Yfirlit yfir breytingar á skattkerfinu
Viðskiptaráð Íslands hefur tekið saman helstu breytingar á skattkerfinu frá árinu 2007. Ljóst má vera að um umtalsverðan fjölda breytinga er að ræða, en flest allir skattar sem snerta atvinnulífið hafa hækkað verulega og í ofanálag hafa verið kynntir til sögunnar fjöldi nýrra skatta.
Inn í þetta yfirlit vantar fjölda skatta og gjalda, en unnið er að því að bæta þeim við. Vegna tíðra breytinga á skattkerfinu getur jafnframt verið að einstaka tölur í yfirlitinu stemmi ekki. Viðskiptaráð hvetur félaga og aðra til að hafa samband komi þeir auga á annmarka í yfirlitinu sem og ef þeir eru með ábendingar um viðbætur. Frekari upplýsingar um yfirlitið veitir Haraldur I. Birgisson, aðstoðarframkvæmdastjóri.







