Úttekt á stjórnarháttum: Stefnir hf. til fyrirmyndar

Stefnir hf. er fyrsta fyrirtækið til að ljúka formlegu úttektarferli á stjórnarháttum fyrirtækja sem sett var á laggirnar á fyrrihluta árs 2011 með samstarfssamningi Viðskiptaráðs Íslands, Samtaka atvinnulífsins, NASDAQ OMX Iceland og Rannsóknarmiðstöðvar um stjórnarhætti við Háskóla Íslands.

Stefnir hf. er sjálfstætt starfandi fjármálafyrirtæki sem rekur verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestingarsjóði og er með um 330 milljarða króna í virkri stýringu. Félagið var stofnað árið 1996 og er í eigu Arion banka hf. 
Stefnir - logo
Stefnir hf. lauk úttektarferlinu í febrúar á þessu ári, en það var KPMG sem annaðist hlutverk úttektaraðila. Að mati Rannsóknarmiðstöðvarinnar stóðst Stefnir hf. úttektarferlið og telst því fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum. Stefni hf. er heimilt að nota merki úttektarinnar í kynningarstarfi sínu næsta árið til marks um árangurinn.

Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Nasdaq OMX á Íslandi óska forsvarsmönnum Stefnis hf. til hamingju með áfangann og vona að fleiri fyrirtæki fylgi í kjölfarið. Með því má með virkum hætti bæta stjórnarhætti fyrirtækja og um leið efla upplýsingagjöf til markaðsaðila og annarra áhugasamra um áherslur stjórnenda í atvinnulífinu.

Nánar um úttekt á stjórnarháttum fyrirtækja
Um er að ræða þrískipt úttektarferli. Stjórn viðkomandi fyrirtækis óskar eftir úttektinni og velur til þess formlega úttektaraðila sem safnar gögnum á borð við fundargerðir, starfsreglur, siðareglur, minnisblöð o.fl. sem og tekur viðtöl við einstaka stjórnarmenn og stjórnendur. Daglegir stjórnarhættir fyrirtækisins eru svo bornir saman við leiðbeiningar um góða stjórnarhætti. Að því loknu er skýrslu skilað til stjórnar fyrirtækisins.

Stjórninni stendur til boða í kjölfarið að senda skýrsluna til Rannsóknarmiðstöðvar um stjórnarhætti við Háskóla Íslands  til nánari skoðunar. Standist viðkomandi fyrirtæki úttektarferlið er því veitt viðurkenning sem fyrirtækinu er heimilt að nota í allt að ár frá veitingu hennar. Samantekt Rannsóknarmiðstöðvarinnar um fyrirtækið verður jafnframt gerð aðgengileg á vef hennar svo ástæður viðurkenningarinnar verði öllum ljósar. Sú samantekt felur einnig í sér tillögur til úrbóta.

Ljóst er að nær útilokað er að veita endanlega staðfestingu á að allir þættir í stjórnun og rekstri fyrirtækja standist lög, reglugerðir, alþjóðleg viðmið eða tilmæli opinberra aðila. Það er því ekki markmið þessarar úttektar heldur öðru fremur að reyna eftir fremsta megni að leggja mat á hvort stjórnir fyrirtækja fylgi sannanlega leiðbeiningum um góða stjórnarhætti. Með því er hagsmunaaðilum og öðrum áhugasömum veitt mikilvæg innsýn í hvernig stjórnir og stjórnendur fyrirtækja haga störfum sínum almennt.

Nánari upplýsingar veitir Dr. Eyþór Ívar Jónsson, forstöðumaður Rannsóknarmiðstöðvar í stjórnarháttum fyrirtækja, í síma 842-4333.

Umsögn Rannsóknarmiðstöðvarinnar um Stefni er aðgengileg hér.

Frekari upplýsingar um úttektina eru aðgengilegar hér.

Tengt efni

Betra er brjóstvit en bókvit

Eru bækur dýrar?
28. okt 2022

Í góðum félagsskap evrópsks eftirlits

Nú þegar þörfin er sem allra brýnust er vonandi að þingheimur átti sig á því ...
7. maí 2020