Millilandaráðin eru 16 talsins. Hvert ráð starfar sjálfstætt með sína eigin stjórn og starfsemi. Saman mynda þau svo sterka heild og um leið vettvang til samstarfs og tengsla.

Hér má sjá lista yfir starfandi millilandaráð en nánari upplýsingar um hvert og eitt þeirra má finna á viðeigandi vefsíðum:

Millilandaráðin gegna mikilvægu hlutverki við uppbyggingu viðskiptatengsla milli íslenskra fyrirtækja og erlendra og stendur fyrir fjölþættri starfsemi sem styður við það hlutverk ásamt því að stuðla að aukinni alþjóðavæðingu í íslensku atvinnulífi. Innan ráðanna fer fram öflugt samstarf sem miðar ennfremur að því að bæta aðgengi innlendra fyrirtækja að erlendum mörkuðum og styrkja velvild í þeirra garð.

Fyrir nánari upplýsingar um millilandaráðin hafið samband við Viðskiptaráð í síma 5107100 eða í tölvupósti á bilateral@chamber.is.