Yfir 70 umsóknir um námsstyrki

Umsóknarfrestur um námsstyrki úr Menntasjóði Viðskiptaráðs Íslands (MVÍ) er nú liðinn. Rúmlega 70 umsóknir bárust frá íslenskum námsmönnum í framhaldsnámi í 12 löndum víðsvegar um heiminn. 

Valnefnd Námsstyrkjasjóðs MVÍ mun nú fara yfir umsóknirnar og niðurstaða mun liggja fyrir síðar í þessum mánuði. Í valnefndinni sitja dr. Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík, dr. Daði Már Kristófersson, forseti Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands, og Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, stjórnarmaður í Viðskiptaráði Íslands.

Námsstyrkirnir verða veittir á Viðskiptaþingi Viðskiptaráðs sem fram fer á Hilton Reykjavík Nordica þann 12. febrúar næstkomandi. Nánari upplýsingar um þingið má nálgast hér

Viðskiptaráð þakkar umsækjendum fyrir sýndan áhuga og bendir á að frekari upplýsingar um námsstyrki Menntasjóðsins má finna hér.

Tengt efni

Ert þú í framhaldsnámi erlendis?

Nú er opið fyrir umsóknir um námsstyrki úr Menntasjóði Viðskiptaráðs Íslands ...
29. nóv 2022

Opið fyrir umsóknir um námsstyrki

Opið er fyrir umsóknir um námsstyrki úr Menntasjóði Viðskiptaráðs frá og með 7. ...
7. des 2021