Ný útgáfa leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja lítur dagsins ljós

Á stafrænum útgáfuviðburði voru helstu breytingar á leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja kynntar í meginatriðum

Ný útgáfa leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja leit dagsins ljós í dag á útgáfuviðburði útgefenda leiðbeininganna, Viðskiptaráði Íslands, Samtökum atvinnulífsins og Nasdaq Iceland.

Þónokkrar breytingar eru gerðar á leiðbeiningunum í 6. útgáfu, þótt uppsetning og meginskilaboð þeirra séu með sama hætti og í fyrri útgáfu. Meðal annars var umfjöllun í leiðbeiningunum um tilgang og inntak þeirra dýpkuð auk þess sem að breytingar voru gerðar á einstökum ákvæðum í samræmi við stefnur og strauma erlendis og hér á Íslandi. Þá var víðtækt samráð haft við hagaðila um þær breytingar sem gerðar voru og ýmsar gagnlegar athugasemdir úr samráðinu urðu kveikja að jákvæðum breytingum á leiðbeiningunum í 6. útgáfu.

Leiðbeiningarnar voru fyrst gefnar út árið 2004 og hafa leiðbeiningarnar verið endurskoðaðar með reglubundnum hætti frá þeim tíma, en síðast voru þær endurnýjaðar árið 2015. Leiðbeiningunum er ætlað að nýtast sem verkfæri stjórnar og stjórnenda til að mæta þeirri ábyrgð sem á þeim hvílir, en það er skoðun útgefenda að með því að fylgja góðum stjórnarháttum megi styrkja innviði fyrirtækja og efla almennt traust gagnvart viðskiptalífinu. Hvort tveggja skiptir sköpum fyrir samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja.

Nýr vefur og rit um tilnefningarnefndir

Megininntak leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja er að stjórnir fyrirtækja skoði með gagnrýnum hætti hvernig þeim þáttum sem leiðbeiningarnar taka á er fyrir komið hjá viðkomandi fyrirtæki og leggi sjálfstætt mat á hvort fyrirkomualgið er skynsamlegt eða réttlætanlegt. Ennfremur er það mikilvægur tilgangur leiðbeininganna að auka gagnsæi og upplýsingagjöf til hluthafa og annarra hagaðila, þannig að þeir geti glögglega gert sér grein fyrir því hvernig málum er hagað í störfum og umgjörð stjórnar.

Samhliða nýrri útgáfu leiðbeininganna hefur ný vefsíða verið opnuð þar sem leiðbeiningarnar má finna í rafrænni útgáfu og á pdf-formi. Þar er einnig að finna skjal þar sem breytingar frá 5. útgáfu eru skýrlega útlistaðar með breytingarsporum. Á næstunni má nálgast prentuð eintök af leiðbeiningunum, hvort tveggja á íslensku og ensku, á skrifstofu Viðskiptaráðs Íslands. Á vefsíðunni er einnig að finna upplýsingarit um tilnefningarnefndir sem ber heitið: Tilgangur og ávinningur tilnefningarnefnda – Reynsla og þróun á Íslandi og Norðurlöndum.

Fyrir þá sem af misstu, er upptöku af útgáfuviðburðinum að finna hér, en þar kynnti Agla Eir Vilhjálmsdóttir, lögfræðingur Viðskiptaráðs, helstu breytingar á leiðbeiningunum að þessu sinni. Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, fjallaði um gildi góðra stjórnarhátta og Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, forstöðumaður samkeppnishæfnisviðs Samtaka atvinnulífsins, fjallaði um tilnefningarnefndir. Þá tjáðu ýmsir þátttakendur í viðskiptalífinu sig um góða stjórnarhætti og þýðingu leiðbeininganna. Svanhildur Hólm Valsdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands, stýrði þættinum.

Það skal tekið fram að ný útgáfa leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja tekur gildi 1. júlí nk. og því þarf ekki að hafa þau fyrirmæli sem þar er að finna í huga á yfirstandandi aðalfundatímabili.

Frekari upplýsingar veitir Agla Eir Vilhjálmsdóttir, verkefnastjóri útgáfunnar.

Myndband af viðburðinum má sjá hér:

Tengt efni

Fyrirmyndarfyrirtækjum veitt viðurkenning

Sextán fyrirtæki þar sem starfshættir stjórna eru vel skipulagðir og framkvæmd ...
26. ágú 2022

Sjálfbærniskýrslur Lífeyrissjóðs Verzlunarmanna og Play valdar skýrslur ársins

Viðurkenningar fyrir sjálfbærniskýrslur ársins voru veittar fyrr í dag við ...
7. jún 2022

6. útgáfa leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja

Útgáfuviðburður vegna útgáfu uppfærðra leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja ...
1. feb 2021