Viðskiptaráð fagnar því að lokaeinkunnir í 10. bekk verði settar fram með tölum í stað bókstafa. Ráðið bendir þó á að breytingin hafi takmarkað gildi nema tryggt sé að sama einkunn endurspegli sambærilega hæfni óháð skóla og leggur til að matsviðmið og vægi hæfniviðmiða verði betur skilgreind og samræmd.

Viðskiptaráð hefur skilað umsögn um drög að ákvæði til bráðabirgða í aðalnámskrá grunnskóla. Drögin fela í sér að talnakvarði komi í stað bókstafskvarða við einkunnagjöf í 10. bekk og við brautskráningu úr grunnskóla skólaárið 2026-2027.
Viðskiptaráð fagnar því að lokaeinkunnir verði settar fram með tölum í stað bókstafa, en ráðið skilaði áður umsögn um áform um breytingar á námsmatshluta aðalnámskrár grunnskóla.
Ráðið telur þó brýnt að ítreka að það hvort einkunn sé sett fram með bókstaf eða tölu hefur takmarkað gildi ef ekki er tryggt að sama einkunn endurspegli sambærilega hæfni óháð því í hvaða skóla hún er veitt. Því er mikilvægt að einkunnir og matsviðmið séu samanburðarhæf milli skóla og er það jafnframt forsenda jafnræðis nemenda við umsókn í framhaldsskóla. Má í þessu sambandi benda á niðurstöðu greiningar Viðskiptaráðs um að lítið samhengi sé á milli lokaeinkunnar grunnskóla og frammistöðu nemenda í framhaldsskóla.
Í þessu ljósi gerir ráðið í fyrsta lagi athugasemdir við fyrirhuguð matsviðmið. Samkvæmt drögunum á einkunnin 7 að endurspegla að nemandi hafi náð skilgreindum hæfniviðmiðum, en einkunnir á bilinu 8-10 lýsi stigvaxandi dýpt, öryggi, sjálfstæði og beitingu hæfni. Hér er um matskennd hugtök að ræða og er óljóst af drögunum hvernig eigi að tryggja samræmda túlkun þeirra meðal kennara í ólíkum skólum.
Í öðru lagi gerir Viðskiptaráð athugasemdir við þær fyrirætlanir að útfærsla á vægi hæfniviðmiða, sem lögð eru til grundvallar námsmati, verði áfram ósamræmd og að miklu leyti undir hverjum grunnskóla komið með tilgreiningu í skólanámskrá. Er bent í því sambandi á að vægi mennta- og barnamálaráðuneytisins fyrir skólaárið 2026-2027 sé aðeins leiðbeinandi. Á meðan grunnskólum er veitt of mikið svigrúm til að ákvarða vægi hæfniviðmiða í skólanámskrá sinni verður ekki tryggt að nemendur úr ólíkum skólum með sambærilega færni fái sambærilega einkunn.
Til þess að markmið breytinganna um aukið jafnræði meðal nemenda í ólíkum skólum náist leggur Viðskiptaráð til að þessir mælikvarðar verði betur skilgreindir til að tryggja að matsviðmið séu samræmd.