Opnað fyrir Ísland á ný

Eitt stærsta greiðslutryggingarfélag heims, Coface, hefur nú staðfest skriflega að fyrirtækið sé tilbúið til að tryggja greiðslur íslenskra fyrirtæki á sama hátt og gildir með fyrirtæki í öðrum löndum. Þetta þýðir að innflytjendur hér á landi mega búast við því að uppbygging trausts í formi reikningsviðskipta á milli landa sé nú í lengra á veg komið en áður.  Greiðslutrygging getur þá orðið til þess að innflytjendur þurfi ekki að fyrirframgreiða eða staðgreiða pantanir í sama mæli og hefur tíðkast frá síðastliðnu hausti.

Innflytjendur, sem enn búa við ströng fyrirmæli um staðgreiðslur og innborganir pantana, geta því bent erlendum birgjum sínum á að óska eftir greiðslutryggingu vegna  reikningsviðskipta við þau hjá Coface.  Almennt gildir þá að erlendur aðili þarf að vera í einhverjum tryggingarviðskiptum hjá Coface og sé það svo mun Coface meta hvert íslenskt fyrirtæki fyrir sig á sama hátt og gildir um fyrirtæki frá öðrum löndum.  Nánari upplýsingar um þetta geta innflytjendur fengið hjá Creditinfo.

Coface er þriðja stærsta greiðslutryggingarfélag í heimi en enn sem komið er hafa þau tvö stærstu, Euler Hermes og Atradius, ekki opnað fyrir Ísland.  Þessi tvö stærstu hafa verið þau greiðslutryggingarfélög sem hafa tryggt flesta erlenda birgja sem hafa verið í reikningsviðskiptum við íslenska innflytjendur.  Hjá Creditinfo má hins vegar sjá á aukningu fyrirspurna frá Coface að íslensk fyrirtæki sitja í vaxandi mæli við sama borð og aðrir þegar lánshæfismat reikningsviðskipta er metið.

Þessi yfirlýsing frá Coface og vilji til stuðnings íslenskum fyrirtækjum er afrakstur vinnu sem sett var á laggirnar í nóvember 2008, stuttu eftir að erlend greiðslutryggingarfélög lokuðu fyrir tryggingar á íslenskum fyrirtækjum.  Viðskiptaráð og Iðnaðarráðuneytið áttu þá frumkvæði að því að mynda samstarfshóp þeirra aðila sem liðkað gætu fyrir samskiptum við greiðslutryggingarfyrirtækja fyrir hönd íslenskra fyrirtækja.  Í þessum hóp hafa starfað, auk Viðskiptaráðs og Iðnaðarráðuneytis, Creditinfo á Íslandi, TM, Sjóvá, Seðlabanki Íslands, Utanríkisráðuneyti, Viðskiptaráðuneyti og fulltrúar allra ríkisbankanna.  Þá komu Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, sendiherra í Noregi og Svavar Gestsson, sendiherra í Danmörku, að vinnunni vegna fundarhalda með greiðslutryggingarfélögunum í viðkomandi löndum.

Frekari upplýsingar veita undirrituð, en upplýsingar um Coface má sjá á heimasíðu þeirra www.coface.com :

Finnur Oddsson framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands, gsm 862-0310
Rakel Sveinsdóttir framkvæmdastjóri Creditinfo á Íslandi, bs 550-9653

Tengt efni

At­vinnu­rekstur er allra hagur

„Það er mikið hagsmunamál fyrir launafólk að til séu þeir sem bæði geta stofnað ...
23. feb 2024

Ný útgáfa um íslenskt efnahagslíf - 4. ársfjórðungur

Viðskiptaráð Íslands hefur birt nýja ársfjórðungslega útgáfu af The Icelandic ...
2. nóv 2023

Óorð í ýmsum stærðum 

„Þegar íslensk stjórnvöld ákveða að innleiða EES-reglugerðir með íþyngjandi ...
4. okt 2023