Bylting í stjórnun!

Þróun fólks = þróun viðskiptavina

Manino kynnir í samstarfi við Viðskiptaráð Íslands ráðstefnu um nútíma stjórnunaraðferðir. Sérstök áhersla er á hvernig vinnustaðir geta eflt starfsfólk, innleitt hamingju og vinnukerfi sem laða fram hugmyndaauðgi starfsmanna.

Ráðstefnan fer fram í aðalsal Hilton Reykjavík Nordica þann 27. september 2018 frá kl. 13:00-16.30. Að ráðstefnu lokinni verður boðið upp á kokteil sem gefur ráðstefnugestum kost á að ræða við fyrirlesara og efla tengsl.

Heimsþekktir fyrirlesarar og stjórnendur munu deila reynslu sinni og árangri.

Fundarstjóri er Helga Arnardóttir fjölmiðlakona og Ásta S. Fjeldsted framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands sér um samantekt.

Þetta er ráðstefna í heimsklassa sem stjórnendur íslenskra fyrirtækja mega ekki missa af!

Miðasala hér

Fyrir hverja?

  • Yfirstjórnendur
  • Stjórnendur
  • Millistjórnendur
  • Breytingasinnað fólk
  • Uppreisnarseggi
  • Alla áhugasama um stjórnun fyrirtækja og stofnanna

Hvar?

  • Hótel Hilton Nordica 27. september frá 13:00-16:30

Verð

Almennt gjald - 25.900 kr.

Aðildarfélagar VÍ (ef 1-2 gestir) -17.900 kr.

Aðildarfélagar VÍ (ef 3 eða fleiri gestir) - 15.900 kr.

Almennt gjald fyrir hópa 3-9 manns - 22.900 kr.

Almennt gjald fyrir hópa 10 manns eða stærri - 21.900 kr.

Miðasala hér

Megin áherslur ráðstefnunnar

Hvernig getur ánægja haft bein áhrif á afkomu?

Þær aðferðir og árangurssögur sem farið verður yfir á ráðstefnunni eiga það sameiginlegt að einblína á nútíma stjórnunarhætti og nýsköpun í stjórnun. Hugtök eins og ánægja starfsmanna, þróun fyrirtækjamenningar, afburðarárangur í rekstri og ánægðir viðskiptavinir eru dæmi um þætti sem nýsköpun í stjórnun einblínir á.

Á ráðstefnunni fáum við m.a. innsýn í „hún hagkerfið“ og hvernig innleiðing hamingju á vinnustað hefur bein áhrif hugmyndaauðgi starfsfólks. Við heyrum hvernig þessar aðferðir eru að breyta fyrirtækjum og stofnunum um allan heim.

Tækniframþróun er gríðarleg áskorun í nútíma fyrirtækjarekstri en án þess að þróa starfsfólkið okkar og vinnukerfi í takt við nýjar tæknilausnir er ekki nema hálfur sigur unninn.

Dagskrá ráðstefnunnar

13.00-13:40 Happiness at work – Alexander Kjerulf

13:40-14:20 8 trends in modern management – Joost Minnaar

14:20-14:50 Kaffihlé

14:50-15:20 Humanity over bureaucracy – Jos De Blok

15:20-16:00 SHEconomy – Benja Stig Fagerland

16:00-16:10 Verðlaunin Bylting í stjórnun 2018

16:10-16:20 Samantekt af Ástu S. Fjeldsted, framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs Íslands

16:20-17:30 Kokteill og tengslamyndun

Miðasala hér

Tengt efni

Virkjum fallega

Skiptar skoðanir eru um raforkuframleiðslu á Íslandi. Dæmin sanna að ...
24. ágú 2022

Endurskoða þarf íþyngjandi ákvæði persónuverndarlaga

Umsögn Viðskiptaráðs, SA, SI, SFS, SVÞ, SAF, Samorku og SFF um frumvarp til laga ...
25. okt 2022

Betra er brjóstvit en bókvit

Eru bækur dýrar?
28. okt 2022