Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

31.1.2011

Burðugt atvinnulíf - betri kjör

Hagstofan hefur nú birt tölur yfir gjaldþrot fyrirtækja á síðasta ári og staðfest þar með grun margra um að endurskipulagningarferlið er of skammt á veg komið. Horfandi á tölur um gjaldþrotamet og nýlega úttekt Creditinfo á alvarlegri stöðu fyrirtækja á landsbyggðinni eru tækifæri til bjartsýni vandfundin.

28.1.2011

Viðskiptaþing 2011 - Skráning er hafin

Árlegt Viðskiptaþing Viðskiptaráðs fer fram miðvikudaginn 16. febrúar næstkomandi. Umfjöllunarefni þingsins í ár eru þau fjölbreyttu tækifæri sem byggja á grunnstoðum íslensks atvinnulífs ásamt samhengi atvinnugreina. Breiður hópur forsvarsmanna úr atvinnulífinu mun leggja umræðunni lið og fjalla um tækifærin og...

27.1.2011

Námsstyrkir VÍ - Umsóknarfrestur rennur út á föstudag

Viðskiptaráð tekur virkan þátt í uppbyggingu menntunar og er bakhjarl bæði Verzlunarskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík í gegnum Sjálfseignarstofnun Viðskiptaráðs Íslands um viðskiptamenntun (SVÍV). Ráðið hefur um árabil veitt styrki til framhaldsnáms erlendis og verða veittir fjórir styrkir í ár. Nú þegar hefur borist fjöldi umsókna...

21.1.2011

Viðskiptaþing 2011 - Tökumst á við tækifærin

Á síðustu þremur Viðskiptaþingum hefur Viðskiptaráð fjallað um rekstrarumhverfi og samkeppnishæfni hér á landi, endurreisnarstarf og áherslur til framtíðar ásamt stefnu í gjaldeyris- og peningamálum. Því miður hafa margir þessara þátta breyst lítið til hins betra og því væri vel unnt að endurtaka skilaboðin.

21.1.2011

Hentistefna eða atvinnustefna?

Umræðan undanfarnar vikur af hálfu forsvarsmanna ríkisstjórnarinnar í málefnum HS Orku hefur verið einkennileg, svo ekki sé meira sagt. Í stað þess að fara að niðurstöðu lögskipaðrar nefndar er taldi eignarhaldið samræmast íslenskri löggjöf, sem var síðar staðfest af annarri nefnd, þá virðist stefnan sett á...

20.1.2011

Ábyrgð Viðskiptaráðs

Í rúm 93 ár hefur Viðskiptaráð Íslands tekið virkan þátt í umræðu um íslenskt atvinnulíf og þá umgjörð sem því er búin. Skýr grunngildi, sem meitluð eru í lög ráðsins, hafa vísað veginn. Þau fela í sér framtíðarsýn um öflugt atvinnulíf byggt á framtaki einstaklinga, lágmörkun ríkisrekstrar, kröftugum markaðsbúskap og alþjóðlegri samkeppnishæfni.

19.1.2011

Skoðun VÍ: Ábyrgð Viðskiptaráðs

Í kjölfar falls bankakerfisins haustið 2008 hefur Íslendingum verið ofarlega í huga að gera upp og skilja hjá hverjum ábyrgð á þeirri atburðarás liggur. Er það bæði rétt og nauðsynlegt svo hægt sé að læra af því sem gerðist, breyta starfsháttum og tryggja að samskonar ástand verði ekki aftur ríkjandi.

14.1.2011

Vel heppnaður skattadagur á þriðjudag

Á þriðjudag fór fram árlegur skattadagur Deloitte, Viðskiptaráðs, Samtaka atvinnulífsins og Viðskiptablaðs Morgunblaðsins. Uppselt var á fundinn og komust færri að en vildu, en Finnur Oddsson framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs kom inn á þennan áhuga í erindi sínu og sagði: „það er ekki gott að mikill áhugi sé á skattamálum, það er til marks um hversu margir deila áhyggjum af skattkerfinu.“

14.1.2011

Viðskiptaþing 16. febrúar - Taktu daginn frá!

Við hvetjum alla til að taka frá seinni part dags 16. febrúar, en þá fer fram árlegt Viðskiptaþing Viðskiptaráðs Íslands. Þingið var fyrst haldið árið 1975 og hefur það í gegnum árin stuðlað að mikilvægri umræðu um stöðu og horfur íslensks viðskipta- og efnahagslífs. Að þessu sinni verður efni þingsins tækifærin í atvinnulífinu og verður reynt að draga fram þá möguleika sem má finna hér á landi. Taktu daginn frá!

11.1.2011

Skattkerfið þarf að skapa hvata til uppbyggingar hagkerfisins

Verulegar breytingar hafa átt sér stað á skattkerfinu hér á landi síðustu tvö árin og hefur því í raun verið umturnað frá því sem áður var. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Finns Oddssonar framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs á skattadegi Deloitte sem fram fór á Grand Hótel í morgun.

6.1.2011

Skattadagur Deloitte, Viðskiptaráðs o.fl.

Skattadagur Deloitte, í samstarfi við Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Viðskiptablað Morgunblaðsins, verður haldinn að Grand Hótel Reykjavík þriðjudaginn 11. janúar 2011. Fundurinn stendur frá klukkan 8.15 til 10.15. Dagskrá skattadagsins er eftirfarandi...


Póstlisti VÍ
Aðild að Viðskiptaráði
Viðskiptaráð á FB
Sækja um ATA skírteini

Slóðin þín:

Um VÍ » Fréttir

Flýtileiðir

English flag

Mynd


Stjórnborð

Minna letur Stærra letur Hamur fyrir sjónskerta