Fréttir
22.12.2011
Andlát: Gísli V. Einarsson, fyrrum formaður VÍ
Gísli V. Einarsson, fyrrum formaður Viðskiptaráðs Íslands (áður Verslunarráð Íslands) er fallinn frá 80 ára að aldri. Hann fæddist 14. júní árið 1931 og lést hinn 20. desember sl. Gísli var kjörinn formaður ráðsins árið 1974.
16.12.2011
Fundur um gjaldeyrishöft: Afnám á einu ári?
Í gærmorgun stóðu Viðskiptaráð Íslands og Samtök iðnaðarins fyrir vel sóttum morgunverðarfundi um gjaldeyrishöftin. Á fundinum var gefin út ný skýrsla Viðskiptaráðs um efnahagsleg áhrif haftanna, en í henni er m.a. lagt mat á kostnað atvinnulífs af umgengni við höftin. Einnig var kynnt tillaga vinnuhóps sérfræðinga úr röðum atvinnulífs og háskóla að...
16.12.2011
Eldhugar á stefnumóti við stjórnendur
Þriðjudaginn 6. desember stóðu Viðskiptaráð Íslands og Innovit fyrir mentor kvöldverði undir yfirskriftinni Ný-sköpun-Ný-tengsl. Valdir „mentorar“ úr íslensku atvinnulífi buðu til kvöldsins nokkrum fulltrúum nýrra og vaxandi fyrirtækja sem eru rétt að byrja slíta barnsskónum í atvinnulífinu.
15.12.2011
Gjaldeyrishöftin: Ný skýrsla og afnámsáætlun
Nýverið kom út ný skýrsla Viðskiptaráðs um gjaldeyrishöftin þar sem fjallað er um kostnaðinn sem af þeim hlýst og efnahagsleg áhrif þeirra. Tilgangur með útgáfu skýrslunnar er að ýta á ný við umræðu um gjaldeyrishöftin með því að varpa ljósi á margvíslega skaðsemi þeirra fyrir íslenskt hagkerfi verði þau of lengi við lýði.
12.12.2011
Námsstyrkir Viðskiptaráðs til framhaldsnáms erlendis
Viðskiptaráð tekur virkan þátt í uppbyggingu menntunar og er bakhjarl bæði Verzlunarskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík. Ráðið hefur jafnframt um árabil veitt styrki til framhaldsnáms erlendis og eru námsstyrkir Viðskiptaráðs 2012 nú auglýstir til umsóknar.
6.12.2011
Erlend fjárfesting skapar þekkingu, störf og verðmæti
Lítil stefnumótun hefur átt sér stað hér á landi um beina erlenda fjárfestingu í gegnum tíðina, og því mikilvægt að stjórnvöld marki slíka stefnu til frambúðar. Þetta segir Aðalsteinn Leifsson, lektor við viðskiptadeild HR, en hann var formaður starfshóps um stefnu stjórnvalda varðandi beina erlenda fjárfestingu á Íslandi.
5.12.2011
Þurfum við erlenda fjárfestingu?
Nú um helgina hafa ráðherrar ríkisstjórnarinnar skipst opinberlega á skoðunum um mál sem tengjast erlendri fjárfestingu á Íslandi. Í þeim samskiptum virðist kristallast verulegur skoðanaágreiningur milli þeirra flokka sem að ríkisstjórninni standa, en þó er ekki annað hægt að lesa út úr samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar en...
1.12.2011
Arðrán eða ávinningur? Bein erlend fjárfesting og áhrif á endurreisn
Á þriðjudag í næstu viku (6. desember) standa Viðskiptaráð Íslands og Íslandsstofa fyrir morgunverðarfundi um áhrif beinnar erlendrar fjárfestingar á endurreisn íslensk hagkerfis og efnahagsþróun til framtíðar. Fundurinn er haldinn á Grand Hótel Reykjavík (Gullteig), hann hefst klukkan 8:15 og stendur til klukkan 10:00.
1.12.2011
Greiðslutryggingar: Góður árangur náðst en enn töluvert í land
Í kjölfar hruns efnahagskerfisins í október 2008 lokuðu stærstu erlendu greiðslutryggingarfélögin, Euler Hermes, Atradius og Coface, fyrir viðskipti við íslensk fyrirtæki. Eins og gefur að skilja olli þetta miklum vandræðum í viðskiptum fyrirtækja, sem nú þurftu að fyrirframgreiða vörusendingar eða...







