Beint á leiðarkerfi vefsins

Fjölbreytt verkefni

Í seinni tíð hefur ráðið beitt sér sérstaklega fyrir bættri ímynd íslensks viðskiptalífs á erlendri grundu. Með útrás íslenskra fyrirtækja á erlenda markaði hefur nauðsyn virks upplýsingastreymis aukist til muna. Viðskiptaráð hefur tekið að sér mikilvægt hlutverk á því sviði og nýst vel sem sameiginlegur vettvangur fyrirtækja landsins.

Hlutverk stjórnar og framkvæmdastjórnar
Í 90 ára sögu ráðsins hafa verið haldnir 761 framkvæmdastjórnarfundir og 1515 stjórnarfundir hjá ráðinu. Fulltrúar í stjórn og framkvæmdastjórn eru kosnir á aðalfundi ráðsins af aðildarfyrirtækjum. Aðalfundur fer fram annað hvert ár og fer með æðsta vald í málefnum ráðsins. Á milli aðalfunda fer stjórnin með æðsta vald í málefnum ráðsins en í henni sitja fulltrúar 19 aðildarfélaga. Framkvæmdastjórn ber ábyrgð á gerðum og eignum ráðsins á milli stjórnarfunda. Á stjórnarfundum hafa verið rædd nánast öll málefni er varða viðskipta- og efnahagslega hagsmuni landsins. Fundirnir eru því mikilvægur umræðuvettvangur og eru leiðandi afl í stefnumótun ráðsins.

Afskipt og illa haldin verslun
Ráðið hefur ennfremur verið virkt í ýmsum hagnýtum málum er varða aðildarfélaga, s.s. verðlags-, innflutnings- og gjaldeyrismálum. Ráðið hefur haft umsjón með elsta starfandi gerðardómi landsins og skipað fulltrúa til ýmissa tilfallandi nefndarstarfa. Um miðbik síðustu aldar beindist athyglin að lánsfjármálum. Þótti kaupsýslumönnum verslunin vera afskipt og illa haldin. Til að leysa þetta mál var Verzlunarsparisjóðurinn stofnaður árið 1956, en upp úr honum varð Verzlunarbankinn til. Verzlunarráð lék mikilvægt hlutverk í stofnun bankans. Verzlunarbankinn sameinaðist síðar Útvegsbanka Íslands, Alþýðubankanum og Iðnaðarbankanum undir nafninu Íslandsbanki.

Leiðarljós ráðsins
Á 25 ára afmæli ráðsins flutti þáverandi formaður Verzlunarráðs, Hallgrímur Benediktsson, aðalræðuna um Verzlunarráðið, hlutverk þess og gildi. Í ræðunni sagði hann m.a.: „Tilgangur samtakanna var sá að efla og treysta hina íslenzku verzlun og skapa heilbrigða og hagfellda verzlunarhætti meðal þeirra, sem verzlun stunda.“ Einmitt þetta hefur verið leiðarljós ráðsins fram á þennan dag, og með slíku starfi sem þessu telur það sig vera að vinna fyrir alþjóðaheill. Þessi orð eiga vel við enn þann dag í dag. Að sjálfsögðu hefur viðskiptastarf Íslendinga þróast yfir í fleiri þætti en verslun eingöngu, en sé orðinu verslun skipt út fyrir viðskipti, lýsir þetta stefnu ráðsins afar vel.

Verslunarráð verður Viðskiptaráð
Í september árið 2005 var ákveðið að breyta nafni Verslunarráðs Íslands í Viðskiptaráð Íslands. Undangenginn áratug hafði orðið meiri breyting á íslensku viðskiptaumhverfi en nokkurn tíma áður í sögunni. Aukin fjölbreytni fyrirtækja einkenndi umfram annað þá breytingu. Í því ljósi var stjórn ráðsins sammála um að nafnið væri ekki eins lýsandi fyrir starfsemi þess og best væri á kosið. Í ljósi þess var tekið upp nafnið Viðskiptaráð Íslands og um leið var eldra nafn ráðsins lagt niður. Almenn ánægja ríkti með breytinguna og var hún talin til þess fallin að styrkja enn frekar öflugt tengslanet ráðsins í hinu sívaxandi íslenska viðskiptalífi.

Vettvangur ólíkra fyrirtækja
Saga ráðsins hefur verið viðburðarík, og það hefur starfað að mörgum merkum málum. Ráðið hefur alla tíð unnið í anda þeirra markmiða sem í upphafi voru sett en að sama skapi sniðið stakk eftir vexti. Síbreytilegt viðskiptaumhverfi hefur á þessum árum mótað áherslur í starfi ráðsins á hverjum tíma. Ráðið hefur þó alltaf verið vettvangur hvers kyns fyrirtækja, óháð starfsgreinum eða stærð þeirra. Í þeim víðtæku tengslum við íslenskt viðskiptalíf sem ráðið hefur þannig öðlast felst einmittstyrkur ráðsins. Margir merkir og mætir einstaklingar hafa komið að störfum ráðsins og verður svo væntanlega um ókomna tíð. Með sama áframhaldi munu störf þess eflast og árangurinn halda áfram að skila sér með bættum viðskiptaaðstæðum.


Póstlisti VÍ
Gerast félagi í VÍ

Slóðin þín:

Um VÍ » Saga » Fjölbreytt verkefni

Flýtileiðir

English flag

Mynd


Stjórnborð

Minna letur Stærra letur Hamur fyrir sjónskerta