Gerðardómur Viðskiptaráðs innleiðir stafræna lausn Justikal

"Með tilkomu stafræna réttarkerfisins getum við veitt skjólstæðingum okkar framúrskarandi þjónustu í takt við kröfur nútímans"

Agla Eir Vilhjálmsdóttir, framkvæmdastjóri Gerðardóms Viðskiptaráðs, og Margrét Anna Einarsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Justikal.

Gerðardómur Viðskiptaráðs Íslands (GVÍ) og Justikal ehf. hafa gert með sér samkomulag um innleiðingu á stafrænu réttarkerfi Justikal fyrir öll mál gerðardómsins. 

Með því að nýta þjónustu Gerðardóms Viðskiptaráðs geta aðilar fengið leyst úr ágreiningsmálum með skjótum hætti en reglur dómsins kveða á um endanlega úrlausn innan sex mánaða, nema aðilar semji um annað. Trúnaður gildir um málsmeðferðina og eru úrskurðir dómsins því ekki birtir opinberlega.

Innleiðing á lausn Justikal gefur GVÍ færi á að bjóða aðilum enn betri þjónustu þar sem ítrasta öryggis er gætt en með kerfinu geta málsaðilar sent öll gögn rafrænt og fylgst með framgangi sinna mála í rauntíma.

Með innleiðingu á Justikal er GVI enn betur að mæta kröfum EU Reglugerðar Nr. 910/2014 (eIDAS) þar sem fram kemur að ekki megi hafna því að rafræn skjöl fái réttaráhrif einungis af þeirri ástæðu að þau séu á rafrænu formi. Í dag eru stór hluti af gögnum sem eru einungis til á stafrænu formi, t.d. rafrænt undirrituð gögn. Slík gögn er ekki hægt að prenta út þar sem undirskriftirnar missa þá gildi sitt. Til að tryggja þetta eru eIDAS vottaðar traustþjónustur notaðar í vefgátt Justikal.

Agla Eir Vilhjálmsdóttir, lögfræðingur Viðskiptaráðs og framkvæmdastjóri GVÍ:

"Við erum gríðarlega spennt fyrir samstarfinu við Justikal en með tilkomu stafræna réttarkerfisins getum við veitt skjólstæðingum okkar framúrskarandi þjónustu í takt við kröfur nútímans en kerfið gerir okkur m.a. kleift að taka við, geyma og sannreyna öll stafræn gögn."  

Margrét Anna Einarsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Justikal:

"Við erum mjög stolt að fá Gerðardómstól Viðskiptaráðs Íslands til liðs við okkur en Justikal er nú þegar komið í notkun hjá öllum héraðsdómstólum landsins. Okkar markmið ríma vel við markmið Gerðardómsins, þá sér í lagi um að veita framúrskarandi þjónustu í takt við kröfur nútímans þar sem ítrasta öryggis er gætt."

Tengt efni

María nýr lögfræðingur Viðskiptaráðs

María kemur frá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu og mun hefja störf ...
12. maí 2023

Nauðsynlegt að tryggja félagafrelsi á vinnumarkaði

Umsögn Viðskiptaráðs um félagafrelsi á vinnumarkaði (mál nr. 24)
8. des 2022

Viðskiptaráð ítrekar ábendingar um atriði sem stríða gegn almannahagsmunum

Umsögn Viðskiptaráðs um frumvarp til laga um leigubifreiðaakstur (167. mál).
20. okt 2022