Um hundrað manns á fundi Viðskiptaráðs í Kaupmannahöfn

Viðskiptaráð Íslands kynnti skýrslu um fjármálastöðugleika á Íslandi í Kaupmannahöfn í dag. Eins og kunnugt er hefur verið nokkuð neikvæð umræða um íslensk efnahagsmál í Danmörku, einkum eftir útkomu skýrslu Danske Bank. Fundurinn var þriðji í röðinni en VÍ stóð fyrir fundum í New York og London í maí. Fundargestir í Kaupmannahöfn voru flestir starfsmenn erlendra fjármálastofnana og greiningaraðilar lánshæfismatsfyrirtækja. Á fundinum fjölluðu prófessorarnir dr. Frederic S. Mishkin og dr. Tryggvi Þór Herbertsson um fjármálastöðugleika á Íslandi og svöruðu spurningum frá fundargestum um íslenskt hagkerfi.

Fram kom í máli dr. Frederic S. Mishkin að hann teldi allan samanburð á Íslandi og nýmarkaðsríkjum afar misráðinn. Hann áréttaði í máli sínu mikilvægi þess að koma áleiðis til greiningaraðila upplýsingum um íslenskt hagkerfi og að hann væri þeirrar skoðunar að mikið af þeirri gagnrýni sem fram hafi komið á síðustu mánuðum hafi að mörgu leiti verið óréttmæt.

Aðspurður sagði dr. Tryggvi Þór Herbertsson að krosseignarhald í íslensku fyrirtækjum væri mjög á undanhaldi og unnið væri að því að draga úr slíku.

Megin niðurstaða höfunda er sú að hverfandi hætta er á fjármálakreppu á Íslandi.

Íslenskt efnahagslíf og stöðugleiki á landinu hafa verið mikið í umræðunni á alþjóðlegum vettvangi að undanförnu og fram kom í máli Höllu Tómasdóttur, framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs, að fundirnir væru innlegg í umræðu um íslenskt hagkerfi og það væri von hennar að hún myndi dýpka umræðuna og ljá henni fræðilega vigt.

Frekari upplýsingar um fundinn veitir Halla Tómasdóttir framkvæmdastjóri í síma 863-7105.

Nálgast má myndina í prentgæðum hér.

Tengt efni

Hvert stefnir verðbólgan?

Huga ætti að vaxtahækkunarferlinu í litlum skrefum til að kæla frekar en að kæfa ...
31. mar 2022

Fasteignaskattar og hnignun hornskrifstofunnar

Gæti verið að í framtíðinni verði stór hluti vinnu sumra unninn inni á heimilum? ...
10. mar 2022

Ómálefnaleg mismunun og dregið úr fjölbreytni

Umsögn Viðskiptaráðs um drög að frumvarpi til áfengislaga (mál nr. 596)
9. jún 2022