Úttekt á stjórnarháttum: Advania hf.

2011.01.13-Mynd2Advania hf. hefur lokið formlegu úttektarferli á stjórnarháttum fyrirtækja sem sett var á laggirnar á fyrri hluta árs 2011 með samstarfssamningi Viðskiptaráðs Íslands, Samtaka atvinnulífsins, NASDAQ OMX Iceland og Rannsóknarmiðstöðvar um stjórnarhætti við Háskóla Íslands.

Advania hf. býður heildarþónustu í upplýsingatækni, hvort sem um ræðir, hugbúnað, vélbúnað, ráðgjöf eða rekstrarþjónustu. Advania er náinn samstarfsaðili fjölmargra alþjóðlegra fyrirtækja í upplýsingatækni, en þar má nefna Dell, EMC, Microsoft, Oracle, SAP BusinessObjects og VeriSign. Þess má geta að Advania á eitt stærsta gagnaver landsins, Thor Data Center.
Advania er eitt fárra fyrirtækja í þekkingariðnaði með starfsemi sem vottuð er samkvæmt alþjóðlegu gæða- og öryggisstöðlunum ISO 9001 og 27001. Gildi fyrirtækisins eru ástríða, snerpa og hæfni.

2014.3.12_Advania smallAdvania er með öfluga starfsemi á Norðurlöndunum og er þar níunda stærsta upplýsingatæknifyrirtækið með 1.100 starfsmenn og 20 starfsstöðvar í þremur löndum. Á Íslandi starfa um 600 manns, 300 í Svíþjóð og 200 í Noregi.

Advania hf. lauk úttektarferlinu í desember 2013, en það var KPMG sem annaðist hlutverk úttektaraðila. Að mati Rannsóknarmiðstöðvarinnar stóðst Advania úttektarferlið og telst því fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum. Advania er heimilt að nota merki úttektarinnar í kynningarstarfi sínu næsta árið til marks um árangurinn.

Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Nasdaq OMX á Íslandi óska forsvarsmönnum Advania til hamingju með áfangann og vona að fleiri fyrirtæki fylgi í kjölfarið. Með því má með virkum hætti bæta stjórnarhætti fyrirtækja og um leið efla upplýsingagjöf til markaðsaðila og annarra áhugasamra um áherslur stjórnenda í atvinnulífinu.

Nánar um úttekt á stjórnarháttum fyrirtækja
Um er að ræða þrískipt úttektarferli. Stjórn viðkomandi fyrirtækis óskar eftir úttektinni og velur til þess formlega úttektaraðila sem safnar gögnum á borð við fundargerðir, starfsreglur, siðareglur, minnisblöð o.fl. sem og tekur viðtöl við einstaka stjórnarmenn og stjórnendur. Daglegir stjórnarhættir fyrirtækisins eru svo bornir saman við leiðbeiningar um góða stjórnarhætti. Að því loknu er skýrslu skilað til stjórnar fyrirtækisins.

Stjórninni stendur til boða í kjölfarið að senda skýrsluna til Rannsóknarmiðstöðvar um stjórnarhætti við Háskóla Íslands til nánari skoðunar. Standist viðkomandi fyrirtæki úttektarferlið er því veitt viðurkenning sem fyrirtækinu er heimilt að nota í allt að ár frá veitingu hennar. Samantekt Rannsóknarmiðstöðvarinnar um fyrirtækið verður jafnframt gerð aðgengileg á vef hennar svo ástæður viðurkenningarinnar verði öllum ljósar. Sú samantekt felur einnig í sér tillögur til úrbóta.

Ljóst er að nær útilokað er að veita endanlega staðfestingu á að allir þættir í stjórnun og rekstri fyrirtækja standist lög, reglugerðir, alþjóðleg viðmið eða tilmæli opinberra aðila. Það er því ekki markmið þessarar úttektar heldur öðru fremur að reyna eftir fremsta megni að leggja mat á hvort stjórnir fyrirtækja fylgi sannanlega leiðbeiningum um góða stjórnarhætti. Með því er hagsmunaaðilum og öðrum áhugasömum veitt mikilvæg innsýn í hvernig stjórnir og stjórnendur fyrirtækja haga störfum sínum almennt.

Nánari upplýsingar veitir Dr. Eyþór Ívar Jónsson, forstöðumaður Rannsóknarmiðstöðvar í stjórnarháttum fyrirtækja, í síma 842-4333.

Umsögn Rannsóknarmiðstöðvarinnar um Advania hf. er aðgengileg hér.

Tengt efni

Úttekt á stjórnarháttum: Stefnir hf. til fyrirmyndar

Stefnir hf. er fyrsta fyrirtækið til að ljúka formlegu úttektarferli á ...
8. mar 2012

Skattadagurinn

Hinn árlegi Skattadagur Deloitte, í samstarfi við Viðskiptaráð Íslands og Samtök ...
13. jan 2015

Fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum: Mannvit og Stefnir

Mannvit og Stefnir luku nýverið við að endurnýja úttekt á stjórnarháttum sínum ...
2. júl 2013