Beint į leišarkerfi vefsins

Fréttir

16.5.2012

Bjartsżni į uppbyggingu hlutabréfamarkašar

„Traust á fjármálamarkaði er ekki sjálfgefið og eykst heldur ekki af sjálfu sér.“ Þetta kom fram í opnunarávarpi Knúts Þórhallssonar stjórnarformanns Deloitte á morgunverðarfundi um forsendur virks verðbréfamarkaðar sem fram fór í gær.

11.5.2012

Morgunveršarfundur į žrišjudag: Forsendur virks veršbréfamarkašar

Į þriðjudag (15. maí) fer fram annar fundur í fundarröð Deloitte, Kauphallarinnar og Viðskiptaráðs Íslands um mikilvægi virks verðbréfamarkaðar á Íslandi. Fundurinn er haldinn á 20. hæð í Turninum í Kópavogi frá klukkan 8.15 til 10.15.

11.5.2012

Nż stjórn Amerķsk-ķslenska višskiptarįšsins

Ķ gær var haldinn stofnfundur Amerísk-íslenska viðskiptaráðsins (AMÍS). Aðsókn að fundinum var afar góð og eru stofnfélagar ráðsins rúmlega 100 fyrirtæki úr ýmsum greinum atvinnulífsins auk fjölbreytts hóps einstaklinga.

7.5.2012

Stofnfundur Amerķsk-ķslenska višskiptarįšsins

Įkveðið hefur verið að endurvekja starfsemi Amerísk-íslenska viðskiptaráðsins (AMÍS) með það að markmiði að styrkja samskipti Íslands og Bandaríkjanna á sviði viðskipta, verslunar, menningar- og menntamála. Mikill áhugi er á að ráðið taki til starfa á ný til að stuðla að bættum samskiptum og til að greiða fyrir viðskiptum og efla samvinnu fyrirtækja í löndunum tveimur.

25.4.2012

Hvers virši eru nżjar greinar?

Stærsta auðlind íslensks atvinnulífs eru verðmætin sem felast í þekkingu, reynslu og hugviti starfsmanna framsækinna fyrirtækja. Þetta segir Gísli Hjálmtýsson, hjá Thule Investments, og kemur ennfremur inn á að rekstur gagnavera og þekkingarmiðaður iðnaður eru dæmi um nýjar greinar sem við Íslendingar höfum getu til að koma á fót og eru líklegar til skapa þau störf.

20.4.2012

Fiskveišistjórnunarfrumvörp: Umsögn Višskiptarįšs

Stjórn fiskveiða á Íslandi mun ávallt hafa afgerandi áhrif á efnahagsumsvif og almenn lífskjör. Tvö frumvörp sjávarútvegsráðherra um breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu og veiðigjaldi liggja nú fyrir, en við mat á þeim skiptir mestu að til grundvallar liggi samstaða um að viðhalda verðmætasköpun í undirstöðuatvinnugrein Íslendinga.

18.4.2012

Hvers virši eru góšir stjórnarhęttir?

Góðir stjórnarhættir snúast um að tryggja að þeir sem stjórnina skipa séu hæfir til starfans, geri sér grein fyrir til hvers af þeim er ætlast og hvar ábyrgð þeirra liggur. Um þetta fjallar Þóranna Jónsdóttir, framkvæmdastjóri við Háskólann í Reykjavík, og bendir hún á að óvönduð vinnubrögð stjórna geti haft alvarlegar afleiðingar.

16.4.2012

Skošun Višskiptarįšs: Öflugt atvinnulķf - Bętt lķfskjör

Umræða um hagvöxt hefur verið áberandi síðustu misseri. Þó að flestir virðast sammála um mikilvægi aukinna efnahagsumsvifa þá eru skiptar skoðanir á álitlegum leiðum til þess. Að auki hefur verið bent á að hagvaxtarmælingar taka ekki tillit til margra þátta sem telja má til lífsgæða og sum starfsemi ratar ekki þar inn þó hún myndi raunverulegan virðisauka.

11.4.2012

Hvers virši er matur?

Stefanía Katrín Karlsdóttir, hjá Íslenskri matorku, fjallar hér um þau tækifæri sem Íslendingar hafa til framleiðslu matvæla til útflutnings. Hún segir að stjórnmálamenn, stjórnsýsla, fyrirtæki, hagsmunasamtök og almenningur þurfi að sameinast um það markmið að Íslendingar verði þátttakendur í því stóra verkefni að framleiða matvæli fyrir erlenda markaði.

4.4.2012

Nżtt upplżsingaskjal į ensku um stöšu efnahagsmįla

Ķslenskt efnahagslíf hefur gengið í gegnum umtalsverðar breytingar síðustu fjögur ár. Á sama tíma hefur upplýsingagjöf til erlendra aðila verið af skornum skammti sem veldur því að mikilvægir hagsmunaaðilar íslenskra fyrirtækja og yfirvalda hafa of sjaldan heildarmyndina af orsökum efnahagskreppunnar og stöðu efnahagsmála, viðskiptalífs og stjórnmála almennt.

28.3.2012

Hvers virši er samkeppnisforskot?

Ķ þessari grein fjallar Helgi Anton Eiríksson, forstjóri Iceland Seafood International, um þær leiðir sem Ísland getur valið að fara í markaðssetningu á íslenskum fiski. Hann kemur m.a. inn á það að kröfuharðir neytendur úti í heimi eru ekki endilega að kalla eftir íslenskum fiski, heldur heilnæmum fiski sem mætir kröfum þeirra um bragðgæði, ábyrga meðhöndlun og áreiðanleika.

26.3.2012

Morgunveršarfundur: The good, the bad and the ugly

Įhugi á góðum stjórnarháttum hefur farið vaxandi síðustu misseri. Þrátt fyrir að flestir séu sammála um að góðir stjórnarhættir og skýr ábyrgð leiði til betri langtímaárangurs er ekki sjálfgefið að fyrirtæki nái að tileinka sér breytt verklag.

26.3.2012

Greišsludreifing opinberra gjalda lögfest

Ķ síðustu viku varð að lögum frumvarp sem kveður á um dreifingu gjalddaga á vörugjaldi og virðisaukaskatti vegna uppgjörstímabila á árinu 2012.

21.3.2012

Hvers virši er erlendur feršamašur?

Jónas Hagan, forstjóri Taxfree Worldwide, fjallar um hvað ferðamenn frá Kyrgystan, Malaví og Madagaskar eiga sameiginlegt. Í greininni kemur m.a. fram að á árinu 2010 var tollfrjáls verslun erlendra ferðamanna tæplega 5 milljarðar króna, en á því ári komu hingað til lands um 495 þúsund ferðamenn.

16.3.2012

Hvers virši er flugrekstur og feršažjónusta?

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group hf., fjallar um mikilvægi flugrekstrar og ferðaþjónustu fyrir íslenskt þjóðarbú. Hann bendir á að ætla má að afleiddar tekjur þjóðarbúsins af flugleiðum til Seattle og Denver nemi um 12 milljörðum króna á ári.

9.3.2012

Fjölbreytni ķ stjórnum og góšir stjórnarhęttir skipta mįli

Ķ gær fór fram fjölmennur morgunverðarfundur undir yfirskriftinni „Fjölbreytni í stjórnum og góðir stjórnarhættir skipta máli“ á Hilton Reykjavík Nordica. Að fundinum stóðu Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins, Félag kvenna í atvinnurekstri, Samtök verslunar og þjónustu, efnahags- og viðskiptaráðuneytið og NASDAQ OMX Iceland.

8.3.2012

Śttekt į stjórnarhįttum: Stefnir hf. til fyrirmyndar

Stefnir hf. er fyrsta fyrirtækið til að ljúka formlegu úttektarferli á stjórnarháttum fyrirtækja sem sett var á laggirnar á fyrrihluta árs 2011 með samstarfssamningi Viðskiptaráðs Íslands, Samtaka atvinnulífsins, NASDAQ OMX Iceland og Rannsóknarmiðstöðvar um stjórnarhætti við Háskóla Íslands.

8.3.2012

Nżjar leišbeiningar um stjórnarhętti fyrirtękja

Śt er komin ný útgáfa leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja, en að henni standa Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og NASDAQ OMX Iceland. Í þessari 4. útgáfu leiðbeininganna er að finna fjölmargar breytingar frá síðustu útgáfu, sem eiga það þó flestar sammerkt að vera formbreytingar fremur en viðamiklar efnisbreytingar.

15.2.2012

Višskiptažing 2012: Skżrsla Višskiptažings ašgengileg

Ķ skýrslu til Viðskiptaþings er fjallað nánar um efni þingsins, þ.e. Hvers virði er atvinnulíf?, þar sem m.a. er rýnt í tengsl atvinnulífs, hagvaxtar og lífskjara, uppruna hagvaxtar, hagstjórn síðustu áratuga, hagvaxtarþróun hérlendis í alþjóðlegu samhengi, samsetningu hagvaxtar og meginmarkmið hagstjórnar.

15.2.2012

Ašalfundur 2012: Nż stjórn Višskiptarįšs Ķslands

Į aðalfundi Viðskiptaráðs sem fram fór í morgun voru kynnt úrslit kosninga til formanns og stjórnar ráðsins fyrir tímabilið 2012-2014. Hreggviður Jónsson, forstjóri og aðaleigandi Veritas Capital hf., var kjörinn formaður Viðskiptaráðs.

15.2.2012

Višskiptažing 2012: Unnt aš auka veršmęti sjįvarafurša meš bęttu samstarfi

Į Viðskiptaþingi, sem nú stendur yfir, ræddi Þorsteinn Már Baldvinsson virði sjávarafurða og einblíndi þar á makríl. Fór hann m.a. yfir vinnslu makríls, veiðarnar og helstu markaði félagsins. Skiptar skoðanir hafa verið um fyrirkomulag makrílveiða síðustu misseri. Þannig hafa reglulega verið viðruð sjónarmið í þá átt að ríkið hafi átt að leigja kvótann, líkt og Færeyingar gerðu að hluta, í stað þess að úthluta honum undir núverandi kerfi. Fyrir vikið hefði ríkið orðið af milljarðatekjum.

15.2.2012

Višskiptažing 2012: Śttekt į hagvaxtar- og lķfskjarahorfum į Ķslandi

Į Viðskiptaþingi, sem nú stendur yfir, ræddi Hreggviður Jónsson, nýkjörinn formaður Viðskiptaráðs, um mikilvægi áætlunar fyrir Ísland um verðmætasköpun og lífskjör. Hreggviður sagði m.a. að án viðvarandi hagvaxtar myndu lífskjör hér á landi dragast fljótt aftur úr þeim löndum sem búa við stöðugan hagvöxt og verðmætasköpun.

15.2.2012

Višskiptažing 2012: Fatahönnun einskins virši ef ekki er hęgt aš reka fyrirtęki į Ķslandi

Hugrún Dögg Árnadóttur, framkvæmdastjóri KronKron, fjallaði á Viðskiptaþingi, sem nú stendur yfir, um virði hönnunar og þau tækifæri sem Íslendingum stendur til boða á því sviði. Nefndi hún sínar verslanir sem dæmi um hraðan vöxt hönnunar síðustu ár, en skóverslunin Kron var opnuð árið 2000 og haustið 2008 var fyrsta skólínan sett á markað. Í millitíðinni opnaði Hugrún fataverslunina KronKron árið 2004 og fyrsta fatalínan var sett á markað 2011.

15.2.2012

Višskiptažing 2012: Virši nżrra flugleiša į viš aflaveršmęti fimm togara

Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair, fjallaði á Viðskiptaþingi, sem nú stendur yfir, um umfang íslensks flugrekstrar og virði nýrrar flugleiða. Sagði hann m.a. ríflega 2 milljónir farþega fara um Ísland í millilandaflugi, 35.000 tonn í frakt, 18.000 brottfarir vera í millilandaflugi, 2.800 störf vera hérlendis í flugrekstri sem væru með 70% hærri meðaltalsframleiðni en á íslenskum vinnumarkaði og að Icelandair og starfsfólk þess hefðu greitt ríflega 7 ma. kr. í tekju- og launaskatta á síðasta ári.

15.2.2012

Višskiptažing 2012: Google og Facebook skošušu Ķsland

Gestur G. Gestsson, forstjóri Advania, fjallaði á Viðskiptaþingi, sem nú stendur yfir, um virði tenginga og þá helst gagnavera. Gagnaver er í grunninn bara hús, sagði Gestur, sem þarf gríðarlega mikið afl og er meðalgagnaver að kaupa rafmagn fyrir ca. 600 mkr. ári og bandvídd fyrir 700 mkr. á ári. Í gagnaveri verða til 20 bein störf og 100 afleidd störf.

15.2.2012

Višskiptažing 2012: Nįmsstyrkir Višskiptarįšs afhentir

Į árlegu Viðskiptaþingi Viðskiptaráðs, sem fer nú fram á Reykjavík Hilton Nordica, afhenti Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, námsstyrki Viðskiptaráðs. Af því tilefni sagði Katrín fulla ástæðu til bjartsýni á Íslandi og að það væri einkenni Íslendinga að takast á við vanda af bjartsýni. Að hennar mati væri líka gaman að sjá raunverulegan áhuga atvinnulífsins á að efla skólakerfið.

15.2.2012

Višskiptažing 2012: Heišursfélagar Višskiptarįšs śtnefndir

Į Viðskiptaþingi, sem nú stendur yfir, voru fimm fyrrum formenn og velunnarar Viðskiptaráðs sæmdir nafnbótinni Heiðursfélagi Viðskiptaráðs. Heiðursfélagi Viðskiptaráðs er sæmdarheiti sem veitt er mönnum er hafa lagt sérstaklega mikið af mörkum í þágu viðskiptafrelsis og framfara í atvinnulífinu. Katrín Pétursdótir, forstjóri Lýsis, tilkynnti um útnefninguna.

15.2.2012

Višskiptažing 2012: Umręšan snżst alltaf um skiptingu kökunnar, ekki stękkun hennar

Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, fjallaði á Viðskiptaþingi, sem nú stendur yfir, um virði sérstöðu Íslands sem hann sagði raunar frekar litla. Í reynd væri eina sérstaðan smæð Íslands og nefndi hann náttúruauðlindir sem eitt dæmi þar um. Við eigum ekki miklar auðlindir en ef þeim er deilt á alla Íslendinga þá eru þær ríkulegar.

15.2.2012

Višskiptažing 2012: Efla žarf stefnumótun og samstarf atvinnulķfs og stjórnvalda

Ķ ræðu sinni á Viðskiptaþingi, sem nú stendur yfir, sagði Tómas Már Sigurðsson formaður ráðsins að tækifæri Íslendinga væru nánast óþrjótandi. En hugsunarháttur og tíðarandi hafa umtalsverð áhrif á þau. Sagði hann að rétt eins og á árunum fyrir hrun, þar sem sló út í öfgar bjartsýni og kapps, þá hafi umræðan á undanförnum árum verið of neikvæð og niðurrifskennd. Þótt uppgjör við liðna tíð væri mikilvægt væri lærdómur hrunsins enn mikilvægari og það hvernig tekst að nýta hann til að bæta samfélagið, leikreglur þess og grunngerð.

15.2.2012

Višskiptažing 2012: Atvinnulķf undirstaša lķfskjara

Tómas Már Sigurðsson, fráfarandi formaður Viðskiptaráðs, fór í tilefni af 95 ára afmæli ráðsins stuttlega yfir sögu þess í ræðu sinni á Viðskiptaþingi, sem stendur nú yfir. Í erindi hans kom fram m.a. fram að stefna ráðsins hafi alla tíð verið skýra, þ.e. að kröftugt atvinnulíf er „... forsenda góðra lífskjara og efnahagslegs sjálfstæðis. Frelsi í viðskiptum grundvallað á ábyrgð hvers og eins er grunnur þeirra efnahagslegu framfara sem þjóðin hefur notið á síðastliðinni öld og í raun eina lýðræðislega fyrirkomulag efnahagsmála sem völ er á"

15.2.2012

Višskiptažing 2012: Fullt hśs gesta

Alls sækja um 450 manns árlegt Viðskiptaþing Viðskiptaráðs sem stendur nú yfir á Hilton Reykjavík Nordica, en yfirskrift þingsins þetta árið er Hvers virði er atvinnulíf?

15.2.2012

Ašalfundur 2012: Įrsskżrsla Višskiptarįšs - innlit til félaga rįšsins

Ķ tilefni af aðalfundi Viðskiptaráðs Íslands er komin út ársskýrsla ráðsins fyrir árin 2010-2011. Skýrslan er að þessu sinni í sérstökum 95 ára afmælisbúningi, en ráðið var stofnað árið 1917. Á hverri opnu skýrslunnar er litið inn til félaga ráðsins og fá lesendur að skyggnast inn í rekstrarumhverfi og stöðu aðildarfélaga. Ennfremur má finna í henni yfirlit yfir fjölbreytt verkefni ráðsins á síðustu tveimur árum.

13.2.2012

Višskiptažing 2012 į mišvikudag

Į miðvikudag (15. febrúar) fer fram árlegt Viðskiptaþing Viðskiptaráðs á Hilton Reykjavík Nordica. Skráningu lýkur á morgun kl. 16. Yfirskrift þingsins að þessu sinni er "Hvers virði er atvinnulíf?" þar sem fjallað verður um samhengi öflugs atvinnulífs og lífskjara, uppruna hagvaxtar og þann virðisauka sem atvinnulífið skapar samfélaginu í heild. Að auki verður fjallað sérstaklega um mikilvægi framtíðarsýnar og mótunar stefnu til lengri tíma.

8.2.2012

Skynsamleg vaxtaįkvöršun

Peningastefnunefnd Seðlabankans ákvað að halda vöxtum bankans óbreyttum í dag. Efnahagsbatinn heldur áfram að mati bankans en óvissa hefur aukist vegna versnandi efnahagshorfa í helstu viðskiptalöndum. Verðbólguhorfur hafa hins vegar versnað en verðbólga mælist nú fjórum prósentum yfir markmiði bankans. Þrátt fyrir þetta verða vextir óbreyttir í bili.

5.2.2012

Atvinnulķf undirstaša lķfskjara aš mati 94% landsmanna

94% landsmanna telja íslensk fyrirtæki skipta öllu eða miklu máli þegar kemur að því að skapa góð lífskjör á Íslandi samkvæmt könnun sem Capacent Gallup vann fyrir Viðskiptaráð Íslands. Segja má að þessi almennu viðhorf endurspegli þá uppbyggilegu sýn að 170 þúsund íslensk heimili og 30 þúsund íslensk fyrirtæki myndi órofa heild.

31.1.2012

Ašalfundur 2012 - kjörgögn farin śt

Ķ dag voru send út kjörgögn vegna kosninga til formanns og stjórnar Viðskiptaráðs Íslands. Eins og áður hefur komið fram er kosningin rafræn. Því er eiginlegur kjörseðill ekki sendur út heldur bréf frá framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs þar sem farið er yfir framkvæmd kosninganna.

30.1.2012

Višskiptažing 2012 - 15. febrśar

Miðvikudaginn 15. febrúar næstkomandi verður haldið árlegt Viðskiptaþing Viðskiptaráðs Íslands undir yfirskriftinni „Hvers virði er atvinnulíf?“. Þingið fer fram á Hilton Reykjavík Nordica. Húsið opnar kl. 13:30 og stendur þingið til kl. 16.20, en þá hefst móttaka.

24.1.2012

Af talnakśnstum og hįum sköttum

Įramótaumfjöllun um skattahækkanir fer nú fram fjórða árið í röð. Að vanda kveinka forsvarsmenn skattastefnu stjórnvalda sér undan henni. Í grein í Fréttablaðinu laugardaginn 14. janúar fjallar fyrrverandi fjármálaráðherra um yfirlit Viðskiptaráðs um skattkerfisbreytingar síðustu ára þar sem bent er á að skattar hafi hækkað verulega og að skattkerfi, sem var að grunngerð gott, hafi verið umbylt og orði svo flókið að sé til óþurftar.

23.1.2012

Umsóknarfrestur fyrir nįmsstyrki VĶ rennur śt 27. janśar

Umsóknarfrestur fyrir námsstyrki Viðskiptaráðs Íslands fyrir árið 2012 rennur út kl. 16 föstudaginn 27. janúar. Ráðið hefur um árabil veitt styrki til framhaldsnáms erlendis, en líkt og undanfarin ár verða veittir fjórir styrkir. Afhending þeirra fer fram á Viðskiptaþingi, sem haldið verður miðvikudaginn 15. febrúar næstkomandi.

11.1.2012

Nįmsstyrkir Višskiptarįšs: umsóknarfrestur til 27. janśar

Viðskiptaráð tekur virkan þátt í uppbyggingu menntunar og er bakhjarl bæði Verzlunarskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík. Ráðið hefur jafnframt um árabil veitt styrki til framhaldsnáms erlendis og hafa námsstyrkir Viðskiptaráðs 2012 nú verið auglýstir til umsóknar.

10.1.2012

Mikilvęgt aš einfalda skattaumhverfiš aftur

Ķ morgun fór fram árlegur skattadagur Deloitte, Viðskiptaráðs, Samtaka atvinnulífsins og viðskiptablaðs Morgunblaðsins. Oddný Harðardóttir, nýskipaður fjármálaráðherra, setti fundinn og sagði augljóst að skattamál virtust mörgum ofarlega í huga. Hún ræddi m.a. tíðar breytingar á skattkerfinu síðustu ár, sem skapað hafa óvissu...

4.1.2012

Yfir 100 breytingar į skattkerfinu

Viðskiptaráð hefur nú tekið saman uppfært yfirlit yfir þær skattabreytingar sem hafa átt sér stað hér á landi síðustu árin. Ljóst má vera að um umtalsverðan fjölda breytinga er að ræða, en flest allir skattar sem snerta atvinnulífið hafa hækkað verulega og í ofanálag hafa verið kynntir til sögunnar fjöldi nýrra skatta.

Póstlisti VĶ
Ašild aš Višskiptarįši
Višskiptarįš į FB
Sękja um ATA skķrteini

Slóšin žķn:

Um VĶ » Fréttir

Flżtileišir

English flag

Mynd


Stjórnborš

Minna letur Stęrra letur Hamur fyrir sjónskerta