Viðskiptaþing 2011 - Skráning er hafin

Árlegt Viðskiptaþing Viðskiptaráðs fer fram miðvikudaginn 16. febrúar næstkomandi. Umfjöllunarefni þingsins í ár eru þau fjölbreyttu tækifæri sem byggja á grunnstoðum íslensks atvinnulífs ásamt samhengi atvinnugreina. Breiður hópur forsvarsmanna úr atvinnulífinu mun leggja umræðunni lið og fjalla um tækifærin og hvernig einstaklingar og fyrirtæki munu nýta þau til sköpunar verðmæta. Þau eru:

  • Gunnar Ármannsson - PrimaCare
  • Björn Zoega - Landspítali
  • Perla Björk Egilsdóttir - Saga Medica
  • Rannveig Rist - Rio Tinto Alcan
  • Eyjólfur Árni Rafnsson - Mannvit
  • Skúli Mogensen - Carbon Recycling International
  • Jón Ingi Björnsson - Trackwell
  • Jóhann Jónasson - 3X Technology
  • Eggert B. Guðmundsson - HB Grandi
  • Hrund Rudolfsdóttir - Marel

Einnig munu forsætisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, og formaður Viðskiptaráðs, Tómas Már Sigurðsson, flytja erindi á þinginu. Þingið verður því að þessu sinni haldið undir yfirskriftinni „Tökumst á við tækifærin - Atvinnulíf til athafna“, en samhliða þinginu verður gefin út fróðleg skýrsla um efni þess.

Skráning fer fram hér - Dagskrá á pdf sniði má nálgast hér

Dagskrá Viðskiptaþings 2011

13:30   Húsið opnar
13:45   Setning
13:50   Ræða formanns VÍ - Tökumst á við tækifærin
14:05   Ræða forsætisráðherra
14:20   Náttúran - Tækifæri í samhengi
14:45   Orkan - Tækifæri í samhengi
15:10   Kaffihlé
15:35   Afhending námsstyrkja Viðskiptaráðs - Mennta- og menningarmálaráðherra
15:45   Hafið - Tækifæri í samhengi
16:10   Samantekt: Atvinnulíf til athafna - Hrund Rudolfsdóttir
16:20   Spjall-tengsl-tækifæri - Léttar veitingar

Tengt efni

Lesskilningur Landverndar

Engin óvissa ríkir um efnahagslegar afleiðingar orkuskiptasviðsmyndar ...
2. mar 2023

Hraðari viðspyrna með erlendri fjárfestingu

Verulega hefur dregið úr erlendri fjárfestingu á síðustu árum og hefur ...
2. des 2020

Fyrirtækin hluti af lausninni – ekki vandanum

Loftslagsvitund og skilningur á kolefnismörkun fyrirtækisins þarf að vera ein af ...
7. feb 2020