Samkeppnishæfni Íslands 2017

Staðsetning: Norðurljósasalur Hörpu

Tímasetning: Miðvikudaginn 31. maí kl. 08:15 - 10:00

Viðskiptaráð Íslands og Íslandsbanki bjóða á morgunverðarfund í Hörpu þar sem niðurstöður viðskiptaháskólans IMD á samkeppnishæfni Íslands fyrir árið 2017 verða kynntar.

Þema fundarins í ár er menntun og samkeppnishæfni mannauðs.

Kristrún Mjöll Frostadóttir, hagfræðingur Viðskiptaráðs Íslands kynnir niðurstöður úttektarinnar og greinir frá stöðu Íslands.

Benedikt Jóhannesson, fjármálaráðherra, Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík og Stefanía Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri CCP á Íslandi flytja erindi, taka þátt í umræðum og svara spurningum gesta.

Skráning fer fram á vef Íslandsbanka.

Tengt efni

Íslenski sjávarklasinn - Fiskast best á markmiðum?

Þér er boðið á kynningarfund um íslenska sjávarklasann í höfuðstöðvum Marels að ...
17. nóv 2011

Upptaka frá fundi um samkeppnishæfni Íslands 2014

Viðskiptaráð Íslands og VÍB héldu fund á dögunum um úttekt IMD háskólans á ...
26. maí 2014