Tímabundin niðurfelling álags vegna skila á virðisaukaskatti

Vegna þeirra truflana sem orðið hafa á bankastarfsemi hér á landi og áhrifa þess á atvinnulífið hefur fjármálaráðuneytið í dag beint þeim tilmælum til skattstjóra að fellt verði tímabundið niður álag vegna skila á virðisaukaskatti sem er á gjalddaga á morgun, 5. desember. Sú niðurfelling gildir í eina viku eða til 12. desember 2008.

Tilkynnining fjármálaráðuneytis:

"Samkvæmt 2. mgr. 24. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, er 5. desember 2008 gjalddagi virðisaukaskatts vegna uppgjörstímabilsins september og október 2008.

Í 1. mgr. 27. gr. laganna kemur fram að sé virðisaukaskattur ekki greiddur á tilskildum tíma skuli aðili sæta álagi til viðbótar skatti samkvæmt virðisaukaskattsskýrslu eða til viðbótar þeim skatti sem honum bar að standa skil á, sbr. 19. gr. laganna. Sama gildir ef virðisaukaskattsskýrslu hefur ekki verið skilað eða verið ábótavant og virðisaukaskattur því áætlaður eða endurgreiðsla skv. 25. gr. hefur verið of há. Þá skal aðili sæta álagi ef endurgreiðsla skv. 3. og 4. mgr. 42. gr. og 3. mgr. 43. gr. hefur verið of há. Í 6. mgr. 27. gr. laganna kemur fram að fella megi niður álag ef aðili færir gildar ástæður sér til málsbóta og geti skattyfirvöld metið það í hverju tilviki hvað telja skuli gildar ástæður í þessu sambandi.

Vegna þeirra truflana sem orðið hafa á bankastarfsemi hér á landi og áhrifa þess á atvinnulífið telur ráðuneytið að gildar ástæður séu til að beita heimild 6. mgr. 27. gr. laga nr. 50/1988, til tímabundinnar niðurfellingar álags vegna skila á virðisaukaskatti fyrir uppgjörstímabilið september og október 2008.

Hefur ráðuneytið í dag beint þeim tilmælum til skattstjóra að fellt verði tímabundið niður álag vegna skila á virðisaukaskatti sem á gjalddaga er 5. desember 2008 og gildi sú niðurfelling í eina viku eða til 12. desember 2008."

Tengt efni

Fleiri víti 

„Það þarf að fara varlega með vald, um það þurfa að vera skýrar reglur og ...
31. jan 2024

Fimm skattahækkanir á móti hverri lækkun

Frá áramótum 2022 hafa verið gerðar 46 breytingar á skattkerfinu, þar af hafa ...
31. maí 2023

Rafrænar skuldaviðurkenningar verði ekki einskorðaðar við neytendur

Umsögn Viðskiptaráðs við frumvarp til laga um rafrænar skuldaviðurkenningar (mál ...
10. maí 2023