Atvinnulíf til athafna

Þann 16. febrúar næstkomandi heldur Viðskiptaráð Íslands árlegt Viðskiptaþing undir yfirskriftinni „Tökumst á við tækifærin - Atvinnulíf til athafna“. Umfjöllunarefni Viðskiptaþings 2011 eru þau fjölbreyttu tækifæri sem byggja á grunnstoðum íslensks atvinnulífs. Fulltrúar bæði gamalgróinna og nýsprottinna fyrirtækja munu kynna þau tækifæri sem verða til í samspili atvinnugreina og mannauðs. Í skýrslu, sem gefin verður út samhliða, verður fjallað nánar um viðfangsefni þingsins. Þingið fer fram á Hilton Reykjavík Nordica.

Skráning fer fram hérDagskrá Viðskiptaþings

Að venju munu forsætisráðherra og formaður Viðskiptaráðs ávarpa þingið, en auk þeirra mun breiður hópur forsvarsmanna úr atvinnulífinu leggja umræðunni lið með því að fjalla um tækifærin og hvernig einstaklingar og fyrirtæki munu nýta þau til sköpunar verðmæta. Þau sem taka til máls eru:

Tengt efni

Lesskilningur Landverndar

Engin óvissa ríkir um efnahagslegar afleiðingar orkuskiptasviðsmyndar ...
2. mar 2023

Hraðari viðspyrna með erlendri fjárfestingu

Verulega hefur dregið úr erlendri fjárfestingu á síðustu árum og hefur ...
2. des 2020

Fyrirtækin hluti af lausninni – ekki vandanum

Loftslagsvitund og skilningur á kolefnismörkun fyrirtækisins þarf að vera ein af ...
7. feb 2020