Tilnefndu sjálfbærniskýrslu ársins fyrir 17. maí

Sjálfbærniskýrsla ársins verður verðlaunuð 7. júní

Viðskiptaráð, Festa og Stjórnvísi kalla eftir tilnefningum vegna verðlauna fyrir sjálfbærniskýrslu ársins 2022. Dómnefnd mun meta allar tilnefningar en verðlaunin verða veitt þriðjudaginn 7. júní 2022. Opið er fyrir tilnefningar til 17. maí.

Frá árinu 2018 hafa Viðskiptaráð, Stjórnvísi og Festa verðlaunað bestu sjálfbærniskýrslur íslenskra fyrirtækja. Viðurkenninguna hlýtur fyrirtæki eða stofnun sem birtir upplýsingar um sjálfbærni og samfélagsábyrgð sína með markvissum og vönduðum hætti. Skýrslan getur verið í formi vefsíðu, rafræns skjals eða öðrum hætti sem hentar þeim sem hún á erindi við, s.s. fjárfestum, viðskiptavinum, samstarfsaðilum, yfirvöldum og/eða almenningi.

Fyrirtækjum og stofnunum er frjálst að tilnefna eigin skýrslur.

Fyrri handhafar verðlaunanna eru:

  • 2018: Landsbankinn
  • 2019: Isavia
  • 2020: Krónan
  • 2021: BYKO og Landsvirkjun

Tengt efni

Marel hlaut viðurkenningu fyrir sjálfbærniskýrslu ársins

Viðurkenning fyrir sjálfbærniskýrslu ársins var veitt í hádeginu við hátíðlega ...
8. jún 2023

Viltu tilnefna sjálfbærniskýrslu ársins?

Viðskiptaráð, Festa og Stjórnvísi veita viðurkenningu fyrir sjálfbærniskýrslu ársins
12. apr 2023

Endurskoða þarf íþyngjandi ákvæði persónuverndarlaga

Umsögn Viðskiptaráðs, SA, SI, SFS, SVÞ, SAF, Samorku og SFF um frumvarp til laga ...
25. okt 2022