Marel fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum

Marel hefur hlotið viðurkenningu sem fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum eftir að hafa undirgengist úttekt á starfsháttum stjórnar og stjórnenda fyrirtækisins. Íslenskum fyrirtækjum hefur staðið til boða að undirgangast slíka úttekt frá árinu 2011. Þá undirrituðu Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins, NASDAQ Iceland og Rannsóknarmiðstöð um stjórnarhætti við Háskóla Íslands samstarfssamning um með það að markmiði að veita öllum fyrirtækjum tækifæri á að undirgangast formlegt mat á stjórnarháttum. Rannsóknarmiðstöð um stjórnarhætti við Háskóla Íslands annast framkvæmd matsins, en matsferlið byggir í meginatriðum á leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja.

Marel var formlega stofnað árið 1983 er það nú í hópi stærstu útflutningsfyrirtækja Íslands og er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu á háþróuðum búnaði og kerfum til vinnslu á fiski, kjöti og kjúklingi. Marel er alþjóðlegt fyrirtæki og hjá því starfa yfir 4.000 manns um allan heim. Fyrirtækið starfrækir skrifstofur og dótturfyrirtæki í fleiri en 30 löndum, auk 100 umboðsmanna og dreifingaraðila.

Marel lauk úttektarferlinu í desember 2015, en það var Deloitte sem framkvæmdi úttektina. Að mati Rannsóknarmiðstöðvarinnar stóðst Marel úttektarferlið og telst því fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum. Marel er heimilt að nota merki viðurkenningarinnar í kynningarstarfi sínu næsta árið til marks um árangurinn.

Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Nasdaq OMX á Íslandi óska forsvarsmönnum Marel til hamingju með áfangann og vona að fleiri fyrirtæki fylgi í kjölfarið. Með því má með virkum hætti bæta stjórnarhætti fyrirtækja og um leið efla upplýsingagjöf til markaðsaðila og annarra áhugasamra um áherslur stjórnenda í atvinnulífinu.

Nánar um úttekt á stjórnarháttum fyrirtækja
Um er að ræða þrískipt úttektarferli. Stjórn viðkomandi fyrirtækis óskar eftir úttektinni og velur úttektaraðila sem safnar gögnum á borð við fundargerðir, starfsreglur, siðareglur, minnisblöð o.fl. og tekur viðtöl við stjórnarmenn og stjórnendur. Daglegir stjórnarhættir fyrirtækisins eru svo bornir saman við leiðbeiningar um góða stjórnarhætti. Að því loknu er skýrslu skilað til stjórnar fyrirtækisins.

Í kjölfarið stendur stjórninni til boða að senda skýrsluna til Rannsóknarmiðstöðvar um stjórnarhætti við Háskóla Íslands til nánari skoðunar. Standist viðkomandi fyrirtæki úttektarferlið er því veitt viðurkenning sem fyrirtækinu er heimilt að nota í allt að ár frá veitingu hennar. Samantekt Rannsóknarmiðstöðvarinnar um fyrirtækið verður jafnframt gerð aðgengileg á vef hennar svo ástæður viðurkenningarinnar verði öllum ljósar. Sú samantekt felur einnig í sér tillögur til úrbóta.

Ljóst er að nær útilokað er að veita endanlega staðfestingu á að allir þættir í stjórnun og rekstri fyrirtækja standist lög, reglugerðir, alþjóðleg viðmið eða tilmæli opinberra aðila. Það er því ekki markmið þessarar úttektar heldur öðru fremur að leggja mat á hvort stjórnir fyrirtækja fylgi sannanlega leiðbeiningum um góða stjórnarhætti. Með því er hagsmunaaðilum og öðrum áhugasömum veitt mikilvæg innsýn í hvernig stjórnir og stjórnendur fyrirtækja haga störfum sínum almennt.

Nánari upplýsingar veitir Dr. Eyþór Ívar Jónsson, forstöðumaður Rannsóknarmiðstöðvar í stjórnarháttum fyrirtækja, í síma 842-4333.

Umsögn Rannsóknarmiðstöðvarinnar um Marel er aðgengileg hér

Tengt efni

Fimmtán fengu viðurkenningu fyrir góða stjórnarhætti

Stjórnvísi, Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Nasdaq Iceland ...
24. ágú 2021

Sautján fyrirtækjum veitt viðurkenning fyrir góða stjórnarhætti

Í dag, þann 21. ágúst 2020, veittu Stjórnvísi, Viðskiptaráð Íslands, Samtök ...
21. ágú 2020

Atradius opnar á greiðslutryggingar

Frá hausti 2008 hafa íslensk fyrirtæki, inn- og útflytjendur, lent í allnokkrum ...
27. sep 2011