Kortlagðir virkjunarkostir gætu margfaldað raforkuframleiðslu Íslands, en hún hefur staðið í stað frá 2017. Rammaáætlun, margar kæruleiðir og veikt flutningskerfi valda því að það tekur áratugi að koma nýrri virkjun í gagnið. Viðskiptaráð leggur til að rammaáætlun verði lögð af og að raforkuframleiðsla verði rúmlega tvöfölduð fyrir 2040.

Ísland getur rúmlega tvöfaldað raforkuframleiðsluna fyrir 2040. Kortlagðir virkjunarkostir á Íslandi gætu margfaldað hana, en framleiðslan hefur staðið í stað frá árinu 2017. Rammaáætlun, fjöldi kæruleiða og tafir í leyfisferlum valda því að það tekur áratugi að koma nýrri virkjun í gagnið. Hvammsvirkjun verður gangsett 32 árum eftir að hún kom fyrst til mats. Flutningskerfið annar þar að auki ekki auknu álagi. Viðskiptaráð leggur til að rammaáætlun verði lögð af og virkjanir fari í gegnum sama leyfisferli og aðrar framkvæmdir, flutningskerfið byggt upp og sett verði opinbert markmið um að raforkuframleiðsla verði rúmlega tvöfölduð fyrir 2040.
Ísland býr yfir mikilli ónýttri orku. Í dag eru rúmlega 80 virkjanir í rekstri á Íslandi, en alls hafa hátt í 150 ónýttir virkjunarkostir á einhverjum tímapunkti verið metnir í rammaáætlun (mynd 1). Árið 2025 voru framleiddar 18,8 teravattstundir af raforku á Íslandi, en samanlögð framleiðslugeta ónýttra virkjunarkosta er yfir 80 teravattstundir á ári, þótt kostirnir séu ekki allir nýtanlegir samtímis og hluti þeirra sé í verndarflokki. Þannig væri hægt að margfalda raforkuframleiðslu á Íslandi.[1, 2]

Til þess að hægt sé að nýta þessa orkukosti þarf að senda virkjunarhugmyndina til Umhverfis- og orkustofnunar, sem vísar henni til verkefnisstjórnar rammaáætlunar. Verkefnisstjórn og faghópar meta hana og tillaga að flokkun er send ráðherra, sem leggur hana fram á Alþingi. Hljóti hún samþykki þarf virkjunarkosturinn að fara í gegnum umhverfismat og skipulagsferli sveitarfélaga áður en virkjunar- og framkvæmdaleyfi fæst (mynd 2).[3]

Af þessum ónýttu kostum hafa 20 verið flokkaðir í orkunýtingarflokk rammaáætlunar. Vaðölduver (áður Búrfellslundur) hóf framleiðslu í september og framkvæmdir standa yfir við Hvammsvirkjun, en framkvæmdir við aðra kosti í orkunýtingarflokki eru ekki hafnar.[1, 4, 5]
Umgjörð um orkunýtingu, sem skilgreind er í rammaáætlun, hefur reynst þung í framkvæmd. Markmið laga um verndar- og orkunýtingaráætlun, sem eru grundvöllur rammaáætlunar, er að afmarka og vernda þau svæði landsins sem undanskilja á orkuframleiðslu og tryggja að nýting landsvæða þar sem er að finna virkjunarhugmyndir byggist á langtímasjónarmiðum og heildstæðu hagsmunamati. Við mat á virkjunarkostum hafa starfað faghópar sem fjalla meðal annars um náttúru- og menningarminjar, samfélagsleg og efnahagsleg áhrif virkjana. Verkefnisstjórn gerir tillögu um flokkun kostanna í nýtingar-, bið- eða verndarflokk og ráðherra leggur tillögu að flokkun fyrir Alþingi sem þingsályktunartillögu. Verkefnisstjórnin er í raun ráðgefandi, þar sem ráðherra getur, að loknu nýju umsagnarferli, fært einstaka virkjunarkosti á milli flokka áður en tillagan er lögð fyrir þingið.[3, 6]
Þeir virkjunarkostir sem metnir hafa verið tækir til nýtingar eru felldir undir orkunýtingarflokk. Í biðflokk fara þeir kostir sem afla þarf frekari upplýsinga um, svo taka megi ákvörðun um hvort þeir eigi að falla í orkunýtingar- eða verndarflokk. Þeir kostir sem ekki er talið rétt að nýta, eða landsvæði sem ástæða er til að friðlýsa, eru settir í verndarflokk (mynd 3).[3]

Verkefnisstjórn og faghópar taka ekki stjórnvaldsákvarðanir og flokkunin sjálf er því ekki kæranleg. Það takmarkar getu hagaðila til að gera athugasemdir við málsmeðferð og hæfi þeirra sem koma að ákvörðunum. Þrátt fyrir það fara þau með mikið vald við mat og flokkun virkjunarkosta.[7]
Erfitt hefur reynst að koma rammaáætlun í gegnum hið pólitíska ferli. Þegar 3. áfangi rammaáætlunar var afgreiddur á Alþingi árið 2022 voru liðin níu ár frá því að verkefnisstjórn hóf vinnu við hann og sex ár frá því að hún skilaði lokaskýrslu sinni.[8, 6]
Rammaáætlun hefur heldur ekki náð að skapa fyrirsjáanleika eða skýran ramma um orkunýtingu. Dæmi eru um að virkjunarkostir séu lengi, jafnvel á annan áratug, í biðflokki. Villinganesvirkjun og Skatastaðavirkjun í Héraðsvötnum voru til dæmis metnar strax í 1. áfanga rammaáætlunar, sem lauk árið 2003, og hafa verið í biðflokki frá 2013. Jafnframt hefur Alþingi fært kosti í biðflokk sem verkefnisstjórn hefur lagt til að fari í orkunýtingarflokk. Holtavirkjun og Skrokkölduvirkjun voru til að mynda ekki færðar í orkunýtingarflokk fyrr en í febrúar 2026, eftir að hafa verið í biðflokki frá 2013, þrátt fyrir að verkefnisstjórn hefði ítrekað lagt til nýtingu. Urriðafossvirkjun situr enn í biðflokki þrátt fyrir að verkefnisstjórnin hafi lagt til nýtingu.[9, 10, 4]
Fyrirkomulag rammaáætlunar er jafnframt einsdæmi. Fyrirmyndin var sambærilegt kerfi í Noregi, en það var lagt af árið 2016. Ekkert sambærilegt kerfi, sem flokkar virkjunarkosti bæði til nýtingar og verndar, þekkist í þeim löndum sem Ísland ber sig jafnan saman við. Náttúruvernd er þegar tryggð í lögum um umhverfismat og skipulag og lögum um náttúruvernd, sem gilda um allar aðrar framkvæmdir. Rammaáætlun bætir þannig sérstöku pólitísku lagi ofan á það regluverk sem þegar sinnir því hlutverki að gæta að náttúruvernd og nærsamfélagi.[11, 12]
Sú viðbót hefur gert það að verkum að langan tíma tekur að hrinda nýjum framkvæmdum af stað. Landsvirkjun áætlar að ferlið taki tólf ár frá því að virkjunarkostur er lagður fram þar til virkjun er gangsett.[13] Í tilfelli Hvammsvirkjunar er þó aðra sögu að segja (mynd 4). Hún kom fyrst til mats sem hluti af Núpsvirkjun í 1. áfanga rammaáætlunar, sem hófst árið 1999, var sett í biðflokk í 2. áfanga árið 2013 og færð í orkunýtingarflokk árið 2015. Frá því að hún var flokkuð í orkunýtingarflokk liðu um níu ár þar til framkvæmdir hófust og áætlað er að framkvæmdirnar taki um sjö ár. Frá því að Hvammsvirkjun kom fyrst til mats í rammaáætlun þar til áætlað er að gangsetja hana líða 32 ár.[9, 14, 15, 16]

Kæruleiðir vegna helstu ákvarðana um virkjanir eru margar og því geta mörg kæruferli farið af stað í aðdraganda framkvæmda. Í undirbúnings- og leyfisveitingaferlinu eru fjórar ákvarðanir sem kæra má til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála (mynd 5). Í nágrannalöndum okkar eru þær einungis ein til tvær.[7] Kærufrestur til nefndarinnar er einn mánuður og nefndin skal jafnan kveða upp úrskurð innan þriggja til sex mánaða. Uni kærandi ekki niðurstöðu nefndarinnar getur hann farið með málið fyrir dómstóla. Þessar ríku kæruheimildir á mörgum stigum geta tafið verulega fyrir framkvæmdum.[17, 7]

Ferli leyfisveitinga fyrir Hvammsvirkjun dregur skýrt fram hversu íþyngjandi þessar kæruheimildir geta verið. Úrskurður Skipulagsstofnunar um umhverfismat frá árinu 2003 var kærður til umhverfisráðherra, sem staðfesti hann í apríl 2004. Ákvörðun Skipulagsstofnunar frá 2015 um að endurskoða matið aðeins að hluta var kærð til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í janúar 2016. Nefndin hafnaði kröfunum í febrúar 2018, rúmum tveimur árum eftir að kæran barst eða um einu og hálfu ári eftir að lögbundinn frestur var liðinn.[15, 18]
Virkjunarleyfi Orkustofnunar frá desember 2022 var kært í janúar 2023 og fellt úr gildi í júní sama ár. Framkvæmdaleyfi Skeiða- og Gnúpverjahrepps frá júní 2023 var fellt úr gildi í október. Landeigendur höfðuðu síðan mál gegn ríkinu og Landsvirkjun vegna nýrrar heimildar til breytingar á vatnshloti og nýs virkjunarleyfis frá 2024. Héraðsdómur felldi hvort tveggja úr gildi í janúar 2025 og Hæstiréttur staðfesti þá niðurstöðu í júlí sama ár.[19, 20, 15]
Þá var virkjunarleyfi sem Umhverfis- og orkustofnun veitti til bráðabirgða í ágúst 2025 kært daginn eftir útgáfu þess, en úrskurðarnefndin hafnaði kröfu um ógildingu. Framkvæmdaleyfi fyrir undirbúningsframkvæmdum var einnig kært og nefndin hafnaði sömuleiðis kröfu um ógildingu þess. Landeigendur höfðuðu svo mál gegn íslenska ríkinu, Landsvirkjun og fleirum vegna endurnýjaðs virkjunarleyfis sem gefið var út í desember 2025, en héraðsdómur sýknaði í júní 2026. Þá var framkvæmdaleyfi Skeiða- og Gnúpverjahrepps jafnframt kært.[21, 22, 23]
Af þessu er ljóst að kæruheimildir í leyfisveitingaferlinu eru of ríkar. Eðlilegast væri að aðilum gæfist tækifæri til að kæra framkvæmdir sem þessar einu sinni. Þetta er reyndar sérstaklega brýnt þegar horft er til þess að t.d. rýmkuð kæruaðild fyrir nefndinni er ekki til þess fallin að fækka ágreiningsmálum og þar með minnka tafir mála á stjórnsýslustigi. Með rýmkuðu kæruaðildinni er hér átt við lögbundinn rétt umhverfisverndar-, útivistar- og hagsmunasamtaka með minnst 30 félaga til að kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála þegar um tilteknar stjórnvaldsákvarðanir og ætlað brot gegn þátttökurétti er að ræða. Þar á meðal eru ákvarðanir HMS um matsskyldu og ákvarðanir um leyfisveitingar vegna framkvæmda sem falla undir lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana.[17]
Þannig mætti tryggja að niðurstaða fengist í málið innan eðlilegra tímamarka og að hægt væri að halda áfram með framkvæmdir án þess að nýjar kæruleiðir opnuðust og þar með sú óvissa sem þeim fylgir.
Þá hafa tímafrestir einnig verið vandamál í orkuframkvæmdum, hvort sem það er í uppbyggingu virkjana eða flutningskerfisins. Þegar lögbundnir tímafrestir eru ekki virtir, hvort sem það er í leyfisveitingaferli eða kæruferli, getur það orsakað að framkvæmdir tefjist mikið, jafnvel um einhver ár.
Hér að ofan var fjallað um kæru sem barst úrskurðarnefndinni í janúar 2016 vegna umhverfismats Hvammsvirkjunar, en afgreiðsla hennar dróst um eitt og hálft ár fram yfir lögbundinn frest. Það er ekki einsdæmi. Framkvæmdir við Kröflulínu 3 töfðust verulega vegna þess að lögbundnir frestir við afgreiðslu leyfa voru ekki virtir. Matsáætlunarstig framkvæmdarinnar tók, að kæru meðtalinni, rúm tvö ár en hefði átt að taka um fjóra mánuði ef frestir hefðu verið virtir. Sama átti við um Hólasandslínu 3, þar sem hluti matsferlisins, sem lögum samkvæmt á að taka tíu vikur, tók meira en ár.[24]
Tafir sem þessar á lögbundnum tímafrestum eru afar kostnaðarsamar, þar sem þær valda því að veigamiklar framkvæmdir sitja á hakanum.
Þungt ferli rammaáætlunar, ríkar kæruheimildir og afskiptaleysi gagnvart lögbundnum tímafrestum hafa átt verulegan þátt í stöðnun í orkuöflun. Framleiðslan hefur staðið í stað í kringum 19 teravattstundir frá 2017 og raforka á mann hefur dregist saman á meðan landsmönnum hefur fjölgað. Uppsett afl virkjana á Íslandi hefur jafnframt aukist lítið síðastliðinn áratug, sérstaklega þegar horft er til fyrsta áratugar 21. aldarinnar (mynd 6).[25]

Þessi stöðnun hefur þegar haft afleiðingar. Veturinn 2023 til 2024 þurfti Landsvirkjun að skerða afhendingu um tæpar 500 gígavattstundir.[26]
Grunnspá Umhverfis- og orkustofnunar gerir ráð fyrir hóflegum vexti í umsvifum og núverandi þróun í orkuskiptum. Háspáin gerir aftur á móti ráð fyrir auknum umsvifum stórnotenda og hraðari orkuskiptum. Hvort sem horft er til grunn- eða háspár er þörf á að tryggja að vöxtur orkuöflunar verði hraðari á komandi árum en hann hefur verið undanfarinn áratug.[27]
Jákvæð skref hafa verið stigin í átt að einfaldara og skilvirkara regluverki um orkuöflun. Á árinu 2026 voru samþykktar breytingar á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun og raforkulögum, sem miða meðal annars að aukinni skilvirkni í orkuöflun. Einnig voru samþykkt lög um einföldun og samræmingu leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála. Þá hafa fimm nýir kostir, samtals tæplega tvær teravattstundir, verið færðir í orkunýtingarflokk og fyrsta stóra vindorkuver landsins, Vaðölduver, hóf framleiðslu í september. En það er innan við tíundi hluti af þeim kostum sem bíða í orkunýtingar- og biðflokki og flokkun í orkunýtingarflokk er aðeins fyrsta skrefið af mörgum, eins og saga Hvammsvirkjunar sýnir. Ferlið er því enn þungt og löng leið að framkvæmdum.[28, 29, 4, 5]
Til að geta hafið nýtt orkuöflunarskeið dugir ekki að horfa aðeins til virkjana, þar sem flutningskerfið þarf að vera í stakk búið til að flytja aukið rafmagn.
Nú þegar er lítið rými til að bæta við álagi á afhendingarstöðum. Árið 2024 gátu 18 af 26 afhendingarstöðum aðeins tekið við 0–10 megavöttum til viðbótar (mynd 7). Helstu flöskuhálsarnir eru gamlar flutningslínur. Byggðalínan var orðin nærri hálfrar aldar gömul árið 2021 og raforkunotkun hefur margfaldast frá því hún var reist. Því er mikilvægt að flutningskerfið sé byggt upp samhliða aukinni orkuöflun.[30, 31]

Það er gríðarlega kostnaðarsamt fyrir samfélagið í heild að raforka komist ekki þangað sem þörfin er. Bæði tapast beinar tekjur af sölu raforkunnar og afleidd störf sem hefðu orðið til með öflugra atvinnulífi. Landsnet áætlar að flutningstakmarkanir hafi kostað Ísland um 11–15 ma. kr. á ári undanfarin ár, án þess að tekið sé tillit til glataðra tækifæra í atvinnuuppbyggingu.[32] Landsnet þurfti sem dæmi að hafna 100 formlegum fyrirspurnum um tengingu á árunum 2018 til 2021. Þannig veikist geta hagkerfisins til að vaxa ef flutningskerfið hefur takmarkaða flutningsgetu.[33]
Því er afar mikilvægt að flutningskerfið verði byggt upp til framtíðar og að áætlun Landsnets um að enginn afhendingarstaður verði með minna en 30 MW tiltæka afhendingargetu árið 2030 nái fram að ganga. Sú breyting myndi styðja við uppbyggingu atvinnulífs um land allt og leggja grunninn að hagvexti til framtíðar.
Vindorka fellur vel að vatnsaflskerfinu. Vindorka á landi er ódýrasti kostur nýrrar endurnýjanlegrar raforkuframleiðslu í heiminum og þegar hafa margir nýir og aflmiklir vindorkukostir ratað inn í rammaáætlun og bíða mats. Miklir kostir geta fylgt uppbyggingu vindorkuvera í grennd við miðlunarlón vatnsaflsvirkjana. Hægt væri að safna vatni í lónin þegar vindurinn blæs og síðan ganga á miðlunarlónin þegar vindmyllurnar framleiða ekki rafmagn.[34]
Svæðin við miðlunarlón eru þegar röskuð af stíflum, vegum og rafmagnslínum, svo áhrif vindorkuvers við miðlunarlón á ósnortna náttúru eru lítil. Þá eru tengivirki og háspennulínur þegar til staðar og ekki þörf á að bíða eftir nýjum línum eða tengingum inn á kerfið.
Vaðölduver, sem nú rís nálægt Sultartangastöð, er gott dæmi um slíka framkvæmd. Það verða um 120 megavött af uppsettu afli í nágrenni við önnur orkumannvirki, háspennulínur og aflstöðvar.[35]
Samhengið milli orku og lífskjara er eitt það skýrasta sem hagtölur heimsins sýna. Í þeim 19 ríkjum, með yfir milljón íbúa, þar sem verg landsframleiðsla (VLF) á mann er undir 3.000 dölum notar ekkert þeirra meira en um 1.800 kWst á mann. Það er innan við 1% af notkun Íslands. Ríkasti fjórðungur landa notar að miðgildi um 38 þúsund kWst á mann en sá fátækasti um tólf hundruð kWst, eða rúmlega þrjátíufalt minna (mynd 8). Ekkert ríki með há lífskjör býr við litla orkunotkun.[36, 7]

Eftirspurn eftir hreinni og stöðugri orku vex úr mörgum áttum. Í hæstu sviðsmynd grænbókar stjórnvalda um orkumál frá 2022 kalla full orkuskipti ásamt spáðum vexti stórnotenda á um 23,7 teravattstundir til viðbótar fyrir 2040, rúmlega tvöföldun framleiðslunnar.[37]
Nýr og ört vaxandi þáttur í raforkueftirspurn heimsins er uppbygging gagnavera. Alþjóðaorkumálastofnunin metur að raforkunotkun gagnavera í heiminum hafi aukist um 17% árið 2025 og spáir því að hún tvöfaldist fyrir 2030. Vestanhafs bíða ný orkuver um fimm ár eftir tengingu við flutningskerfið. Ísland getur boðið stöðugt afl, byggt á endurnýjanlegri orku, og ætti að nýta sér það samkeppnisforskot til að laða til sín frekari fjárfestingar.[38, 39, 40]
Rétt er þó að geta þess að ekki er lagt til að orka verði frátekin fyrir tilteknar atvinnugreinar. Verkefnið er að auka framboðið svo að allir sem vilja kaupa orku á markaðsverði geti fengið hana.
Ísland stendur framarlega þegar kemur að grænni orkuöflun. Uppbygging vatnsaflsvirkjana á 20. öld og snemma á 21. öld setti okkur í fremstu röð í nýtingu hreinna orkugjafa og allt frá því snemma á áttunda áratugnum hefur endurnýjanleg orka verið meirihlutinn af orkunotkun landsins.[41]
Ísland býr þó við þá stöðu að eiga enn mikið af ónýttum orkukostum. Í ljósi þess að orkuöflun er grunnforsenda fyrir frekari sókn í atvinnulífi og því skýra samhengi sem er á milli orkunotkunar og lífsgæða er mikilvægt að stjórnvöld stuðli að aukinni orkuöflun.
Það þunga stjórnsýsluferli sem er í kringum rammaáætlun kemur í veg fyrir að hægt sé að blása til sóknar í orkumálum á næstu árum. Málsmeðferðartíminn er of langur, tækifæri til að stöðva eða hægja á framkvæmdum eru of mörg og ferlinu í heild sinni er í of miklum mæli stýrt af hinu opinbera. Þetta sést einna skýrast á því að frá því að lög um rammaáætlun voru samþykkt árið 2011 hafa aðeins risið tvær nýjar virkjanir, auk Vaðölduvers sem hóf framleiðslu í september.[42]
Viðskiptaráð telur að þörf sé á grundvallarbreytingum í lagaumgjörð í kringum orkuöflun, svo liðka megi fyrir frekari uppbyggingu atvinnulífs til framtíðar. Í því samhengi leggur ráðið eftirfarandi til:
Þrjár leiðir koma til greina. Viðskiptaráð telur almennu leiðina ákjósanlegasta:
[1] Alþingi (2022). Þingsályktun um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða (3. áfangi), með síðari breytingum: althingi.is.
[2] Raforkueftirlitið (2026). Uppsett rafafl og raforkuvinnsla í virkjunum á Íslandi 2025: vefskrar.orkustofnun.is.
[3] Alþingi (2026). Lög um verndar- og orkunýtingaráætlun nr. 48/2011: althingi.is.
[4] Stjórnarráðið (2026). Holtavirkjun og Skrokkölduvirkjun samþykktar í orkunýtingarflokk: stjornarradid.is.
[5] Stjórnarráðið (2026). Þrjár virkjanir samþykktar í orkunýtingarflokk rammaáætlunar: stjornarradid.is.
[6] Verkefnisstjórn 3. áfanga rammaáætlunar (2016). Lokaskýrsla verkefnisstjórnar 3. áfanga verndar- og orkunýtingaráætlunar: ramma.is.
[7] Viðskiptaráð Íslands (2023). Orkulausnir: Skýrsla Viðskiptaþings 2023: vi.is.
[8] Samorka (2022). Rammaáætlun afgreidd eftir níu ára bið: samorka.is.
[9] Verkefnisstjórn um gerð rammaáætlunar (2003). Niðurstöður 1. áfanga rammaáætlunar: os.is.
[10] Alþingi (2013). Nefndarálit um tillögu til þingsályktunar um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, þskj. 526, 141. löggjafarþing: althingi.is.
[11] Store norske leksikon (e.d.). Samlet plan for vassdrag: snl.no.
[12] Viðskiptaráð Íslands (2025). Rammaáætlun reynst dragbítur á framgang nauðsynlegra orkuskipta: vi.is.
[13] Landsvirkjun (2023). Leyfin og tíminn: landsvirkjun.is.
[14] Landsvirkjun (2009). Hvammsvirkjun, Holtavirkjun og Urriðafossvirkjun: Rammaáætlun II: ramma.is.
[15] Hæstiréttur Íslands (2025). Mál nr. 11/2025: island.is.
[16] Landsvirkjun (2026). Bygging Hvammsvirkjunar boðin út: landsvirkjun.is.
[17] Alþingi (2026). Lög um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála nr. 130/2011: althingi.is.
[18] Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála (2018). Mál nr. 10, 11 og 15/2016, Hvammsvirkjun: uua.is.
[19] Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála (2023). Mál nr. 3/2023, Hvammsvirkjun: uua.is.
[20] Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála (2023). Mál nr. 74/2023, Framkvæmdaleyfi Hvammsvirkjunar: uua.is.
[21] Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála (2025). Mál nr. 128/2025, Hvammsvirkjun: uua.is.
[22] Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála (2025). Mál nr. 130/2025, Hvammsvirkjun: uua.is.
[23] Landvernd (2026). Hvammsvirkjun hleypt í gegn í héraðsdómi: landvernd.is.
[24] Landsnet (2020). Greinargerð um tillögur til úrbóta í kjölfar truflana í norðanseltuóveðri í desember 2019: stjornarradid.is.
[25] Ember (2026). Yearly Electricity Data: ember-energy.org.
[26] Landsvirkjun (2025). Annual Report 2024: landsvirkjun.com.
[27] Umhverfis- og orkustofnun (2026). Orkuspá Íslands 2025–2050: uos.is.
[28] Stjórnarráðið (2026). Ferli rammaáætlunar gert að samfellu og tímatakmörk sett á virkjanaferli: stjornarradid.is.
[29] Stjórnarráðið (2026). Alþingi samþykkti breytingar á tólf lagabálkum til þess að einfalda regluverk orkumála: stjornarradid.is.
[30] Landsnet (2025). Kerfisáætlun 2025–2034: Umhverfismatsskýrsla: landsnet.is.
[31] Bændablaðið (2021). Spennu hleypt á fyrstu línu í nýrri kynslóð byggðalínu: bbl.is.
[32] Landsnet (2025). Kerfisáætlun 2025–2034: Langtímaáætlun: landsnet.is.
[33] Landsnet (2022). Tafir og töpuð tækifæri: landsnet.is.
[34] IRENA (2025). Renewable Power Generation Costs in 2024: irena.org.
[35] Landsvirkjun (2026). Fyrsta vindorkuver landsins komið í gang: landsvirkjun.is.
[36] Our World in Data (2026). Energy use per person vs. GDP per capita: ourworldindata.org.
[37] Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið (2022). Staða og áskoranir í orkumálum (grænbók): stjornarradid.is.
[38] IEA (2026). Data centre electricity use surged in 2025: iea.org.
[39] IEA (2026). Key Questions on Energy and AI: iea.org.
[40] Lawrence Berkeley National Laboratory (2026). Queued Up: 2026 Edition: emp.lbl.gov.
[41] Orkustofnun (2023). Frumorkunotkun 1940–2022: orkustofnun.is.
[42] Alþingi (2024). Svar umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra við fyrirspurn um virkjunarkosti, þskj. 1868, 154. löggjafarþing: althingi.is.