Úttekt á stjórnarháttum
Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins, NASDAQ OMX á Íslandi og Rannsóknarmiðstöð um stjórnarhætti við Háskóla Íslands hafa tekið höndum saman til að bæta eftirfylgni fyrirtækja við leiðbeiningar um góða stjórnarhætti. Í þeim tilgangi hafa þessir aðilar undirritað samstarfssamning sem felur í sér að öllum fyrirtækjum gefst tækifæri, frá 1. mars 2011, til að undirgangast formlegt mat á starfsháttum stjórnar og stjórnenda.
Rannsóknarmiðstöðin mun sjá um framkvæmd matsins, en matsferlið byggir í meginatriðum á leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja sem Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og NasdaqOMX gefa út. Neðangreind ráðgjafafyrirtæki, og önnur sem Rannsóknarmiðstöðin telur hæfa til verksins, hafa með höndum söfnun gagna, viðtöl við stjórnarmenn og skýrslugerð til Rannsóknarmiðstöðvarinnar. Fyrirtæki sem hafa áhuga á að annast þennan lið matsferlisins eru hvött til að hafa samband við Dr. Eyþór Ívar Jónsson, forsvarsmann rannsóknarmiðstöðvarinnar.
Viðurkenning veitt til árs í senn
Þeim fyrirtækjum sem standast matsferlið að mati Rannsóknarmiðstöðvarinnar verður veitt viðurkenning þar að lútandi sem þau geta notað í starfi sínu í eitt ár frá veitingu hennar.
Viðskiptaráð, Samtök atvinnulífsins og NASDAQ OMX munu fyrir sitt leyti hvetja stjórnendur allra fyrirtækja til að undirgangast mat á stjórnarháttum þeirra. Að auki munu þessir aðilar veita, á grundvelli úttektar rannsóknarmiðstöðvarinnar, fyrirtækjunum áðurnefnda viðurkenningu og halda þannig merkjum þeirra á lofti sem eru öðrum fyrirmynd um góða stjórnarhætti.
Fyrirtæki sem hafa áhuga á að undirgangast mat á stjórnarháttum geta haft samband við neðangreinda tengiliði, Rannsóknarmiðstöðina eða Viðskiptaráð Íslands. Fyrirtæki standa sjálf straum af kostnaði þess ráðgjafafyrirtækis sem þau ráða til verksins og Rannsóknarmiðstöðvarinnar.
Þegar fyrirtæki hafa lokið ferlinu hjá einum af úttektaraðilunum geta þeir sent skýrslur sínar til forsvarsmanns rannsóknarmiðstöðvarinnar, dr. Eyþór Ívars Jónssonar (eij.mba@cbs.dk). Viðmiðunarverð fyrir stærri fyriræki og þá heildstæða skýrslugjöf er 350.000 kr.
Endurnýjun viðurkenningar
Til þess að viðhalda viðurkenningunni milli ára þarf að gera rannsóknarmiðstöðinni grein fyrir helstu breytingum sem hafa átt sér stað hjá fyrirtækinu frá fyrri úttekt og þá einkum hvort tekið hafi verið tillit til þeirra athugasemda sem rannsóknarmiðstöðin gerði. Viðmiðunarverð endurnýjunar er 150.000 kr. Hafi hins vegar átt sér stað mikilsháttar breytingar á fyrirtækinu, s.s. á eignarhaldi, skipt hefur verið um meirihluta stjórnar eða félagið hefur verið sameinað öðru þá þarf að endurtaka matsferlið í heild sinni.
Tengiliður Viðskiptaráðs er Haraldur I. Birgisson, framkvæmdastjóri ráðsins.
|
Vefsíða: www.ey.is
Vefsíða: www.kpmg.is |
Vefsíða: www.deloitte.is
Vefsíða: www.expectus.is
Vefsíða: www.pwc.is |
Tengt efni:
- Samstarfssamningur VÍ, SA, NASDAQ og Rannsóknarseturs um bætta stjórnarhætti
- Nánar um rannsóknarmiðstöð um stjórnarhætti fyrirtækja og stofnana
- Leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja
- Matsferlið - Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum
- KPMG: Handbók stjórnarmanna
- Erindi Eyþórs Ívars Jónssonar - Fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum








