Blašagreinar og įlit
13.1.2009
Hlutverk Višskiptarįšs kynnt į borgarafundi
Fulltrúar Viðskiptaráðs sátu í pallborði á fjölmennum borgarafundi í Háskólabíó í gærkvöldi. Yfirskrift fundarins var Íslenskt atvinnulíf í aðdraganda kreppunnar. Markmið fundarins var að ræða orsakir fjármálakreppunnar, mögulega vankanta á lagaumhverfi og ófullnægjandi eftirlit.
Ræðumenn á fundinum voru auk Finns Oddssonar, framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs, eftirfarandi:
- Robert Wade - prófessor í stjórnmálahagfræði við London School of Economics
- Raffaella Tenconi - hagfræðingur hjá Straumi fjárfestingarbanka í London
- Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir - stjórnsýslufræðingur
- Herbert Sveinbjörnsson - heimildamyndagerðarmaður og aðgerðarsinni
Fyrir hönd Viðskiptaráðs mættu Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri ráðsins, Frosti Ólafsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, Katrín Pétursdóttir, forstjóri Lýsis, Knútur Hauksson, forstjóri Heklu, Tryggvi Þór Herbertsson, hagfræðingur og ráðgjafi, og Halla Tómasdóttir, stjórnarformaður Auðar Capital.
Ķ kjölfar erinda svöruðu fulltrúar Viðskiptaráðs auk fulltrúar stjórnmálaflokkanna spurningum úr sal.
Ræðu Finns má nálgast hér.








