Hjónin frá Þverá
Viðskiptaráð Íslands hefur átt marga velvildarmenn í gegnum tíðina. Þannig hafa ýmsir einstaklingar lagt lóð sín á vogarskálarnar í störfum ráðsins, bæði með beinum og óbeinum hætti. Það er þó óhætt að segja að enginn hafi gengið lengra í þeim efnum en Páll Stefánsson frá Þverá í Aðaldal og kona hans, Hallfríður Proppé.
Styrktarsjóður hjónanna
Í janúar árið 1953 var Eggerti Kristjánssyni, þáverandi formanni ráðsins, skýrt frá því að þau hjónin hefðu ákveðið að ánafna Verzlunarráði allar eigur sínar eftir sinn dag. Í erfðaskrá hjónanna kom fram að allar skuldlausar eignir dánarbúsins skyldu ganga til ráðsins og með fjármununum yrði stofnaður sjóður er nefnist Sjóður Fríðu Proppé og P. Stefánssonar frá Þverá.
Tilgangur sjóðsins er að efla hag íslenskrar viðskiptastéttar, vernda rétt hennar, efla frjáls viðskipti og vinna gegn hvers konar ófrelsi, ríkiseinkasölu og sérréttindum einstakra fyrirtækja. Úr sjóðnum er árlega veittur námsstyrkur, með því skilyrði að Viðskiptaráð leggi fram annan jafnan styrk úr eigin sjóðum.
Styrkjunum er ætlað að efla íslenskt viðskiptalíf og eru veittir nemendum er stunda framhaldsnám erlendis. Þá kemur einnig fram í erfðaskránni að leggist ráðið niður vegna pólitísks ofbeldis og kúgunar eða af öðrum ástæðum, svo sem þeim að öll verslun í landinu verði einokun ríkis eða samvinnufélags, þannig að frjáls verslun líði undir lok, skuli sjóðurinn falla til handa búnaðardeild Háskólans og Búnaðarháskóla Íslands.
Heildverslunin P. Stefánsson
Páll fæddist að Þverá í Laxárdal árið 1869, en hann fluttist til Reykjavíkur 25 ára að aldri. Hann starfaði fyrst við Thomsen magasín, en stofnaði síðan heildverslunina P. Stefánsson eftir fyrri heimstyrjöldina. Frá árinu 1920 rak hann verslun með bíla og bílahluti og var sú verslun fyrsta sinnar tegundar á landinu. Páll var kvæntur Fríðu Proppé Stefánsson, dóttur Claus E.D. Proppé, sem var fyrsti bakarameistari Hafnarfjarðar. Páll Stefánsson lést þann 26. ágúst 1952.

Ráðið flytur skrifstofur sínar á Laufásveg
Um miðjan sjötta áratuginn keypti ráðið húseign þeirra hjóna við Laufásveg 36 og varð andvirði hússins stofnfé minningarsjóðs Fríðu og Páls. Ráðið flutti síðan skrifstofur sínar þangað árið 1962. Var húsið innréttað og því breytt á ýmsan hátt og voru þar auk skrifstofunnar, bókasafn og samkomu- og fundarsalur. Fríða Proppé bjó á efri hæð hússins þar til hún andaðist um vorið 1965. Skrifstofur ráðsins voru á Þverá allt þar til húseignin var seld við fjármögnun á Húsi Verslunarinnar, sem nú hýsir skrifstofur Viðskiptaráðs.





