María nýr lögfræðingur Viðskiptaráðs

María kemur frá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu og mun hefja störf hjá Viðskiptaráði í ágúst

María Guðjónsdóttir hefur verið ráðin lögfræðingur Viðskiptaráðs. María er með meistarapróf í lögfræði frá Háskóla Íslands, málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi og viðbótardiplómu í opinberri stjórnsýslu. Hjá Viðskiptaráði mun hún m.a. sinna lögfræðilegri ráðgjöf gagnvart framkvæmdastjóra og stjórn, annast umsagna- og skýrslugerð og taka þátt í málefnastarfi ráðsins ásamt því að halda utan um starfsemi Gerðardóms Viðskiptaráðs Íslands.

María kemur til Viðskiptaráðs frá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu en hún hefur frá árinu 2019 starfað á vettvangi Stjórnarráðsins og komið að fjölbreyttum verkefnum, m.a. á sviði stefnumótunar og innleiðingar, hjá félags- og barnamálaráðuneytinu, forsætisráðuneytinu og víðar. Áður starfaði María sem aðstoðarmaður dómara og á lögmannsstofu sem löglærður fulltrúi.

María mun hefja störf hjá Viðskiptaráði í ágúst en hún tekur við starfinu af Öglu Eir Vilhjálmsdóttur sem starfað hefur hjá ráðinu frá árinu 2018.