Úttekt á stjórnarháttum: Íslandssjóðir hf.

Íslandssjóðir hf. hafa lokið formlegu úttektarferli á stjórnarháttum fyrirtækja sem sett var á laggirnar á fyrri hluta árs 2011 með samstarfssamningi Viðskiptaráðs Íslands, Samtaka atvinnulífsins, NASDAQ OMX Iceland og Rannsóknarmiðstöðvar um stjórnarhætti við Háskóla Íslands.

Íslandssjóðir hf. er sérhæft félag á sviði eignastýringar og annast rekstur og stýringu verðbréfasjóða, fjárfestingarsjóða og fagfjárfestasjóða. Hlutverk Íslandssjóða er að stýra eignum á faglegan hátt þar sem hagsmunir viðskiptavina eru ávallt í fyrirrúmi. Íslandssjóðir hf. var upprunalega stofnað árið 1994 og nefndist þá Rekstrarfélag VÍB hf.

Íslandssjóðir starfrækir úrval skuldabréfasjóða, hlutabréfasjóða og blandaðra sjóða. Jafnframt stýrir safnastýring Íslandssjóða eignasöfnum fyrir viðskiptavini Einkabankaþjónustu VÍB, ýmsa lífeyrissjóði, félagasamtök og aðra fagfjárfesta. Íslandssjóðir hafa einnig tekið að sér að veita þjónustu til samlagshlutafélaga sem sérhæfa sig í fjárfestingum í óskráðum hlutabréfum og fasteignum.

Íslandssjóðir hf. luku úttektarferlinu í október 2013, en það var KPMG sem annaðist hlutverk úttektaraðila. Að mati Rannsóknarmiðstöðvarinnar stóðust Íslandssjóðir úttektarferlið og telst því fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum. Íslandssjóðum hf. er heimilt að nota merki úttektarinnar í kynningarstarfi sínu næsta árið til marks um árangurinn.

Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Nasdaq OMX á Íslandi óska forsvarsmönnum Íslandssjóða hf. til hamingju með áfangann og vona að fleiri fyrirtæki fylgi í kjölfarið. Með því má með virkum hætti bæta stjórnarhætti fyrirtækja og um leið efla upplýsingagjöf til markaðsaðila og annarra áhugasamra um áherslur stjórnenda í atvinnulífinu.

Nánar um úttekt á stjórnarháttum fyrirtækja
Um er að ræða þrískipt úttektarferli. Stjórn viðkomandi fyrirtækis óskar eftir úttektinni og velur til þess formlega úttektaraðila sem safnar gögnum á borð við fundargerðir, starfsreglur, siðareglur, minnisblöð o.fl. sem og tekur viðtöl við einstaka stjórnarmenn og stjórnendur. Daglegir stjórnarhættir fyrirtækisins eru svo bornir saman við leiðbeiningar um góða stjórnarhætti. Að því loknu er skýrslu skilað til stjórnar fyrirtækisins.

Stjórninni stendur til boða í kjölfarið að senda skýrsluna til Rannsóknarmiðstöðvar um stjórnarhætti við Háskóla Íslands  til nánari skoðunar. Standist viðkomandi fyrirtæki úttektarferlið er því veitt viðurkenning sem fyrirtækinu er heimilt að nota í allt að ár frá veitingu hennar. Samantekt Rannsóknarmiðstöðvarinnar um fyrirtækið verður jafnframt gerð aðgengileg á vef hennar svo ástæður viðurkenningarinnar verði öllum ljósar. Sú samantekt felur einnig í sér tillögur til úrbóta.

Ljóst er að nær útilokað er að veita endanlega staðfestingu á að allir þættir í stjórnun og rekstri fyrirtækja standist lög, reglugerðir, alþjóðleg viðmið eða tilmæli opinberra aðila. Það er því ekki markmið þessarar úttektar heldur öðru fremur að reyna eftir fremsta megni að leggja mat á hvort stjórnir fyrirtækja fylgi sannanlega leiðbeiningum um góða stjórnarhætti. Með því er hagsmunaaðilum og öðrum áhugasömum veitt mikilvæg innsýn í hvernig stjórnir og stjórnendur fyrirtækja haga störfum sínum almennt.

Nánari upplýsingar veitir Dr. Eyþór Ívar Jónsson, forstöðumaður Rannsóknarmiðstöðvar í stjórnarháttum fyrirtækja, í síma 842-4333.

Umsögn Rannsóknarmiðstöðvarinnar um Íslandssjóði hf. er aðgengileg hér

Tengt efni

Átján fyrirmyndarfyrirtækjum í stjórnarháttum veitt viðurkenning

Hópur fyrirtækja í fjölbreyttri starfsemi hlaut í dag verðlaun fyrir góða ...
22. ágú 2023

Fyrirmyndarfyrirtækjum veitt viðurkenning

Sextán fyrirtæki þar sem starfshættir stjórna eru vel skipulagðir og framkvæmd ...
26. ágú 2022

Fimmtán fengu viðurkenningu fyrir góða stjórnarhætti

Stjórnvísi, Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Nasdaq Iceland ...
24. ágú 2021