Sjálfstæð mynt í fjármálakreppu

Viðskiptaráð Íslands og fastanefnd Evrópusambandsins gagnvart Íslandi og Noregi boða til morgunverðarfundar í fyrramálið, 25. mars, um hlutverk peningastefnu til að styðja við efnahagslegan stöðugleika og koma í veg fyrir efnahagskreppur. Einkum verður fjallað um evruna í ljósi núverandi fjármálakreppu og þýðingu fyrir peningastefnu á Íslandi, í fortíð og framtíð. Fundurinn verður haldinn á Grand Hotel Reykjavik.

Dagskrá:

8.15 - 8.20  Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra
Opnunarávarp

8.20 - 8.40  Massimo Suardi, Sviðsstjóri hjá framkvæmdastjórn ESB (DG Ecfin)
Achievement and challenges of the EU in dealing with the financial crisis: a perspective from Brussels.

8.40 - 8.55  Yngvi Örn Kristinsson, forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans
Það sem hefði getað orðið: Fjármálakreppan á Íslandi með annarri mynt

8.55 - 9.10  Hörður Arnarson
Gjaldeyrismál í alþjóðlegum rekstri

9.10 - 9.40  Pallborðsumræður
Auk framsögumanna situr  Þórarinn G. Pétursson, starfandi aðalhagfræðingur Seðlabankans í pallborði

Fundarstjóri er Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands.

Boðið verður upp á léttan morgunverð.

Fundurinn er öllum opinn.

Vinsamlegast skráið þátttöku með því að senda tölvupóst á birna@vi.is.

Tengt efni

Morgunfundur um samkeppnishæfni

Nýjar niðurstöður árlegrar greiningar IMD á samkeppnishæfni ríkja verða kynntar ...
14. jún 2022

Morgunverðarfundur um hlutverk peningastefnu á óróatímum

Viðskiptaráð Íslands og fastanefnd Evrópusambandsins gagnvart Íslandi og Noregi ...
25. mar 2009

Kynning á skýrslu Alþjóðamálastofnunar um aðildarviðræður Íslands við ESB

Mánudaginn 7. apríl kl. 8.15 - 11.30 fer fram kynning á skýrslu ...
7. apr 2014