Beint á leiðarkerfi vefsins

Viðurkenndir úttektaraðilar

Rannsóknarmiðstöð í stjórnarháttum við Háskóla Íslands metur hæfi aðila sem óska eftir að annast þann hluta úttektarferlisins sem snýr að söfnun gagna, viðtölum við stjórnarmenn og skýrslugjöf til miðstöðvarinnar. Miðstöðin veitir ekki viðtöku úttektum sem framkvæmdum er af öðrum aðilum.

Til þess að öðlast og viðhalda viðurkenningu Rannsóknarmiðstöðvarinnar þurfa slíkir aðilar að:

  1. Geta sýnt Rannsóknarmiðstöðinni fram á reynslu og þekkingu á sviði stjórnarhátta fyrirtækja, einkum á Íslandi, áður en tekið er til starfa.
  2. Haga störfum sínum af heilindum og gæta fyllsta trúnaðar gagnvart félaginu.
  3. Upplýsa um hagsmunaárekstra, t.a.m. ef sama fyrirtæki annast endurskoðun félagsins, og hvernig brugðist er við þeim.
  4. Falla frá því að annast úttekt fjármálafyrirtækja og vátryggingafélaga annist úttektaraðili jafnframt endurskoðun þeirra
  5. Vinna í samræmi við matsferli Rannsóknarmiðstöðvarinnar
  6. Skila af sér skýrslu til félagsins með niðurstöðum sínum, sem jafnframt er skilað til Rannsóknarmiðstöðvarinnar.

Starfi úttektaraðilar ekki samkvæmt þessum leiðarljósum áskilur Rannsóknarmiðstöðin sér rétt til að fjarlægja þá af lista yfir viðurkennda úttektaraðila.

Efni fyrir úttektaraðila:


Póstlisti VÍ
Aðild að Viðskiptaráði
Viðskiptaráð á FB
Sækja um ATA skírteini

Slóðin þín:

Útgáfa » Stjórnarhættir » Úttekt á stjórnarháttum » Viðurkenndir úttektaraðilar

Flýtileiðir

English flag

Mynd


Stjórnborð

Minna letur Stærra letur Hamur fyrir sjónskerta