Stjórnarhættir fyrirtækja
Viðskiptaráð hefur um árabil beitt sér fyrir auknu frelsi í viðskiptum og bættum starfsskilyrðum atvinnulífsins. En auknu frelsi fylgir ábyrgð og fyrirtæki gera sér grein fyrir því. Bæði hér og erlendis hafa fyrirtæki í auknu mæli tekið upp eigin starfsreglur og viðmið til þess að mæta breyttum tímum. Það er mjög mikilvægt fyrir viðskiptalífið að sýna aukið frumkvæði á þessu sviði og sýna fram á að það er hagkvæmara og betra að fyrirtækin sýni sjálf ábyrgð í stað þess að auka opinbert eftirlit og regluverk
Stjórnarhættir fyrirtækja (e. Corporate Governance) snúast um samskipti hluthafa, stjórna og stjórnenda og hafa verið mikið til umfjöllunar á síðustu misserum m.a. á vettvangi Efnahags-og framfarastofnunarinnar (OECD) og Alþjóða viðskiptaráðsins (ICC). Alþjóða viðskiptaráðið hefur lagt fram ítarlegar hugmyndir á þessu sviði sem nýtist í þessu starfi ráðsins. Einnig hefur OECD lagt fram grundvallaratriði um ábyrga forystu fyrirtækja.
Í athugun ráðgjafarfyrirtækisins McKinsey í Bandaríkjum kemur fram að fjárfestar um allan heim meta mikils ef fyrirtæki hafa í heiðri góða stjórnarhætti. Sömu niðurstöður er að finna úr breskum athugunum.
Íslenskar leiðbeiningar um stjórnarhætti
Viðskiptaráðið hóf sumarið 2003 vinnu við tillögugerð um stjórnarhætti fyrirtækja. Á haustmánuðum 2003 hófst samstarf ráðsins við Nasdaq OMX Iceland og Samtök atvinnulífsins um þetta verkefni. Tilgangurinn með þessari samvinnu var að skapa breiða samstöðu um stjórnarhætti fyrirtækja. Fyrsta útgáfa leiðbeininganna kom út árið 2004, en markmið þeirra er að skýra hlutverk og störf stjórnarmanna og stjórnenda fyrirtækja á Íslandi. Með leiðbeiningunum er þessum aðilum auðveldað að rækja skyldur sínar um leið og hagur allra hluthafa í hlutafélögum er efldur.
Árið 2005 fór fram endurskoðun á leiðbeiningunum sem skilað sér í nýjum leiðbeiningarreglum sem gefnar voru út í desember sama ár. Í byrjun árs 2009 ákváðu samstarfsaðilar verkefnisins að endurskoða leiðbeiningarnar í þriðja sinn. Frekari umfjöllun um þá útgáfu leiðbeininganna má finna hér og hér. Nýjasta útgáfa leiðbeininganna er frá því í mars 2012, en hér má finna frekari umfjöllun um þær.
Leiðbeiningarnar
Prentuð eintök af leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja á íslensku og ensku fást á skrifstofu Viðskiptaráðs og kosta 3.000 krónur, en þær má panta með tölvupósti. Rafrænt eintak er aðgengilegt bæði á íslensku og ensku.
Tengt efni
Erindi flutt á ráðstefnu Viðskiptaráðs, Samtaka atvinnulífsins og Nasdaq OMX Ísland í tilefni af útgáfu leiðbeininganna árið 2004: Svanbjörn Thoroddsen, Ólafur Nilsson og Leena Linnainamaa.
Góðir stjórnarhættir skila árangri eftir Davíð Sch. Thorsteinsson og Jón Sch. Thorsteinsson. Morgunblaðið, Viðskiptablað 25. mars 2004.
Nánari upplýsingar veitir Haraldur I. Birgisson, aðstoðarframkvæmdastjóri ráðsins.







