Beint á leiðarkerfi vefsins

Stofnun ráðsins

Verzlunarráð Íslands (nú Viðskiptaráð Íslands) var stofnað 17. september 1917. Rúmum áratug áður höfðu Íslendingar eignast sína fyrstu heimastjórn og fóru um leið að hafa meiri áhrif á framvindu innanríkismála. Með sjálfstæðishug í brjósti var blásið til sóknar í atvinnu- og menningarmálum. Sími, bankar, eigin útgerð, uppbygging í menntamálum og ný sjálfstæð sambönd í utanríkisverslun styrktu þessa þróun. Á þessum tíma óx verslun hratt og mikil framþróun og nýsköpun átti sér stað.

Á þeim tíma er ráðið var stofnað var fyrri heimstyrjöldin enn í algleymingi, með þeirri eymd og eyðileggingu sem henni fylgdi. Svarf þá einnig að Íslendingum, þótt þeir tækju ekki beinan þátt í stríðinu. Þetta átti ekki síst við á sviði viðskipta og verslunar. Þannig var stofnun ráðsins einnig tilraun til að leysa þau vandamál sem styrjöldinni fylgdu.



Forveri ráðsins og stofnfundur þess
Segja má að forveri ráðsins hafi verið Kaupmannaráð Reykjavíkur. Kaupmannaráðið starfaði á ýmsan hátt eins og erlend verslunarráð gerðu á þessum tíma og hafði náin sambönd við bæði stjórnvöld og kaupsýslumenn. Einnig hafði Kaupmannaráðið gengist fyrir stofnun Verzlunarskóla Íslands árið 1905. Þó var að lokum ákveðið að endurskipuleggja starfsemina og upp úr því varð Verzlunarráð Íslands til.

Það var fulltrúafundur verslunarstéttarinnar, haldinn í KFUM-húsinu (sjá mynd að ofan) við Amtmannsstíg í Reykjavík 17. september 1917, sem gekk frá stofnun ráðsins. Undirbúningur fundarins var í höndum áðurnefnds Kaupmannaráðs. Á fundinum var einróma samþykkt tillaga þess efnis að stofna „fulltrúanefnd fyrir verslun, iðnað og siglingar, er nefndist Verzlunarráð Íslands“. Að fundinum stóðu 73 einstaklingar eða fyrirtæki, en síðar bættust fleiri í hópinn og teljast stofnendur ráðsins vera 156 talsins. Á stofnfundinum var kosin fyrsta stjórn ráðsins, en í henni sátu Jes Zimsen, Garðar Gíslason, Jón Brynjólfsson, Ólafur Johnson, Carl Proppé, Jensen-Bjerg og Olgeir Friðgeirsson. Úr þessum hópi var Garðar Gíslason kosinn fyrsti formaður ráðsins.


Póstlisti VÍ
Aðild að Viðskiptaráði
Viðskiptaráð á FB
Sækja um ATA skírteini

Slóðin þín:

Um VÍ » Saga » Stofnun ráðsins

Flýtileiðir

English flag

Mynd


Stjórnborð

Minna letur Stærra letur Hamur fyrir sjónskerta