Nýjar leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja

Út er komin ný útgáfa leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja, en að henni standa Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og NASDAQ OMX Iceland. Í þessari 4. útgáfu leiðbeininganna er að finna fjölmargar breytingar frá síðustu útgáfu, sem eiga það þó flestar sammerkt að vera formbreytingar fremur en viðamiklar efnisbreytingar.

Markmið leiðbeininganna er, sem fyrr, að bæta stjórnarhætti með því að skýra hlutverk og ábyrgð stjórnenda fyrirtækja, auðvelda þeim þannig að rækja störf sín og um leið treysta hag helstu hagsmunaaðlia fyrirtækja. Leiðbeiningunum er ætlað að sýna vilja viðskiptalífsins í verki til að mæta þeirri ábyrgð sem á því hvílir og frumkvæði þess við að taka upp viðmið sem styrkja innviði fyrirtækja og efla traust almennt gagnvart viðskiptalífinu.

Þóranna Jónsdóttir, formaður starfshóps um stjórnarhætti: „Hvernig fyrirtæki haga stjórnarháttum sínum skiptir sköpum við uppbyggingu trausts á viðskiptalífinu. Leiðbeiningunum er því ekki einungis ætlað að vera tæki fyrir stjórnir fyrirtækja til að gera betur, heldur einnig fyrir hagsmunaaðila fyrirtækja, á borð við fjárfesta og lánadrottna að meta störf stjórna. Takist okkur að koma á víðtæku samstarfi þessara aðila og fjölmargra annarra er grunnur lagður að bættum stjórnarháttum til lengri tíma.“

Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs: "Góðir stjórnarhættir eru aðstandendum íslenskra fyrirtækja hugleiknari nú en fyrir nokkrum árum og verulega hefur að undanförnu miðað í rétta átt í vinnulagi í íslensku atvinnulífi. Ný útgáfa stjórnarháttaleiðbeininga nú er aðeins til stuðnings þessu ferli. Það sem hinsvegar skiptir mestu er að hagsmunaaðilar láti sig góða stjórnarhætti varða og láta þá skipta raunverulegu máli fyrir fyrirtækin. Þar er sérstaklega horft til fjárfesta, lánadrottna, viðskiptavina, starfsfólks eda fjölmiðla. Úttekt a stjórnarháttum, fyrirmyndarfyrirtæki, sem nú er boðið upp á veitir þessum aðilum nauðsynlegar upplýsingar til að taka ákvarðanir sem styðja við áframhaldandi jakvæða þróun í gæðum stjórnarhátta í íslensku atvinnulífi."

Þó leiðbeiningunum sé sérstaklega beint að fyrirtækjum sem teljast tengd almannahagsmunum, s.s. skráðum félögum, fjármálafyrirtækjum, vátryggingafélögum og lífeyrissjóðum, þá geta þær gagnast öllum fyrirtækjum, óháð stærð þeirra og starfsemi. Við gerð leiðbeininganna var efnis leitað víða, en sérstök áhersla var lögð á að þær stæðust samanburð við meginefni Norrænna leiðbeininga á þessu sviði.

Helstu nýjungar leiðbeininganna eru:

  • Aukið er á upplýsingagjöf um aðila í framboði til stjórnar
  • Lagt er til að stjórn skilgreini árlega mikilvægustu verkefni sín
  • Kveðið er á um hvernig skuli haga upplýsingagjöf um samskipti utan stjórnarfunda
  • Lagt er til að í starfsreglum stjórnar sé fjallað um valdheimildir framkvæmdastjóra
  • Óhæðisviðmið hafa verið einfölduð og útfærð nánar m.a. m.t.t. fjölskyldutengsla
  • Lagt er til að stjórn skilgreini árlega þá áhættuþætti sem mikilvægast er að fyrirtækið takist á við
  • Ný liður er um fundargerðir stjórnarfunda
  • Kaflinn um undirnefndir stjórnar hefur verið einfaldaður sem og kaflinn um innra eftirlit
  • Aukið er á upplýsingagjöf á vefsíðum fyrirtækja
  • Meginatriði leiðbeininga um stjórnarhætti opinberra fyrirtækja hafa verið færð í viðauka við nýju leiðbeiningarnar

Leiðbeiningarnar eru aðgengilegar hér. Eintök af leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja í skýrsluformi má panta með tölvupósti og fást þær einnig á skrifstofu Viðskiptaráðs. Leiðbeiningarnar kosta 3.000 kr. Ensk útgáfa leiðbeininganna er aðgengileg hér.

Tengt efni

Allir tapa og enginn vinnur

Árlegur Peningamálafundur Viðskiptaráðs fór fram í morgun í beinni útsendingu ...
18. nóv 2021

Meta þarf áhrif eignarhaldsskorða

Nágrannalönd okkar hafa þróað kerfi í þessum efnum sem við mættum gjarnan hafa ...
26. maí 2020