Íslensk útrás - London

Staðsetning: London

Verslunarráð Íslands í samráði við Bresk-íslenska verslunarráðið stendur fyrir ferð til London 7. - 8. apríl 2005.

Bakkavör, NOVATOR og Baugur heimsótt. Stutt seminar um útrás íslenskra fyrirtækja til Bretlands í sendiráði Íslands í Lundúnum.

Gist á glæsilegu og nýuppgerðu hóteli, The Cumberland. Nánari upplýsingar um hótelið hér. Verð fyrir flug, hótel, morgunverð, rútuferðir og fundi er 79.000.

Fólki gefst kostur á að dvelja í London yfir helgi og bætist þá aðeins við aukakostnaður vegna gistingar.

Einungis 30 sæti eru í boði og þarf að staðfesta þáttöku fyrir 21. janúar. Fulltrúar aðildarfyrirtækja VÍ og BRÍS ganga fyrir.

Athygli fótboltaunnenda er vakin á því að Eiður Smári og félagar hans í Chelsea spila á Stamford Bridge gegn Birmingham laugardaginn 9. apríl.

Nánari upplýsingar gefur Erla Ýr Kristjánsdóttir í síma 510 7100 eða á erla@vi.is

Tengt efni

Er framtíðin sjálfbær og gagnsæ?

Morgunfundur KPMG í samstarfi við Viðskiptaráð.
27. okt 2022

Er framtíðin sjálfbær og gagnsæ?

Morgunfundur KPMG í samstarfi við Viðskiptaráð.
25. okt 2022

Einkavæðing fjarskiptafyrirtækis

Þýsk-íslenska verslunarráðið í samstarfi við Verslunarráð efnir til fundar með ...
14. jan 2005