Uppfærð skýrsla á ensku um stöðu mála

Nýverið uppfærði Viðskiptaráð skýrslu sína á ensku um stöðu efnahagsmála á Íslandi, The Icelandic Economic Situation: Status report. Skýrslan, sem kom fyrst út í október 2008, er hugsuð til upplýsingamiðlunar og jafnframt til að kynna stöðu mála hér á landi fyrir erlendum samstarfs- og hagsmunaaðilum.

Í skýrslunni má finna samantekt um þróun efnahags- og stjórnmála hérlendis frá hruni bankanna. Nú hefur hún verið uppfærð með áherslu á þróun Icesave-málsins, stöðu Íslands gagnvart AGS, stöðu peningamála hér á landi ásamt stöðu aðildarumsóknar Íslands að ESB. Skýrslan inniheldur m.a. tímaás þar sem farið er yfir helstu atburði sem snerta efnahagsmál landsins í tímaröð frá september 2008 til loka apríl.

Nú geta félagar nálgast uppfærða útgáfu af skýrslunni ásamt glærum á pdf formi sem nýta má til að kynna efni skýrslunnar í stuttu máli. Skýrsluna og meðfylgjandi glærur má nálgast með því að hafa samband við skrifstofur ráðsins í síma 510-7100 eða sent tölvupóst á vi@vi.is.

Tengt efni

Viðskiptaráð hvetur löggjafann til að leita hófsamari leiða

Umsögn Viðskiptaráðs um frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum
1. nóv 2022

Viðskiptaráð leitar að sérfræðingi í samskiptum og miðlun

Hefur þú brennandi áhuga á viðskiptalífinu? Frestur til og með 25. júní
15. jún 2021

Viðskiptaráð leitar að sérfræðingi í samskiptum og miðlun

Viðskiptaráð Íslands leitar að sérfræðingi í samskiptum og miðlun. Starfið ...
2. jún 2020