Viðskiptaþing 2012 á miðvikudag

Skráning á Viðskiptaþing 2012Á miðvikudag (15. febrúar) fer fram árlegt Viðskiptaþing Viðskiptaráðs á Hilton Reykjavík Nordica. Skráningu lýkur á morgun kl. 16. Yfirskrift þingsins að þessu sinni er "Hvers virði er atvinnulíf?" þar sem fjallað verður um samhengi öflugs atvinnulífs og lífskjara, uppruna hagvaxtar og þann virðisauka sem atvinnulífið skapar samfélaginu í heild. Að auki verður fjallað sérstaklega um mikilvægi framtíðarsýnar og mótunar stefnu til lengri tíma.

Að venju mun formaður Viðskiptaráðs ávarpa þingið. Meðal annarra sem taka til máls eru: Jón Sigurðsson forstjóri Össurar, Birkir Hólm Guðnason framkvæmdastjóri Icelandair, Hugrún Árnadóttir framkvæmdastjóri Kron, Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja, Katrín Pétursdóttur forstjóri Lýsis, Gestur G. Gestsson forstjóri Advania auk Katrínar Jakobsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra. Fundarstjóri er Hrund Rudolfsdóttir framkvæmdastjóri starfsþróunarsviðs Marel.

Dagskrá Viðskiptaþings 2012:

13:30   Húsið opnar
13:45   Setning
13:50   Ræða formanns VÍ - Tómas Már Sigurðsson
14:05   Jón Sigurðsson, Hvers virði er sérstaða Íslands?
14:25   Útnefning heiðursfélaga - Katrín Pétursdóttir
14:35   Kaffihlé
15:00   Afhending námsstyrkja - Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra
15:10   Gestur G. Gestsson, Hvers virði er gagnaver?
15:25   Birkir Hólm Guðnason,  Hvers virði er ný flugleið?
15:40   Hugrún Árnadóttir,  Hvers virði er hönnun?
15.55   Þorsteinn Már Baldvinsson, Hvers virði er makríll?
16:10   Áætlun um verðmætasköpun og lífskjör
16:20   Virðisauki - Tónlist, spjall og léttar veitingar

Láttu þig ekki vanta á Viðskiptaþing 15. febrúar 2012! - Skráning fer fram hér

Tengt efni

Hver er hinn íslenski stjórnarmaður?

KPMG og Viðskiptaráð Íslands standa fyrir morgunverðarfundi þriðjudaginn 8. ...
8. nóv 2011

Annual Business Forum 2012

On February 15th the Iceland Chamber of Commerce will host its annual Business ...
15. feb 2012

Viðskiptaþing 2012 - Hvers virði er atvinnulíf?

Miðvikudaginn 15. febrúar næstkomandi verður haldið árlegt Viðskiptaþing ...
15. feb 2012