök atvinnulífsins, Samtök Iðnaðarins og Félag atvinnurekenda.

6.4.2011

Efnahagslegar afleišingar Icesave

Ķ gær stóðu Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins og Félag atvinnurekenda fyrir opnum fundi um Icesave þjóðaratkvæðagreiðsluna og vænt áhrif niðurstaðna hennar á efnahagsþróun. Um 130 manns sóttu fundinn sem haldinn á Hilton Reykjavík Nordica. Fundarstjóri var Elín Hirst.

4.4.2011

Opinn fundur: Icesave Jį/Nei - įhrif į efnahagsžróun

Žriðjudaginn 5. apríl næstkomandi standa Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins, Félag atvinnurekenda og Samtök iðnaðarins fyrir opnum fundi um Icesave þjóðaratkvæðagreiðsluna og vænt áhrif niðurstaðna hennar á efnahagsþróun. Fundurinn hefst kl. 16:00 og lýkur um 17:30, en aðgangur er endurgjaldslaus.

1.4.2011

Lįtum góša stjórnarhętti skipta mįli

Žegar stjórnarhætti fyrirtækja og leiðbeiningar á því sviði ber á góma vakna eflaust ekki miklar væntingar. Rifjast í því tilliti upp hjá einhverjum átak og innleiðing viðmiða um stjórnarhætti að erlendri fyrirmynd sem farið var í fyrir 5 árum, en markmið Viðskiptaráðs, Samtaka atvinnulífsins og Kauphallarinnar með því voru skýr.

29.3.2011

Flżta žarf afnįmi hafta

Síðastliðinn föstudag var kynnt skýrsla Seðlabanka Íslands fyrir efnahags- og viðskiptaráðherra um áætlun um afnám gjaldeyrishafta. Áætlunin sem slík er jákvæð enda til þess fallin að draga úr óvissu og auka trúverðugleika hagkerfisins. Þó er lengd þess tíma sem áætlað er að framlengja höftin gagnrýniverð, enda verður ekki séð að rúmlega fjögur ár þurfi til að afnema höft sem...

29.3.2011

Lįtum góša stjórnarhętti skipta mįli

Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, hélt erindi á árlegum degi félags innri endurskoðenda þann 25. mars síðastliðinn. Erindi Finns bar yfirskriftina Vinnubrögð atvinnulífsins, hvar stöndum við og hvert er ferð heitið? og fór hann þar yfir mikilvægi þess að stjórnir og stjórnendur tileinkuðu sér góða stjórnarhætti. Markviss eftirfylgni við leiðbeiningar á því sviði væri um margt svipuð því og fylgja öryggisvinnubrögðum í hættulegum atvinnurekstri.

25.3.2011

Lög um stušning viš nżsköpunarfyrirtęki hafa fengiš gręnt ljós

Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur lokið afgreiðslu á lögum um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki nr. 152/2009 og gefið grænt ljós á það ríkisaðstoðarkerfi sem í þeim lögum felast. Nú stendur nýsköpunarfyrirtækjum því til boða að sækja um skattafslátt sem getur numið allt að 20% af útlögðum kostnaði verkefnis og að hámarki 100 eða 150 milljónum króna.

24.3.2011

Beina brautin: fyrirtękin taki af skariš

Mikilvægt er að forsvarsmenn fyrirtækja í skuldavanda leiti lausna í samstarfi við sína fjármálastofnun. Þetta kom fram á upplýsingafundi sem fram fór á þriðjudag um stöðuna á úrvinnslu skulda lítilla og meðalstórra fyrirtækja innan Beinu brautarinnar. Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra opnaði fundinn...

23.3.2011

Fjįrfestingažing nżsköpunarfyrirtękja

Næstkomandi föstudag, 25. mars 2011, fer fram þrettánda Seed Forum Iceland fjárfestaþingið en það var fyrst haldið árið 2005. Flest framsæknustu sprotafyrirtæki landsins hafa tekið þátt í þinginu og hefur þátttaka skilað góðum árangri. Mörgum þeirra hefur tekist að afla sér hlutafjár í gegnum Seed Forum Iceland og á sambærilegum ráðstefnum erlendis.

22.3.2011

Beina brautin: Eyšum óvissu vegna gengistryggšra lįna

Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, ræddi í morgun um gengistryggð lán á sameiginlegum fundi um Beinu brautina á Grand hótel. Að fundinum stóðu Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins, Samtök fjármálafyrirtækja, Félag atvinnurekenda, efnahags- og viðskiptaráðuneytið og fjármálaráðuneytið, en markmiðið var að ræða framvindu Beinu brautarinnar...

22.3.2011

Endurskipulagning skulda forsenda efnahagsbata

Ķ morgun fór fram opinn upplýsingafundur um stöðuna á úrvinnslu skulda lítilla og meðalstórra fyrirtækja innan Beinu brautarinnar. Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, opnaði fundinn. Tók hann sérstaklega fram hversu mikilvægt samkomulag sem þetta er þegar kemur að því að greiða úr skuldum fyrirtækja...

20.3.2011

Opinn fundur um Beinu brautina: Fyrirtękin taki frumkvęšiš

Žriðjudaginn 22. mars næstkomandi standa Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins, Samtök fjármálafyrirtækja, Félag atvinnurekenda, efnahags- og viðskiptaráðuneytið og fjármálaráðuneytið fyrir morgunverðarfundi til að ræða framvindu Beinu brautarinnar. Þátttaka er endurgjaldslaus.

16.3.2011

Hafa skattar hękkaš eša lękkaš?

Ķ Markaði Fréttablaðsins miðvikudaginn 16. febrúar skrifaði Indriði H. Þorláksson, fyrrverandi aðstoðarmaður og núverandi ráðgjafi fjármálaráðherra í skattamálum, pistil undir yfirskriftinni Furðuskrif Viðskiptaráðs um skatta. Þar vísar hann til greinar undirritaðs í sama blaði frá 2. febrúar og vekur það helst furðu Indriða að því sé haldið fram að skattar hafi hækkað á Íslandi síðustu misseri.

15.3.2011

Ķ sķšasta sinn: greišsludreifing ašflutnings- og vörugjalda

Efnahags- og skattanefnd hefur lagt fram breytingar á lögum vegna greiðsludreifingar aðflutnings- og vörugjalda fyrir gjalddaganna 15. mars og 15. apríl. Málið hefur verið afgreitt sem lög og tekur því gildi í dag. Í máli formanns nefndarinnar á Alþingi í gær kom fram að samstaða væri í nefndinni um að...

11.3.2011

Ekki frekari greišsludreifing ašflutnings- og vörugjalda

Į síðustu misserum hafa stjórnvöld boðið upp á greiðsludreifingu aðflutnings- og vörugjalda sem úrræði til aðstoðar fyrirtækjum í lausafjárvandræðum. Greiðsludreifing þessi var sett á af hálfu fjármálaráðuneytisins, og stóð síðast til boða vorið 2010. Í meðförum efnahags- og skattanefndar á frumvarpi um breytingar á ýmsum lagaákvæðum um...

9.3.2011

Monismania į Ķslandi

Engum dylst að undanfarin misseri hafa verið Íslendingum erfið. Heilt hagkerfi er enn í uppnámi eftir fall bankakerfisins og viðfangsefnin ærin, enda ríkja hér fjórar kreppur; fjármála, skulda, gjaldmiðils og stjórnmála. Engar töfralausnir eru til, heldur þarf að marka stefnu, skilgreina markmið og vinna skipulega að því að ná þeim.

3.3.2011

Rśmlega 50% fyrirtękja ķ samkeppni viš hiš opinbera

Į þeim tíma sem liðinn er frá bankahruni hafa hlutfallsleg umsvif hins opinbera stóraukist. Nú er svo komið að rúmlega 50% fyrirtækja telja sig vera í samkeppni við hið opinbera með beinum eða óbeinum hætti.  Það er áhyggjuefni að fyrir einungis ári síðan þá töldu um 40% forsvarsmanna sig vera í samkeppni við opinbera aðila og fara umsvif hins opinbera á samkeppnismarkaði því enn vaxandi.

28.2.2011

Śttekt į stjórnarhįttum fyrirtękja

Į Viðskiptaþingi, miðvikudaginn 16. febrúar síðastliðinn, tilkynnti Tómas Már Sigurðsson, formaður Viðskiptaráðs, um undirritun samstarfssamnings milli VÍ, SA, NASDAQ OMX og Rannsóknarmiðstöðvar um stjórnarhætti við Háskóla Íslands. Markmið þessa samnings er að bæta eftirfylgni fyrirtækja við leiðbeiningar um góða stjórnarhætti.

28.2.2011

Efnahagsstofa atvinnulķfsins - Bętum hagtölur

Ķ litlu hagkerfi eins og Íslandi mætti ætla að auðvelt væri að nálgast góðar upplýsingar um helstu hagstærðir. Svo er hins vegar ekki, en all nokkrir annmarkar eru á söfnun, gerð og birtingu mikilvægra upplýsinga um stöðu og þróun hagkerfisins. Hefur jafnvel verið komist svo að orði að yfirleitt sé erfitt að spá um framtíð...

25.2.2011

Fyrirtękjagįtt eykur gagnsęi

Į Viðskiptaþingi sem haldið var á miðvikudaginn í síðustu viku opnaði Viðskiptaráð á vef sínum svokallaða Fyrirtækjagátt, þar sem safna á miðlægt nokkrum grunnupplýsingum um rekstur stærstu fyrirtækja landsins. Gáttin, sem er afurð Umbótaþings ráðsins, hefur þann megintilgang að auka gagnsæi í viðskiptalífinu og hvetja fyrirtæki um leið til að efla upplýsingagjöf.

16.2.2011

Višskiptažing 2011: Fimm įherslur til framfara

Ķ ræðu sinni á árlegu Viðskiptaþingi Viðskiptaráðs, sem nú stendur yfir á Hilton Reykjavík Nordica, sagði Hrund Rudólfsdóttir, framkvæmdastjóri starfsþróunarsviðs Marels, stöðu hagkerfisins um margt hagfellda miðað við áföll undanfarinna missera. Landið byggi yfir gnægð auðlinda, óspilltri náttúru, orku í fallvötnum og jarðhita og hafsvæði sem er gífurleg auðsuppspretta.

16.2.2011

Višskiptažing 2011: Nżtum reynsluna

Į Viðskiptaþingi Viðskiptaráðs, sem fram fer nú á Hilton Reykjavík Nordica, gerði Hrund Rudólfsdóttir, framkvæmdastjóri starfsþróunarsviðs Marels, yfir mikilvægi reynslunnar. Sagði hún þekkingu sem yrði til úti í atvinnulífinu ekki leika síðra hlutverk en formleg menntun. Mikil verðmæti fælust í reynslunni og hana þyrfti að virða, nýta og varðveita. Nefndi hún söguna af OZ í þessu ljósi.

16.2.2011

Višskiptažing 2011: Mörg tękifęri til aš skapa veršmęti og velferš į Ķslandi

Hrund Rudolfsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Marels, fór í ræðu sinni á Viðskiptaþingi Viðskiptaráðs, sem stendur nú yfir á Hilton Reykjavík Nordica yfir tækifærin til vaxtar sem leynast víða. Sagði Hrund þau tengjast ríkulegum orkuauðlindum, sjó og stórbrotinni náttúru.

16.2.2011

Višskiptažing 2011: Nįmsstyrkir Višskiptarįšs afhentir

Į árlegu Viðskiptaþingi Viðskiptaráðs, sem fer fram núna á Reykjavík Hilton Nordica, afhenti Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra styrki námsstyrki Viðskiptaráðs Íslands.

16.2.2011

Višskiptažing 2011: Vöxtur greina sem byggja į hafinu

Į Viðskiptaþingi var sérstaklega fjallað um þá atvinnustarfsemi sem byggir á og tengist auðlindum sjávar, en það gerðu þeir Eggert Benedikt Guðmundsson frá HB Granda, Jón Ingi Björnsson frá Trackwell og Jóhann Jónasson frá 3X Technology. 

16.2.2011

Višskiptažing 2011: Ķsland bżšur uppį fjölmörg tękifęri

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, fjallaði um stöðu efnahagslífsins og mikilvægi þess að horfa fram á veg á árlegu Viðskiptaþingi Viðskiptaráðs sem stendur nú yfir. Ráðherra sagði Ísland bjóða uppá fjölmörg tækifæri, sem þyrfti að nýta af skynsemi. Nú sem aldrei fyrr þyrfti athafnafólk til að grípa tækifærin, þyrfti samtakamátt. Stöðugleiki í efnahagsmálum, sem nú væri í fyrsta skipti í mörg ár innan seilingar, skapaði grundvöll fyrir þá sókn.

15.2.2011

Višskiptažing 2011: Orkan, leišandi afl ķ sköpun tękifęra

Orkan er sterkur grunnur til að byggja atvinnugreinar á og öflugur grunnur til að rækta á ný tækifæri og nýjar atvinnugreinar. Þetta voru þeir aðilar sammála sem fjölluðu um viðfangsefnið orka á árlegu Viðskiptaþingi Viðskiptaráðs, sem fer fram á Hilton Reykjavík Nordica, en það voru þau Rannveig Rist hjá Rio Tinto Alcan, Skúli Mogensen, fjárfestingafélagið Títan og Eyjólfur Árni Rafnsson hjá Mannvit.

15.2.2011

Višskiptažing 2011: Heilsa į grunni nįttśru

Eitt af umræðuefnum árlegs Viðskiptaþings Viðskiptaráðs, sem nú er haldið á Hilton Reykjavík Nordica, var náttúran og þau tækifæri sem felast í henni. Þrír einstaklingar, úr mismunandi áttum, fluttu erindi. Þetta voru þau Björn Zoega forstjóri Landspítalans, Gunnar Ármannsson hjá Primacare og Perla Björk Egilsdóttir hjá SagaMedica og jafnframt formaður Samtaka heilbrigðisiðnaðarins.

15.2.2011

Višskiptažing 2011: Endurreisnin samstarfsverkefni

Tómas Már Sigurðsson, formaður Viðskiptaráðs, ræddi í setningarræðu sinni á árlegu Viðskiptaþingi ráðsins, sem nú stendur yfir á Hilton Reykjavík Nordica, um mikilvægi víðtæks samstarfs fyrir framvindu endurreisnarinnar.

15.2.2011

Višskiptažing 2011: Įbyrgš višskiptalķfs og verkefni Višskiptarįšs

Į árlegu Viðskiptaþingi Viðskiptaráðs, sem nú stendur yfir á Hilton Reykjavík Nordica, ræddi Tómas Már Sigurðsson, formaður ráðsins, m.a. um niðurstöður viðhorfskönnunar sem ráðið lét framkvæma í aðdraganda þingsins. Ríflega helmingur þeirra nefndi laskað orðspor atvinnulífs. Sagði Tómas augljóst að álitshnekkir sem atvinnulíf landsmanna hefur orðið fyrir gerði endurreisnina erfiðari.

15.2.2011

Višskiptažing 2011: Tękifęri til aš gera betur

Ķ viðhorfskönnun sem Viðskiptaráð lét vinna í aðdraganda Viðskiptaþings kom m.a. fram í svörum níu af hverjum tíu þátttakenda að stjórnvöld og stefna þeirra í skattamálum væri það sem helst stæði í veg fyrir endurreisn hagkerfisins. Alls tóku þátt í könnuninni hátt í á fjórða hundrað forsvarsmenn fyrirtækja og gerði Tómas Már Sigurðsson, formaður Viðskiptaráðs, niðurstöður hennar að umfjöllunarefni í setningaræðu sinni á Viðskiptaþingi, sem stendur nú yfir á Hilton Reykjavík Nordica.

15.2.2011

Višskiptažing 2011 fer fram į morgun - skrįningu lżkur ķ dag

Į morgun, miðvikudaginn 16. febrúar, fer fram árlegt Viðskiptaþing Viðskiptaráðs Íslands. Í ár er þingið haldið undir yfirskriftinni „Tökumst á við tækifærin - Atvinnulíf til athafna“, en umfjöllunarefni þess eru þau fjölbreyttu tækifæri sem byggja á grunnstoðum íslensks atvinnulífs. Greinilegt er að uppbyggileg skilaboð þingsins leggjast vel í forsvarsmenn viðskiptalífsins, en skráning á þingið hefur gengið vonum framar.

10.2.2011

Vķša tękifęri til veršmętasköpunar

Forsvarsmenn stærstu fyrirtækja landsins telja að tækifæri til verðmætasköpunar í íslensku atvinnulífi á næstu 10 árum séu fjölmörg, en þó mest í orkugeira og ferðaþjónustu. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunar sem fyrirtækið Maskína framkvæmdi fyrir Viðskiptaráð dagana 13.-31. janúar 2011.

10.2.2011

Góšur félagi fallinn frį

Fyrr í þessari viku bárust þau sorglegu tíðindi að Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar Íslands og stjórnarmaður í Viðskiptaráði, væri látinn. Þórður hafði um árabil verið afar virkur í starfi Viðskiptaráðs og er þar mikið skarð fyrir skildi, í starfi ráðsins en ekki síður fyrir íslenskt atvinnulíf. Þórðar verður minnst sem góðs félaga og vinar sem fékk miklu áorkað í þágu íslensk samfélags á of stuttri lífsleið.Stjórn og starfsfólk Viðskiptaráðs vottar aðstandendum Þórðar einlæga samúð á þessum erfiða tíma.

7.2.2011

Atvinnulķf til athafna

Žann 16. febrúar næstkomandi heldur Viðskiptaráð Íslands árlegt Viðskiptaþing undir yfirskriftinni „Tökumst á við tækifærin - Atvinnulíf til athafna“. Umfjöllunarefni Viðskiptaþings 2011 eru þau fjölbreyttu tækifæri sem byggja á grunnstoðum íslensks atvinnulífs. Fulltrúar bæði gamalgróinna og nýsprottinna fyrirtækja munu kynna...

3.2.2011

Vegna rķkisįbyrgšar į Icesave skuldbindingum

Allt frá bankahruni hefur mikil umræða átt sérstað um ríkisábyrgð á skuldbindingum vegna Icesave innlánsreikninganna Landsbankans í Bretlandi og Hollandi. Tvívegis hafa lög verið samþykkt frá Alþingi en þrátt fyrir það er deilan óleyst. Eins og kynnt hefur verið liggja nú fyrir samningsdrög á milli Tryggingasjóðs innistæðueiganda og íslenska ríkisins við Bretland annars vegar og Holland hins vegar.

2.2.2011

Uppbygging skattkerfis

Ķ ítarlegri skýrslu Viðskiptaráðs frá í fyrra Fjármál hins opinbera – aðrar leiðir færar er gerð grein fyrir ósjálfbærri útgjaldaþróun hins opinbera undanfarin ár. Á um 30 árum hafa hlutfallsleg útgjöld hins opinbera hjá OECD löndum hækkað að meðaltali um 5% af landsframleiðslu á sama tíma og hækkunin er um 25% á Íslandi.

31.1.2011

Buršugt atvinnulķf - betri kjör

Hagstofan hefur nú birt tölur yfir gjaldþrot fyrirtækja á síðasta ári og staðfest þar með grun margra um að endurskipulagningarferlið er of skammt á veg komið. Horfandi á tölur um gjaldþrotamet og nýlega úttekt Creditinfo á alvarlegri stöðu fyrirtækja á landsbyggðinni eru tækifæri til bjartsýni vandfundin.

28.1.2011

Višskiptažing 2011 - Skrįning er hafin

Įrlegt Viðskiptaþing Viðskiptaráðs fer fram miðvikudaginn 16. febrúar næstkomandi. Umfjöllunarefni þingsins í ár eru þau fjölbreyttu tækifæri sem byggja á grunnstoðum íslensks atvinnulífs ásamt samhengi atvinnugreina. Breiður hópur forsvarsmanna úr atvinnulífinu mun leggja umræðunni lið og fjalla um tækifærin og...

27.1.2011

Nįmsstyrkir VĶ - Umsóknarfrestur rennur śt į föstudag

Viðskiptaráð tekur virkan þátt í uppbyggingu menntunar og er bakhjarl bæði Verzlunarskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík í gegnum Sjálfseignarstofnun Viðskiptaráðs Íslands um viðskiptamenntun (SVÍV). Ráðið hefur um árabil veitt styrki til framhaldsnáms erlendis og verða veittir fjórir styrkir í ár. Nú þegar hefur borist fjöldi umsókna...

21.1.2011

Višskiptažing 2011 - Tökumst į viš tękifęrin

Į síðustu þremur Viðskiptaþingum hefur Viðskiptaráð fjallað um rekstrarumhverfi og samkeppnishæfni hér á landi, endurreisnarstarf og áherslur til framtíðar ásamt stefnu í gjaldeyris- og peningamálum. Því miður hafa margir þessara þátta breyst lítið til hins betra og því væri vel unnt að endurtaka skilaboðin.

21.1.2011

Hentistefna eša atvinnustefna?

Umræðan undanfarnar vikur af hálfu forsvarsmanna ríkisstjórnarinnar í málefnum HS Orku hefur verið einkennileg, svo ekki sé meira sagt. Í stað þess að fara að niðurstöðu lögskipaðrar nefndar er taldi eignarhaldið samræmast íslenskri löggjöf, sem var síðar staðfest af annarri nefnd, þá virðist stefnan sett á...

20.1.2011

Įbyrgš Višskiptarįšs

Ķ rúm 93 ár hefur Viðskiptaráð Íslands tekið virkan þátt í umræðu um íslenskt atvinnulíf og þá umgjörð sem því er búin. Skýr grunngildi, sem meitluð eru í lög ráðsins, hafa vísað veginn. Þau fela í sér framtíðarsýn um öflugt atvinnulíf byggt á framtaki einstaklinga, lágmörkun ríkisrekstrar, kröftugum markaðsbúskap og alþjóðlegri samkeppnishæfni.

19.1.2011

Skošun VĶ: Įbyrgš Višskiptarįšs

Ķ kjölfar falls bankakerfisins haustið 2008 hefur Íslendingum verið ofarlega í huga að gera upp og skilja hjá hverjum ábyrgð á þeirri atburðarás liggur. Er það bæði rétt og nauðsynlegt svo hægt sé að læra af því sem gerðist, breyta starfsháttum og tryggja að samskonar ástand verði ekki aftur ríkjandi.

14.1.2011

Vel heppnašur skattadagur į žrišjudag

Į þriðjudag fór fram árlegur skattadagur Deloitte, Viðskiptaráðs, Samtaka atvinnulífsins og Viðskiptablaðs Morgunblaðsins. Uppselt var á fundinn og komust færri að en vildu, en Finnur Oddsson framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs kom inn á þennan áhuga í erindi sínu og sagði: „það er ekki gott að mikill áhugi sé á skattamálum, það er til marks um hversu margir deila áhyggjum af skattkerfinu.“

14.1.2011

Višskiptažing 16. febrśar - Taktu daginn frį!

Við hvetjum alla til að taka frá seinni part dags 16. febrúar, en þá fer fram árlegt Viðskiptaþing Viðskiptaráðs Íslands. Þingið var fyrst haldið árið 1975 og hefur það í gegnum árin stuðlað að mikilvægri umræðu um stöðu og horfur íslensks viðskipta- og efnahagslífs. Að þessu sinni verður efni þingsins tækifærin í atvinnulífinu og verður reynt að draga fram þá möguleika sem má finna hér á landi. Taktu daginn frá!

11.1.2011

Skattkerfiš žarf aš skapa hvata til uppbyggingar hagkerfisins

Verulegar breytingar hafa átt sér stað á skattkerfinu hér á landi síðustu tvö árin og hefur því í raun verið umturnað frá því sem áður var. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Finns Oddssonar framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs á skattadegi Deloitte sem fram fór á Grand Hótel í morgun.

6.1.2011

Skattadagur Deloitte, Višskiptarįšs o.fl.

Skattadagur Deloitte, í samstarfi við Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Viðskiptablað Morgunblaðsins, verður haldinn að Grand Hótel Reykjavík þriðjudaginn 11. janúar 2011. Fundurinn stendur frá klukkan 8.15 til 10.15. Dagskrá skattadagsins er eftirfarandi...


Póstlisti VĶ
Ašild aš Višskiptarįši
Višskiptarįš į FB
Sękja um ATA skķrteini

Slóšin žķn:

Um VĶ » Fréttir

Flżtileišir

English flag

Mynd


Stjórnborš

Minna letur Stęrra letur Hamur fyrir sjónskerta