Er Ísland opið fyrir fjárfestingu - Frá orðum til athafna

Staðsetning: Grand Hótel - Hvammur kl. 8:15-10:00

Miklar breytingar hafa orðið á íslensku fjárfestingaumhverfi síðastliðin tvö ár, en eftir hrun íslensku krónunnar í kjölfar gjaldþrots viðskiptabankanna þriggja kom Seðlabankinn á gjaldeyrishöftum sem enn eru í gildi.

Markmið þessa fundar er að stuðla að opinni umræðu meðal aðila viðskiptalífsins um fjárfestingaumhverfið á Íslandi í ljósi gjaldeyrishaftanna. Málefnaleg umræða um gjaldeyrishöft er einkar mikilvæg á þessum tímapunkti, en fjárfesting er nauðsynleg í endurbyggingu hagkerfisins. Mikilvægt er að við búum vel að því umhverfi og það hvetji til fjárfestinga hvort sem um er að ræða umhverfi fyrir innlenda eða erlenda fjárfesta.

Framsögumenn og þátttakendur í pallborði eru:
Arnór Sighvatsson, aðstoðarbankastjóri Seðlabanka Íslands
Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norðuráls
Páll Harðarson, Kauphöll Íslands

Auk þeirra taka þátt í pallborðsumræðum:
Agnar Hansson, forstöðumaður markaðsviðskipta hjá H.F. Verðbréfum
Kristinn Hafliðason, verkefnisstjóri hjá Fjárfestingarstofu
Tanya Zharov, lögfræðingur Auðar Capital

Fundarstóri er Benedikt Jóhannesson, ritstjóri Vísbendingar, en hann mun einnig stýra pallborðsumræðum.

Eins og áður sagði verður fjallað um fjárfestingaumhverfið hér á landi og ættu fundargestir að geta fengið innsýn í raunveruleg vandamál og lausnir mismunandi aðila viðskiptalífsins. Efnistök snerta m.a. á málefnum sem þessum:

  • Hver eru áhrif gjaldeyrishafta á fjárfestingaumhverfið?
  • Er Ísland raunhæfur fjárfestingakostur fyrir erlenda aðila miðað við þá óvissu sem hér ríkir?
  • Hver eru næstu skref varðandi gjaldeyrishöftin, munu þau halda eða ætti að afnema þau strax?
  • Hvað má betur fara í umhverfi fjárfestinga bæði fyrir innlenda og erlenda aðila?

Verð er kr. 2.900.-

Fréttir tengdar þessum viðburði:
Skapa þarf tækifæri til fjárfestinga
Opin umræða um fjárfestingu og gjaldeyrishöft

Tengt efni

Hagsmunamál að fæla ekki burt erlenda fjárfestingu

Umsögn Viðskiptaráðs um áform um lagasetningu um rýni á erlendum fjárfestingum ...
10. júl 2022

Alvarlegar athugasemdir við frumvarp til laga um breytingar á fjarskiptalögum

Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins og Viðskiptaráð Íslands hvetja til þess ...
21. des 2021

Nauðsynlegt að fyrirtækjum sé bættur skaði vegna sóttvarnaraðgerða

Ljóst er að þörf hefur skapast fyrir stuðning við fyriræki sem var gert að hætta ...
3. feb 2022