Stuðningsstuðull atvinnulífsins
Þar sem vöxtur framleiðni er meiri innan einkageirans heldur en hjá hinu opinbera byggir hagsæld til lengri tíma á því að kraftar einkaframtaksins séu nýttir til hins ýtrasta. Einkageirinn er forsenda þess að hið opinbera geti veitt nauðsynlega þjónustu s.s. heilsugæslu og menntun, greitt atvinnuleysistryggingar til þeirra sem eru án vinnu og greitt lífeyri eða bætur til þeirra sem standa utan vinnumarkaðar.
Styrk hagkerfisins til að standa undir opinberri þjónustu má meta með því að reikna út stuðningsstuðul atvinnulífsins. Stuðullinn reiknar út hve mörgum einstaklingum utan atvinnulífsins hver einstaklingur í atvinnulífinu stendur undir. Hér er átt við opinbera starfsmenn auk þeirra sem eru studdir af sameiginlegum sjóðum, eins og börn, lífeyrisþegar, atvinnulausir og öryrkjar. Nánari útskýringu á stuðningsstuðlinum má sjá með því að smella á myndina hér til hægri.
Gagnafyrirtækið Datamarket hefur nú hafið birtingu stuðningsstuðulsins í samstarfi við Viðskiptaráð. Viðskiptaráð birtir stuðningsstuðulinn árlega og birtir nýjustu niðurstöður hér á vefsíðunni ásamt því að uppfæra gögnin sem birtast hjá Datamarket. Mynd af þróun stuðulsins undanfarin ár má sjá hér að neðan og tengil á síðu stuðulsins hjá Datamarket má finna hér.
Niðurstöður ársins 2010
Árið 2010 stóð var hver einstaklingur á almennum vinnumarkaði að baki 1,54 einstaklingi (fyrir utan sjálfan sig) sem studdur var með opinberu fé eða millifærslum. Þarna er um að ræða þá sem starfa hjá hinu opinbera, auk þeirra sem njóta stuðnings sameiginlegra sjóða, en það eru börn, lífeyrisþegar, öryrkjar og atvinnulausir. Eftir því sem stuðningsstuðull atvinnulífsins er hærri því fleirum stendur hver starfsmaður í einkageiranum undir, sem felur almennt í sér aukna skattbyrði. Til samanburðar þá stóð hver starfsmaður undir 1,29 einstaklingi árið 2007. Því hafa byrðar einkageirans aukist um tæp 20% frá árinu 2007.
Í þessu sambandi er mikilvægt að leggja áherslu á að ýmis sú þjónusta sem veitt er af hálfu hins opinbera er verðmæt og mikilvæg fyrir samfélagið. Stuðningsstuðull atvinnulífsins og þeir útreikningar sem hann byggir á leggja hinsvegar ekki mat á slíkt mikilvægi þjónustu hins opinbera. Hér er aðeins bent á að eftir því sem stuðullinn er lægri því öflugra er hagkerfið og betur í stakk búið að tryggja hag og afkomu þeirra sem þurfa á aðstoð að halda.
Hækkun stuðningsstuðulsins áhyggjuefni
Hærri stuðningsstuðull atvinnulífsins eftir efnahagshrun er áhyggjuefni. Þetta á sérstaklega við þegar horft er til viðbragða stjórnvalda við efnahagshruninu. Stærð hins opinbera ekki verið löguð að þeim efnahagslega raunveruleika sem nú blasir við. Umsvif hins opinbera eru enn á mörgum sviðum í anda þess þanda hagkerfis sem var hér í aðdraganda bankahrunsins, en í stað eðlilegrar aðlögunar á opinbera geiranum hefur sú leið verið farin að stórauka byrðar á atvinnulífið til að halda við rekstri hins opinbera. Þetta má m.a. merkja af því að yfir 100 skattabreytingar hafa verið gerðar á síðastliðnum þremur árum auk þess sem flækjustig skattkerfisins hefur verið stóraukið. Raunar hefur hringlandi stjórnvalda með skattkerfið verið slíkur að skattasérfræðingar hafa átt erfitt með að fylgjast með öllum breytingunum.







