Forsendur virks verðbréfamarkaðar

Staðsetning: 20. hæð í Turninum í Kópavogi

Þriðjudaginn 15. maí fer fram annar fundur í fundarröð Deloitte, Kauphallarinnar og Viðskiptaráðs Íslands um mikilvægi virks verðbréfamarkaðar á Íslandi. Fundurinn er haldinn á 20. hæð í Turninum í Kópavogi frá klukkan 8.15 til 10.15.

Á þessum fundi verður farið yfir forsendur virks verðbréfamarkaðar og m.a. rætt um fjármögnun, áhrif gjaldeyrishafta, hlutverk endurskoðenda og verðbréfamarkaðinn almennt frá hruni.

Erindi flytja Páll Harðarson forstjóri NASDAQ OMX Iceland, Hreiðar Bjarnason framkvæmdastjóri markaða og fjárstýringar hjá Landsbankanum, Sigurður Páll Hauksson endurskoðandi hjá Deloitte og formaður FLE, Gísli Hauksson framkvæmdastjóri hjá GAMMA og Örn Valdimarsson forstöðumaður greiningar hjá Eyrir Invest.

Aðgangseyrir er kr. 3.500 með morgunverði sem hefst kl. 8.00. Skráning fer fram á skraning@deloitte.is

Tengt efni

Virkur verðbréfamarkaður

Fundarröð Deloitte, Kauphallarinnar og Viðskiptaráðs Íslands um mikilvægi virks ...
24. nóv 2011

Skattafrumvörp og áhrif á atvinnulífið

Í tilefni af nýju skattafrumvarpi býður Deloitte til opins upplýsingafundar um ...
9. des 2009

Skattadagur Deloitte, Viðskiptaráðs o.fl.

Skattadagur Deloitte, í samstarfi við Viðskiptaráð Íslands, Samtök ...
11. jan 2011