Stjórnarhættir opinberra fyrirtækja
Viðskiptaráð hefur unnið í samstarfi við Nasdaq OMX Ísland og Samtök atvinnulífsins leiðbeiningar um stjórnarhætti opinberra fyrirtækja. Leiðbeiningarnar eru að alþjóðlegri fyrirmynd en sniðnar að íslenskum aðstæðum og regluverki.
Tilgangurinn var m.a. að vekja upp umræðu í þjóðfélaginu og innan ríkisstjórnarinnar um nauðsyn bættra stjórnarhátta í opinberum fyrirtækjum, sem nú eru mörg hver stærstu fyrirtæki landsins. Meginhluti þeirrar umræðu hlýtur að varða stöðu einkafyrirtækja og markaðsbúskapar í breyttu landslagi atvinnulífsins og mikilvægi þess að einkafyrirtæki líði ekki fyrir þann umtalsverða aflsmun sem er á þeim og opinberum fyrirtækjum.
Það var von þessara aðila að hið opinbera myndi beita sér fyrir innleiðingu leiðbeininganna hjá þeim fyrirtækjum sem eru í eigu þess. Með innleiðingu væri verið að bregðast við ákalli íslensks viðskiptalífs og erlendra aðila um aukið gagnsæi og á sama tíma efla samkeppni og stuðla að endurreisn trausts og trúverðugleika. Væri það ennfremur í samræmi við aðgerðaráætlun fjármálaráðuneytisins fyrir árin 2008-2010.
Starfshópur og fyrirmyndir
Í starfshópi þeim er samdi reglurnar sátu: Finnur Oddsson framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs (formaður), Þórður Friðjónsson forstjóri Nasdaq OMX Ísland, Hannes G. Sigurðsson aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Þorgeir Eyjólfsson forstjóri Lífeyrissjóðs Verzlunarmanna og Erlendur Magnússon framkvæmdastjóri. Verkefnastjóri var Haraldur I. Birgisson lögfræðingur Viðskiptaráðs.
Þær fyrirmyndir sem stuðst var við eru: Basel Committee on Banking Supervision, Core Principles for Effective Banking Supervision, 2006; Basel Committee on Banking Supervision, Enhancing Corporate Governance for Banking Organisations, 2006; OECD, Policy Brief on Corporate Governance of Banks, 2008; OECD, Guidelines on Corporate Governance of State-Owned Enterprises, 2005; OECD, Principles of Corporate Governance, 2004; Samkeppniseftirlitið, Leiðbeiningar: Ákvarðanir banka og stjórnvalda um framtíð fyrirtækja á samkeppnismörkuðum, 2008.
Leiðbeiningarnar
Leiðbeiningar um stjórnarhætti opinberra fyrirtækja á íslensku fást á skrifstofu Viðskiptaráðs og kosta 1.500 krónur, þær má panta með tölvupósti. Einnig eru leiðbeiningarnar aðgengilegar á rafrænu formi.
Tengt efni
Glærur Finns Oddssonar frá blaðamannafundinum þegar leiðbeiningarnar voru kynntar.
Nánari upplýsingar veitir Haraldur I. Birgisson, aðstoðarframkvæmdastjóri ráðsins.







