Viðskiptaráð Íslands

Viðskiptaspjall við Magnús Sverri

Magnús Sverrir Þorsteinsson, forstjóri og einn eigenda Blue Car Rental, tekur þátt í Viðskiptaspjalli Kjarvals, FVH og Viðskiptaráðs sem fram fer 6. október næstkomandi.

Magnús Sverrir Þorsteinsson, forstjóri Blue Car Rental.

Fyrsti gestur vetrarins í Viðskiptaspjalli Kjarvals, FVH og Viðskiptaráðs er Magnús Sverrir Þorsteinsson, forstjóri og einn eigenda Blue Car Rental. Viðburðurinn fer fram á Vinnustofu Kjarvals þann 6. október næstkomandi og hefst kl. 17:00.

Magnús hóf rekstur ungur með aðeins fimm bíla. Í dag stýrir hann einni stærstu bílaleigu landsins með yfir tvö þúsund bíla í flotanum og sinnir samhliða öðrum fjárfestingum.

Magnús hefur lýst sjálfum sér sem góðum í mörgu en frábærum í engu. Hann er stoltur af því að hafa greitt háa skatta í gegnum tíðina. Þá hefur hann vakið athygli á landsvísu sem einn forsvarsmanna Góðgerðafestar Blue Car Rental, sem hefur safnað yfir 100 milljónum króna á síðustu fimm árum.

Í spjallinu verður farið yfir ferilinn, hraðan vöxt fyrirtækisins, áskoranir í ferðaþjónustu, fótbolta, Góðgerðafest og margt fleira.

Aðgangur er ókeypis fyrir félagsmenn FVH, aðildarfélög Viðskiptaráðs og meðlimi Kjarvals.

Tengt efni

Handan þokunnar - Staða og horfur í atvinnulífi á Austurlandi

Viðskiptaráð heldur opinn fund á Hótel Héraði á Egilsstöðum fimmtudaginn 9. apríl kl 17:00.
9. apríl 2026

Viðskiptaspjall við Andra Þór Guðmundsson

Andri mætir í Viðskiptaspjall Kjarval, FVH og Viðskiptaráðs, þriðjudaginn 24. mars kl. 17:00 á Vinnustofu Kjarvals
24. mars 2026

Handan þokunnar - fundur á Egilsstöðum

Viðskiptaráð heldur opinn fund á Hótel Héraði á Egilsstöðum fimmtudaginn 9. apríl kl 17:00. Auður Vala Gunnarsdóttir hjá Blábjörg, Hlöðver Hlöðversson …
1. apríl 2026

Viðskiptaþing 2026

Viðskiptaþing 2026 fer fram 12. febrúar í Borgarleikhúsinu og er einn stærsti viðburður ársins í íslensku viðskiptalífi.
12. febrúar 2026

Viðskiptaspjallið með Jóni Sigurðssyni

Jón Sigurðsson, forstjóri Stoða, mætir í Viðskiptaspjall Kjarval, FVH og Viðskiptaráðs þann 13. nóvember. Viðburðurinn fer fram á Vinnustofu Kjarval.
13. nóvember 2025

Jón í Stoðum í Viðskiptaspjalli á Kjarval

Jón Sigurðsson, forstjóri Stoða, fjallaði um hvernig það var að breyta rekstri Stoða úr flugfélagi yfir í fjárfestingafélag í Viðskiptaspjalli á …
21. nóvember 2025