Aðalfundur Viðskiptaráðs 2022

Aðalfundur Viðskiptaráðs Íslands fer fram fimmtudaginn 10. febrúar kl. 9.00 í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35.

Fulltrúum allra aðildarfélaga er heimilt að sækja fundinn. Dagskrá aðalfundar er samkvæmt 9. grein laga ráðsins:

  1. Skýrsla stjórnar
  2. Reikningar bornir upp til samþykktar
  3. Úrslit formanns- og stjórnarkjörs tilkynnt
  4. Lagabreytingar
  5. Kosning kjörnefndar
  6. Tekju- og gjaldaáætlun kynnt og árgjöld ákvörðuð
  7. Önnur mál

Nánari upplýsingar um aðalfund, þar á meðal upplýsingar um kjör stjórnar og formanns, má finna hér.