Fréttir
28.9.2011
Arðrán eða ávinningur?
Þótt þjóðir heims séu ólíkar um margt eigar flestar eitt sameiginlegt - að leggja mikið upp úr því að laða til sín beina erlenda fjárfestingu. Ísland er eitt þessara landa, en í samstarfsyfirlýsingu núverandi stjórnarflokka kemur fram að til að unnt sé að ná góðum og jöfnum hagvexti þurfi m.a. að stuðla að beinum erlendum fjárfestingum. Þannig er þetta í öllu falli í orði.
27.9.2011
Atradius opnar á greiðslutryggingar
Frá hausti 2008 hafa íslensk fyrirtæki, inn- og útflytjendur, lent í allnokkrum vandræðum með viðskiptalánatryggingar. Stærstu erlendu greiðslutryggingarfélögin, Atradius og Euler Hermes, hafa ekki verið reiðubúin til að gangast í ábyrgðir fyrir greiðslur frá íslenskum félögum sem hafa því neyðst til að greiða vörusendingar fyrirfram eða útvega aðrar kostnaðarsamar greiðslutryggingar á borð við bankaábyrgðir.
21.9.2011
Vaxtaákvörðun Seðlabankans skiljanleg
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað nú í morgun að halda vöxtum bankans óbreyttum. Standa daglánavextir bankans í 5,5% og innlánsvextir í 3,5%. Ákvörðun peningastefnunefndar er á skjön við spár nokkurra greiningaraðila, en búist hafði verið við 25-50 punkta hækkun.
9.9.2011
Hömlulaus höft
Þessa dagana hefur Alþingi til umræðu frumvarp um lögfestingu gjaldeyrishafta. Í gildi eru gjaldeyrishöft sem sett voru á með reglum útgefnum af Seðlabanka Íslands, með heimild í lögum um gjaldeyrismál. Heimildin var bundin við lengd efnahagsáætlunar Íslands gagnvart Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, en hún var framlengd fram á haust í samræmi við framlengingu á samstarfi stjórnvalda við sjóðinn.
2.9.2011
Ástæðulaust að óttast erlenda fjárfestingu
Ísland er í öðru sæti á lista yfir þau aðildarríki OECD sem hafa hvað mestar takmarkanir á beinni fjárfestingu erlendra aðila. Í fyrsta sæti er Kína, en á eftir Íslandi koma Rússland og Sádí-Arabía. Mikil umræða hefur upp á síðkastið skapast um erlenda fjárfestingu...







