Athugið: Uppselt er á Viðskiptaþing 2023.

Til að skrá þig á biðlista, sendu póst á vi@vi.is.

Er framtíðin orkulaus eða orkulausnir?

Ýmsar vísbendingar eru um að Íslendingar hafi sofnað á verðinum í orkumálum. Eftirspurn eftir raforku er mun meiri en framboðið og því verða fjölmörg góð verkefni ekki að veruleika. Kostnaður samfélagsins vegna tapaðra tækifæra hleypur á tugum milljarða króna á hverju ári og metnaðarfull markmið stjórnvalda í loftslagsmálum eru í hættu.

Það er algjör óþarfi að verða orkulaus. Á Viðskiptaþingi 2023 leitum við lausna með aðstoð fulltrúa fyrirtækja og sérfræðinga. Leitast verður við að varpa ljósi á tækifæri til orkunýtingar og leiðir til að yfirstíga hindranir með það að markmiði að skapa nauðsynleg verðmæti fyrir samfélagið allt. Meðal umfjöllunarefna eru tengsl orkuframboðs og lífsgæða, orkuöryggi og byggðamál, nýsköpun og bætt nýting, sem og samkeppnisstaða á orkumarkaði.

Meðal þeirra sem koma fram eru:

Guðlaugur Þór Þórðarson, ráðherra umhverfis-, orku- og loftlagsmála, sem situr fyrir svörum þinggesta um stöðu og framtíð orkumála.

Dr. Paul Turner, forstjóri Hecate Wind, fjallar um möguleika Íslands á að nýta vindorku á hafi úti. Paul er verkfræðingur og doktor í hagfræði og hefur 25 ára reynslu úr orkugeiranum, með sérstaka áherslu á endurnýjanlega orku og markaðslausnir.

Ásgeir Margeirsson, verkfræðingur og fyrrverandi forstjóri HS Orku, talar um einkarekstur og samkeppni á orkumarkaði. Íris Baldursdóttir, annar stofnenda og framkvæmdastjóri Snerpu Power, segir frá lausn sem jafnast á við nýja virkjun. Sæmundur Sæmundsson, formaður orku-, umhverfis- og sjálfbærnihóps kynnir skýrslu þingsins. Einnig taka til máls Halla Hrund Logadóttir, orkumálastjóri, Finnur Beck, nýr framkvæmdastjóri Samorku og Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, auk þess sem við heyrum fjölbreyttar raddir úr atvinnulífinu.

Að vanda munu Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og Ari Fenger, formaður Viðskiptaráðs, flytja ávörp.

Miðaverð:

  • Almennt miðaverð: 28.900 kr.
  • Aðildarfélagar Viðskiptaráðs (ef 1-2 gestir): 19.900 kr.
  • Aðildarfélagar Viðskiptaráðs (ef 3+ gestir): 17.900 kr.

Innifalið í miðaverði: Aðgöngumiði og kaffiveitingar í hléi auk kokteils og léttra veitinga að dagskrá lokinni.