Námskeið - Incoterms 2010

Staðsetning: Grand Hótel Reykjavík

Landsnefnd Alþjóða viðskiptaráðsins (ICC) stendur fyrir námskeiði um alþjóðlegu vöruflutningsskilmálana Incoterms 2010 miðvikudaginn 29. september. Ný og endurskoðuð útgáfa verður kynnt á fundi ICC í París þann 27. september. Margir hafa beðið eftir þessari endurskoðun með óþreyju, en 10 ár eru liðin síðan síðasta endurskoðun flutningsreglnanna kom út.

Fyrirlesari á námskeiðinu verður Asko Räty lögmaður og einn helsti sérfræðingur Finna á þessu sviði, en hann starfaði í nefnd ICC um endurkoðun Incoterms. Námskeiðið verður haldið tvisvar, fyrir og eftir hádegi, með sömu dagskrá í bæði skiptin.

Námskeiðið er sérstaklega gagnlegt fyrirtækjum sem standa í inn- og útflutningi, en er einnig nytsamlegt lögfræðingum, endurskoðendum, flutningafyrirtækjum og öllum þeim sem áhuga hafa á alþjóðaviðskiptum. Námskeiðið fer fram á ensku, en bókin Incoterms 2010 fylgir með námskeiðsgögnum.

Þátttökugjald er kr. 40.000. Félögum í Landsnefnd Alþjóða viðskiptaráðsins, millilandaráðum og Viðskiptaráði Íslands er veittur 20% afsláttur og fá þátttökugjaldið á kr. 32.000.

Skráning fer fram hér

Nánari upplýsingar um Incoterms og námskeiðið (á ensku):

Incoterms is a set of international rules for the interpretation of the most commonly used trade terms in foreign trade. They define the delivery of goods from seller to buyer, division of costs, transfer of risk and seller's and buyer's mutual obligations.

Incoterms 2010 reflects changes and evolutions in international business and commercial practice. In addition to the 11 Incoterms rules, this publication contains graphics and extensive guidance notes to facilitate their use. Since 1936, ICC’s Incoterms help traders avoid misunderstandings by clarifying costs, risks, and the allocation of certain responsibilities of buyers and sellers in sales contracts.

The lecture consists of presentation of thirteen Incoterms and their proper use. Division of costs and transfer of risk will be discussed, as well as other mutual obligations. Presentation is supported by several examples and cases. The speaker will also handle contracts of carriage as part of delivery and marine insurance as part of risk management. The delivery has a link to revenue recognition and accounting. The choice of custom of trade and correct term of delivery are discussed from strategically point of view.

Tengt efni

Ákvörðun sem kostað hefur íslenskt atvinnulíf 9,8 milljarða

Að innleiða regluverk, sem sniðið er að milljóna manna þjóðum, með meira ...
2. okt 2023

Fullt hús á námskeiði Viðskiptaráðs og LOGOS

Helga Melkorka Óttarsdóttir og Arnar Sveinn Harðarson fjölluðu um breytingar á ...
10. mar 2023

Námskeið um breytt regluverk

Viðskiptaráð og LOGOS standa fyrir námskeiði um breytingar á regluverki á sviði ...
28. feb 2023