Fréttir
15.2.2012
Višskiptažing 2012: Skżrsla Višskiptažings ašgengileg
Ķ skýrslu til Viðskiptaþings er fjallað nánar um efni þingsins, þ.e. Hvers virði er atvinnulíf?, þar sem m.a. er rýnt í tengsl atvinnulífs, hagvaxtar og lífskjara, uppruna hagvaxtar, hagstjórn síðustu áratuga, hagvaxtarþróun hérlendis í alþjóðlegu samhengi, samsetningu hagvaxtar og meginmarkmið hagstjórnar.
15.2.2012
Ašalfundur 2012: Nż stjórn Višskiptarįšs Ķslands
Į aðalfundi Viðskiptaráðs sem fram fór í morgun voru kynnt úrslit kosninga til formanns og stjórnar ráðsins fyrir tímabilið 2012-2014. Hreggviður Jónsson, forstjóri og aðaleigandi Veritas Capital hf., var kjörinn formaður Viðskiptaráðs.
15.2.2012
Višskiptažing 2012: Unnt aš auka veršmęti sjįvarafurša meš bęttu samstarfi
Į Viðskiptaþingi, sem nú stendur yfir, ræddi Þorsteinn Már Baldvinsson virði sjávarafurða og einblíndi þar á makríl. Fór hann m.a. yfir vinnslu makríls, veiðarnar og helstu markaði félagsins. Skiptar skoðanir hafa verið um fyrirkomulag makrílveiða síðustu misseri. Þannig hafa reglulega verið viðruð sjónarmið í þá átt að ríkið hafi átt að leigja kvótann, líkt og Færeyingar gerðu að hluta, í stað þess að úthluta honum undir núverandi kerfi. Fyrir vikið hefði ríkið orðið af milljarðatekjum.
15.2.2012
Višskiptažing 2012: Śttekt į hagvaxtar- og lķfskjarahorfum į Ķslandi
Į Viðskiptaþingi, sem nú stendur yfir, ræddi Hreggviður Jónsson, nýkjörinn formaður Viðskiptaráðs, um mikilvægi áætlunar fyrir Ísland um verðmætasköpun og lífskjör. Hreggviður sagði m.a. að án viðvarandi hagvaxtar myndu lífskjör hér á landi dragast fljótt aftur úr þeim löndum sem búa við stöðugan hagvöxt og verðmætasköpun.
15.2.2012
Višskiptažing 2012: Fatahönnun einskins virši ef ekki er hęgt aš reka fyrirtęki į Ķslandi
Hugrún Dögg Árnadóttur, framkvæmdastjóri KronKron, fjallaði á Viðskiptaþingi, sem nú stendur yfir, um virði hönnunar og þau tækifæri sem Íslendingum stendur til boða á því sviði. Nefndi hún sínar verslanir sem dæmi um hraðan vöxt hönnunar síðustu ár, en skóverslunin Kron var opnuð árið 2000 og haustið 2008 var fyrsta skólínan sett á markað. Í millitíðinni opnaði Hugrún fataverslunina KronKron árið 2004 og fyrsta fatalínan var sett á markað 2011.
15.2.2012
Višskiptažing 2012: Virši nżrra flugleiša į viš aflaveršmęti fimm togara
Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair, fjallaði á Viðskiptaþingi, sem nú stendur yfir, um umfang íslensks flugrekstrar og virði nýrrar flugleiða. Sagði hann m.a. ríflega 2 milljónir farþega fara um Ísland í millilandaflugi, 35.000 tonn í frakt, 18.000 brottfarir vera í millilandaflugi, 2.800 störf vera hérlendis í flugrekstri sem væru með 70% hærri meðaltalsframleiðni en á íslenskum vinnumarkaði og að Icelandair og starfsfólk þess hefðu greitt ríflega 7 ma. kr. í tekju- og launaskatta á síðasta ári.
15.2.2012
Višskiptažing 2012: Google og Facebook skošušu Ķsland
Gestur G. Gestsson, forstjóri Advania, fjallaði á Viðskiptaþingi, sem nú stendur yfir, um virði tenginga og þá helst gagnavera. Gagnaver er í grunninn bara hús, sagði Gestur, sem þarf gríðarlega mikið afl og er meðalgagnaver að kaupa rafmagn fyrir ca. 600 mkr. ári og bandvídd fyrir 700 mkr. á ári. Í gagnaveri verða til 20 bein störf og 100 afleidd störf.
15.2.2012
Višskiptažing 2012: Nįmsstyrkir Višskiptarįšs afhentir
Į árlegu Viðskiptaþingi Viðskiptaráðs, sem fer nú fram á Reykjavík Hilton Nordica, afhenti Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, námsstyrki Viðskiptaráðs. Af því tilefni sagði Katrín fulla ástæðu til bjartsýni á Íslandi og að það væri einkenni Íslendinga að takast á við vanda af bjartsýni. Að hennar mati væri líka gaman að sjá raunverulegan áhuga atvinnulífsins á að efla skólakerfið.
15.2.2012
Višskiptažing 2012: Heišursfélagar Višskiptarįšs śtnefndir
Į Viðskiptaþingi, sem nú stendur yfir, voru fimm fyrrum formenn og velunnarar Viðskiptaráðs sæmdir nafnbótinni Heiðursfélagi Viðskiptaráðs. Heiðursfélagi Viðskiptaráðs er sæmdarheiti sem veitt er mönnum er hafa lagt sérstaklega mikið af mörkum í þágu viðskiptafrelsis og framfara í atvinnulífinu. Katrín Pétursdótir, forstjóri Lýsis, tilkynnti um útnefninguna.
15.2.2012
Višskiptažing 2012: Umręšan snżst alltaf um skiptingu kökunnar, ekki stękkun hennar
Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, fjallaði á Viðskiptaþingi, sem nú stendur yfir, um virði sérstöðu Íslands sem hann sagði raunar frekar litla. Í reynd væri eina sérstaðan smæð Íslands og nefndi hann náttúruauðlindir sem eitt dæmi þar um. Við eigum ekki miklar auðlindir en ef þeim er deilt á alla Íslendinga þá eru þær ríkulegar.
15.2.2012
Višskiptažing 2012: Efla žarf stefnumótun og samstarf atvinnulķfs og stjórnvalda
Ķ ræðu sinni á Viðskiptaþingi, sem nú stendur yfir, sagði Tómas Már Sigurðsson formaður ráðsins að tækifæri Íslendinga væru nánast óþrjótandi. En hugsunarháttur og tíðarandi hafa umtalsverð áhrif á þau. Sagði hann að rétt eins og á árunum fyrir hrun, þar sem sló út í öfgar bjartsýni og kapps, þá hafi umræðan á undanförnum árum verið of neikvæð og niðurrifskennd. Þótt uppgjör við liðna tíð væri mikilvægt væri lærdómur hrunsins enn mikilvægari og það hvernig tekst að nýta hann til að bæta samfélagið, leikreglur þess og grunngerð.
15.2.2012
Višskiptažing 2012: Atvinnulķf undirstaša lķfskjara
Tómas Már Sigurðsson, fráfarandi formaður Viðskiptaráðs, fór í tilefni af 95 ára afmæli ráðsins stuttlega yfir sögu þess í ræðu sinni á Viðskiptaþingi, sem stendur nú yfir. Í erindi hans kom fram m.a. fram að stefna ráðsins hafi alla tíð verið skýra, þ.e. að kröftugt atvinnulíf er ... forsenda góðra lífskjara og efnahagslegs sjálfstæðis. Frelsi í viðskiptum grundvallað á ábyrgð hvers og eins er grunnur þeirra efnahagslegu framfara sem þjóðin hefur notið á síðastliðinni öld og í raun eina lýðræðislega fyrirkomulag efnahagsmála sem völ er á"
15.2.2012
Višskiptažing 2012: Fullt hśs gesta
Alls sækja um 450 manns árlegt Viðskiptaþing Viðskiptaráðs sem stendur nú yfir á Hilton Reykjavík Nordica, en yfirskrift þingsins þetta árið er Hvers virði er atvinnulíf?
15.2.2012
Ašalfundur 2012: Įrsskżrsla Višskiptarįšs - innlit til félaga rįšsins
Ķ tilefni af aðalfundi Viðskiptaráðs Íslands er komin út ársskýrsla ráðsins fyrir árin 2010-2011. Skýrslan er að þessu sinni í sérstökum 95 ára afmælisbúningi, en ráðið var stofnað árið 1917. Á hverri opnu skýrslunnar er litið inn til félaga ráðsins og fá lesendur að skyggnast inn í rekstrarumhverfi og stöðu aðildarfélaga. Ennfremur má finna í henni yfirlit yfir fjölbreytt verkefni ráðsins á síðustu tveimur árum.
13.2.2012
Višskiptažing 2012 į mišvikudag
Į miðvikudag (15. febrúar) fer fram árlegt Viðskiptaþing Viðskiptaráðs á Hilton Reykjavík Nordica. Skráningu lýkur á morgun kl. 16. Yfirskrift þingsins að þessu sinni er "Hvers virði er atvinnulíf?" þar sem fjallað verður um samhengi öflugs atvinnulífs og lífskjara, uppruna hagvaxtar og þann virðisauka sem atvinnulífið skapar samfélaginu í heild. Að auki verður fjallað sérstaklega um mikilvægi framtíðarsýnar og mótunar stefnu til lengri tíma.
8.2.2012
Skynsamleg vaxtaįkvöršun
Peningastefnunefnd Seðlabankans ákvað að halda vöxtum bankans óbreyttum í dag. Efnahagsbatinn heldur áfram að mati bankans en óvissa hefur aukist vegna versnandi efnahagshorfa í helstu viðskiptalöndum. Verðbólguhorfur hafa hins vegar versnað en verðbólga mælist nú fjórum prósentum yfir markmiði bankans. Þrátt fyrir þetta verða vextir óbreyttir í bili.
5.2.2012
Atvinnulķf undirstaša lķfskjara aš mati 94% landsmanna
94% landsmanna telja íslensk fyrirtæki skipta öllu eða miklu máli þegar kemur að því að skapa góð lífskjör á Íslandi samkvæmt könnun sem Capacent Gallup vann fyrir Viðskiptaráð Íslands. Segja má að þessi almennu viðhorf endurspegli þá uppbyggilegu sýn að 170 þúsund íslensk heimili og 30 þúsund íslensk fyrirtæki myndi órofa heild.







