Umsagnir um lagafrumvörp
Á hverju ári veitir Viðskiptaráð Íslands umsagnir um tugi frumvarpa sem lögð eru fram á Alþingi og varða íslenskt atvinnulíf. Þá fær Viðskiptaráð oft tækifæri til að veita umsögn um drög að frumvörpum og um drög að reglum útgefnum af stofnunum.
Undantekningarlítið er um að ræða frumvörp sem varða viðskiptalífið með beinum eða óbeinum hætti. Flestar umsagnarbeiðnir berast frá viðskiptanefnd og efnahags- og skattanefnd, en einnig frá öðrum nefndum, t.d. sjávarútvegsnefnd, menntamálanefnd, iðnaðarnefnd og félagsmálanefnd. Starfsmenn Viðskiptaráðs eru reglulega boðaðir fyrir þingnefndir til að fjalla um afstöðu ráðsins til ýmissa mála.
Tækifæri til að hafa bein áhrif
Viðskiptaráð hefur einnig frumkvæði að því að veita þingnefndum umsagnir. Í mörgum tilfellum er það vegna ábendinga frá aðilarfyrirtækjum ráðsins. Í flestum tilfellum er um löggjöf af ræða sem hefur veruleg áhrif á rekstrarskilyrði viðkomandi fyrirtækis. Með aðild að Viðskiptaráði gefst félögum tækifæri til að hafa bein áhrif á lagasetningu er varðar rekstrarhagsmuni þeirra í gegnum umsagnarrétt ráðsins um lagafrumvörp.
Hér til hliðar má finna umsagnir Viðskiptaráðs Íslands um lagafrumvörp og tillögur til þingsályktana. Umsjón með gerð umsagna er í höndum Þórdísar Bjarnadóttur lögfræðings Viðskiptaráðs.







